Fréttablaðið - 03.02.2010, Page 46

Fréttablaðið - 03.02.2010, Page 46
30 3. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 MORGUNMATURINN LÁRÉTT 2. hland, 6. slá, 8. mánuður, 9. tunna, 11. í röð, 12. smápeningar, 14. mjó- róma, 16. kusk, 17. svelgur, 18. pota, 20. tveir eins, 21. högg. LÓÐRÉTT 1. þrákelkni, 3. óhreinindi, 4. samtals, 5. persónufornafn, 7. heimakoma, 10. ról, 13. kk nafn, 15. laun, 16. umrót, 19. tvíhljóði. LAUSN LÁRÉTT: 2. piss, 6. rá, 8. maí, 9. áma, 11. mn, 12. aurar, 14. skræk, 16. ló, 17. iða, 18. ota, 20. uu, 21. stuð. LÓÐRÉTT: 1. þráa, 3. im, 4. samræðu, 5. sín, 7. ámusótt, 10. ark, 13. ari, 15. kaup, 16. los, 19. au. „Eigum við ekki að segja að jakkinn sé brons- litaður,“ segir varnarjaxlinn Ingimundur Ingi- mundarson. Íslenska landsliðið í handbolta kom með brons- verðlaun um hálsinn til landsins á mánudag eftir góða ferð til Austurríkis. Athygli vakti að Ingi- mundur klæddist bronslituðum jakka þegar hann steig út úr flugvélinni í Keflavík. „Þeir gáfu mér afmælisgjöf drengirnir – jakka og buxur,“ segir Ingimundur spurður út í jakkann. Hann fagnaði þrítugsafmælinu 29. janúar, daginn eftir að Ísland vann frækinn sigur á Norðmönnum. „Jakkinn átti að tákna gullið fyrir okkur. En svo kom á daginn að hann er bronslitaður eftir allt saman.“ Ingimundur segir að markvörðurinn Hreiðar Levý Guðmundsson hafi verið valinn til að þræða tískuverslanirnar í Vín í leit að réttu gjöfinni. Er hann tískulöggan í hópnum? „Hann vill meina það. Ég veit það ekki,“ segir Ingimundur léttur. - afb Gulljakkinn varð bronsjakki FLOTTUR JAKKI Ingimundur í bronsjakkanum við komuna til landsins á mánudag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR „Það endaði einn á spítala síðast – ofkældist næstum því. Það var reyndar ég. Ég fór aðeins of langt út í,“ segir Karl West, for- maður sjósundsselskapar Kaffibarsins. Hópurinn hittist tvisvar í viku og á mánu- dag endaði ferðin á því að formanninum var ekið í sjúkrabíl á spítala. „Ég ofreyndi mig – dreif ekki alveg til baka,“ segir Karl eldhress, enda búinn að endurheimta 36,8 gráðu líkamshita þegar Fréttablaðið náði í hann. Hann telur að líkamshitinn hafi farið niður í 34 gráður þegar hann komst upp úr ísköldum sjónum við illan leik. „Ég fór inn og var settur í mörg teppi og svo var hringt á sjúkrabíl. Það tók klukkutíma að ná í mig hita aftur.“ Sjósundsselskapur Kaffibarsins er um tveggja mánaða gamall hópur og saman- stendur af velunnurum og starfsmönn- um Kaffibarsins, sem er einn vinsælasti skemmtistaður borgarinnar. Hópurinn hittist á mánudögum og miðvikudögum og fer í samfloti frá Kaffibarnum í Nauthól- svík. „Þetta er opið félag fyrir þá sem óska. Við erum ekkert strangir,“ segir Karl og neitar því að nýir meðlimir þurfi að ganga í gegnum einhvers konar vígsluathöfn. Karl segist ekki óttast að fara aftur „í hafið“ eins og hann orðar það í kvöld. „Þetta er eins og þegar maður dettur af hestbaki, það fyrsta sem maður gerir er að fara aftur á bak,“ segir hann. „Núna þekki ég takmörk mín. Ég get tekið sirka 90 sundtök og þá er ég örmagna. Ég hlakka til og fer galvaskur út í.“ - afb Kaffibarssjósund endaði á spítala FRÍÐUR HÓPUR Sjósundsselskapur Kaffibarsins hittist tvisvar í viku og fer í hafið. Formaður félagsins lenti á sjúkrahúsi síðast. „Ég fæ mér núna múslí með mjólk, ávöxt og svo glas af safa. Annars hef ég verið í kornflex- inu og hafragraut. Finnst líklegt að ég detti í það aftur bráð- lega.“ Sif Atladóttir knattspyrnukona. Pókerklúbburinn Kojack hélt sérstakt góðgerðapókermót á mánudag, eins og Fréttablaðið greindi frá um helgina. Félagarnir Arnar Gunnlaugs- son, Egill Gillz og Auðunn Blön- dal þóttu hlut- skarpastir og skiptu með sér sigrinum þar sem þeir höfðu allir valið sama málefni til að styrkja áður en mótið hófst. Potturinn, sem var 315 þúsund krónur, rann því óskiptur til langveikra barna. Það er rífandi gangur hjá tónlistar- manninum KK. Hann hélt tvenna uppselda tónleika á Rosenberg um helgina þar sem hann spilaði fyrstu tvær plöturnar sínar með uppruna- legu spilurunum. Á fésbókar-síðu sinni tilkynnti tónlist- armaðurinn nýlega að hann væri giftur og fékk fjölmargar heillaóskir í kjölfarið. KK var þó ekki að gifta sig heldur aðeins að uppfæra „statusinn“. Hann er búinn að vera með sömu konunni síðan hann var tvítugur og þau giftu sig fyrir nokkrum árum. Baráttan hefur heldur betur harðnað í hinu íslenska Euro- vision því á Netinu ganga nú ásakanir á víxl um að tvö lög séu stolin. Fyrst byrjaði umræðan um lag Örlygs Smára með franska nafnið og svo dúkkaði allt í einu upp sú umræða að lag Bubba og Óskars Páls væri líka stolið. Sennilega eru það hins vegar engin ný tíðindi að lög í þessari ágætu keppni séu svolítið keimlík. FRÉTTIR AF FÓLKI Baltasar Kormákur hyggst gera kvikmynd sem verður laus- lega byggð á einleik Jóns Atla Jónassonar, Djúpinu. Hann sótti innblástur sinn til ótrúlegrar þrekraunar Guðlaugs Friðþórs- sonar sem synti í land eftir að skip hans, Hellisey VE-503, fórst við Vestmannaeyjar aðfaranótt 11. mars árið 1984. Fjórir vinir Guð- laugs fórust en hann komst einn lífs af eftir að hafa synt rúma fimm kílómetra og verið sex tíma í ísköldu Atlantshafinu. Baltasar viðurkennir að hann hafi lengi dreymt um að gera mynd sem byggðist á þessum atburðum. Hann hafi hins vegar ekki fundið neinn flöt á því fyrr en hann sá æfingu á Djúpinu eftir Jón Atla með Ingvari E. Sigurðs- syni í hlutverki skipbrotsmanns- ins í Borgarleikhúsinu. Hann tekur hins vegar fram að kvik- myndin verði sjálfstætt verk þótt vissulega byggist það á einleikn- um og atburðunum við Stórhöfða. „Ég talaði við Jón Atla strax eftir æfinguna og við fórum að vinna handritið. Sú vinna hefur bara gengið það vel að þetta er að verða að veruleika,“ segir Baltasar en myndin fékk vilyrði fyrir styrk hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands nýverið og er nú beðið svara hjá Norræna kvikmyndasjóðnum. Baltasar segir enga ákvörðun hafa verið tekna um hvaða leikar- ar komi til greina í aðalhlutverkið en útilokaði þó Ingvar E. Sigurðs- son. „Ég ætla samt ekki að fara að binda þetta við eitthvert aldursbil eða útlit en Ingvar hentar einfald- lega ekki í þetta hlutverk,“ segir Baltasar en viðurkennir um leið að hann sé með nokkra leikara í sigtinu. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá stóð til að ráðast í gerð kvikmyndar eftir bók Arnald- ar Indriðasonar, Grafarþögn, en leikstjórinn segir hana hafa verið setta til hliðar um stundarsakir. „Arnaldur er að skrifa handritið en vegna anna hjá honum hefur það dregist aðeins á langinn. Þannig að þetta verkefni fer fram fyrir röðina.“ freyrgigja@frettabladid.is BALTASAR KORMÁKUR: GRAFARÞÖGN HVÍLD Í BILI Baltasar gerir kvikmynd eftir einleik Jóns Atla FANN FLÖTINN HJÁ JÓNI ATLA Baltasar Kormákur ætlar að gera kvikmynd sem verður lauslega byggð á einleik Jóns Atla, Djúp- inu. Sá einleikur er innblásinn af ótrúlegu þrekvirki Guðlaugs Friðþórssonar sem komst einn lífs af þegar Hellisey VE-503 sökk við Vestmannaeyjar í mars 1984.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.