Samtíðin - 01.12.1968, Qupperneq 15

Samtíðin - 01.12.1968, Qupperneq 15
SAMTÍÐIN 7 ið gefandi. Auk þess fer varla hjá því, að dóttirin læri að meta þetta að verð- leikum, þegar fram í sækir. Ef þú átt litla dóttur, ættirðu að segja lienni eftirfarandi atriði: 1. Að hollt viðurværi sé mjög mik- ilsvert og því æltu þessar fæðutegundir að vera á livers manns borði: Mjólk, skyr, ostur, hrátt grænmeti, fiskur, hrogn, lifur, magurt kjöt, lijörtu, nýru og ávextir. Allt þetta stuðlar mjög að hollustu og heilsuvernd og eykur fólki fegurð og þrótt. 2. Að sælgætisát í óhófi sé varhuga- vert, valdi tannskemmdum og sé fitandi. Gefðu telpunni þinni rúsínur, sveskjur, hnetur, möndlur og gulrætur í staðinn fvrir sætar kökur. 3. Að baða sig og snyrta daglega og hirða hárið á réttan hátt. Vendu liana einnig á að hursta tennurnar kvölds og morgna og eftir máltíðir. 4. Að þvo sér ætíð um liendurnar, þeg- ar liún kemur inn, áður en hún borðar og eftir að hún hefur sinnt nauðþurft- um sínum. Kenndu henni auk þess að hirða hendurnar vel með því að nota handáhurð og nudda þær með sítrónu- sneið til að styrkja neglur og naglabönd. ö. Að nota hollan skófatnað og hirða fæturna vel. 6. Að vera ætíð í hreinum nærfötum og fara á hverjum morgni í hreina sokka. 7. Að taka til i herberginu sínu á hverju kvöldi, áður en hún háttar, leggja fötin sin snyrtilega frá sér og láta leik- föngin sin á réttan stað. 3. Að sofa á liarðri dýnu og hafa lágt undir liöfðinu. 9. Að kenna henni fögur kvæði og bænir og venja hana á að biðja Guð um bandleiðslu og farsæld bæði kvölds og morgna. Fyrir öll þessi hollráð ælti dóttir þín að verða þér þakklát, þegar hún kemst til vits og ára, enda eru þau með þvi bezta, sem þú getur látið henni í té. Þau munu reynast henni ómetanlegt vegar- nesti á lífsleiðinni og veita henni öi-yggi og sjálfstraust, sem er henni ómetanlegt. ^ Undirhaka FYRSTA ráðið til að fá ekki undir- höku eða losna við hana er að sofa með lágt undir höfðinu, helzt koddalaus og með 25 cm hærra undir fótum en boln- um. Ástæðan fyrir því, að fitan sezt neð- an á hökuna er sú, að blóðrásin er þar hægari en annars staðar. Auk þess eru hökuvöðvarnir fremur linir, og það vill slakna á þeim, ef ekkert er gert til að styrkja þá. Á þessu má ráða bót með æfingum, en þær eru nokkuð tímafrek- ar sumar hverjar. Einna bezt er að sveigja höfuðið vel aftur og reyna að teygja neðri vörina og tunguna á vixl upp i nef. Þetta er næsta skopleg æfing, en hún gefur brátt góða raun. En það, sem nú er talið, kem- ur að litlu haldi, ef fólk venur sig á að ganga álúlt, grúfa sig yfir bækur eða sofa með liátt undir höfðinu. Loks má nefna, að megrandi krem og vökvar, sem eyða fitu á höku og hálsi, fást í snyrti- vöruverzlunum. Þið getið leitað ykkur upplýsinga um allt þess háttar i verzl- uninni Dömniízkan á Laugavegi 35. + Nagar neglur KARL skrifar: Ég hef þann leiða ávana að naga neglurnar. Hvernig á ég að venja mig af því? SVAR: Fáðu þér heldur Ópal eða tyggigúmmí. En að naga neglur, á sér því miður oft alvarlegar orsakir. Það stafar oft af áhyggjum og vanmáttar- kennd. Hefurðu áhyggjur af starfi þínu,

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.