Samtíðin - 01.12.1968, Síða 16
8
SAMTÍÐIN
Nýjasta Parísargreiðslan
Karl? Ef svo er, skaltu umfrain alll
reyna aö lirinda þeim frá þér og herða
])ig upp. Aukin útivist og líkamsæfingar
eru hollar í þessu tilliti. Ef ekkert af
])essu dugar, ráðlegg ég þér að lala við
lækni.
Andlitsskekkja
B. skrifar og kvartar um slappleika
í vinstri kinninni, er valdi því, að and-
litið sé skakkt. Hún kveðst vera 43ja
ára og hefur miklar áhyggjur af þessu
lýti, en bannar mér að birta bréf sitt.
SVAR: Ég býst ekki við, að nudd geti
bætt úr þessu, en bygg, að auðvelt muni
að laga það með skurðaðgerð. Þeir geta
lagfært margs konar ándlitslýti lækn-
arnar nú á dögum.
Of lítill barmur
E. skrifar: Ég er 1,67 m á liæð og veg
55 kíló. Brjóstmál mitt er 80 cm, en mér
finnst það of lítið og vildi gjarnan, að
])að væri 85 cm. Hvað á ég að gera, til
þess að svo verði?
SVAR: Þú mátt vel þyngjast um 2—3
kg, og gæti þá farið svo, að brjóstmál
þitt kæmist í það horf, sem þú óskar
eftir. Sjáðu til, hvernig fer.
+ Ávaxta-jólakaka
SKOLIÐ og þerrið 350 g af rúsínum
og 250 g af kúrenum og seljið þær síð-
an í hveitið. Smábrytjið 100 g af sykr-
uðum kirsiberjum og 100 g af afhýdd-
um möndlum. Sigtið 450 g af hveiti, setj-
íið örlítið af salti út í það og 1 tsk. af
geri. Bætið síðan út i rifnum sítrónu-
berki, söxuðum kirsiberjum, rúsínum
og kúrenunum.
Hrærið 350 g af smjöri eða smjörlíki,
l)ætið úl i það 6 heilum eggjum, einu í
einu, og stráið svolitlu af hveiti með til
að koma í veg fyrir, að deigið aðskiljist.
Síðan er öllu hveitinu með ávöxtunum
bætt út í og kaldri mjólk, ef vill. Hafa
má til helminga mjólk og ávaxtasafa.
Einnig er gott að bæta út í 1-—2 msk.
af koníaki.
2 stór kökuform, sem taka rúml. i/> kg
af deigi, eru smurð að innan og þakin
smurðum smjörpappír. Þau eru fyrst
fóðruð með heilum kirsiberjum, sein
bafa verið tekin frá. Kakan bakist við
formkökuhita í 1/2 klst. eða þar til
prjónn hreinsar sig, þegar lionum er
slungið í liana.
FDRELDRAR!
ÞIÐ FÁIÐ 12 MYNDIR af barninu
í EINNI MYNDATÖKU. - EIN STÆKKUN
INNIFALIN. FJDLDI SKAPAR FJÖLBREYTNI.
Barna- & f jölskyldu Ljósmyndir
AU3TURSTRÆTI 6 — SÍMI 12644