Samtíðin - 01.12.1968, Page 25

Samtíðin - 01.12.1968, Page 25
SAMTÍÐIN 17 Það er mikill munur á því að sniglast áfram og að þjóta í geimfari FÁTT ER AFSTÆÐARA EN HRAÐINN Það þótti þó nokkurt fyrirtæki að fara til Reykjavíkur auslan úr uppsveitum Árnessýslu snemma á þessari öld. Nú fara menn á klukkutíma í bíl ámóta vega- lengd og þá var farin á dag. Flugferð frá Reykjavík til Lundúna í dag er farin á skemmri tíma en menn fóru á hestum milli bæja innan sveitar, áður en bílar komu til sögunnar. Það er gaman að athuga liraða ýmsra dýra og bera hann saman. Ef snigill, sem skríður að jafnaði 4 cm á klst. (= 0,0004 km á klst.), herðir allt í einu ferðina um helming og kemst upp í 8 cm á klst., sem dæmi eru til, er við húið, að liann verði bráðkvaddur. Þetta er nefnilega geysihraði á mælikvarða sniglanna. — Ef maður lileypur 100 m á 10 sek., sem er nálægt heimsmetinu, samsvarar það 40 km á klst., og ekkert mannshjarta myndi þola þvílíkt álag. Þó væiá þetta liálfgerður snigilshraði samanborið við lnaða geimfarans, sem fer ef til vill 30.000 km á klst. Hvað er þó ln aði geim- faranna borinri saman við hraða ljóssins frá hinum fjarlægu hnöttum, sem þeir eru að reyna að komast til; hann er nefni- lega 300,000 km á sek. eða 1 milljarður og 80 milljónir km á klst. En það er alger óþarfi að fara út í himingeiminn; við höfum feikinóg verk- efni við að hera saman hraða manna, dýra og hluta hér á jörðu. Byrjum á ána- maðkinum. Hann skríður 10 sinniun hraðara en snigillinn, eða 0,008 km á klst., sem er geysihraði á snigla vísu. Ef við berum gönguhraða okkar mann- anna saman við hraða ferfætlinganna i dýrarikinu, förum við heldur en ekki lialloka fyrir þeim og það svo, að við getum farið að efast um, að við hefðum nokkurn tíma átt að rísa upp á aftur- fæturna í stað þess að halda áfram að ganga á fjórum jafnfljótum! Flest fer- fætt dýr eru nefnilega miklu frárri á fæti en við. Fljótastur þeirra er hlébarð- inn. Hann kemst upp í 114 km á lclst. og gelur hlaupið 60—70 km á klst. tím- unum saman. Kappakstursbíll hefur ekki við honum á fyrsta sprettinum, er nærri því lielmingi seiimi! Antilópan hleypur 80 km á klst. án þess að mæðast eða fá hjartslátt. Hérinn gelur hlaupið með 73 km hraða á klst., en veiðihundarnir, sem eita hann, komast ekki upp i nema 65 km hraða. Refurinn er jafnoki hérans á sprettinum, en úlfur hleypur tæpa 50 km á klst. Hins vegar er hann þolnari. Þá komum við að þyngri dýrum. Það vekur furðu, að nílhestur skuli komast upp í 57 km á klst. Gíraffi kemst hins vegar ekki nema 52 km. 5 lesta þungur fíll frá Kenya hefur náð 40 km. hraða á klst., og ísbjörn hefur sézl lilaupa með 40 km hraða. Úlfaldar hafa náð 40 km lnaða á klst., en á lestaferð um eyði- merkur fara þeir ísl. lestagang — 5 km á klst. Fuglar fara miklu hraðar en jarð- bundnar skepnur. Fálki getur steypt sér á bráð með 320 km hraða á ldst. Ernir geta flogið með 200 km hraða á ldst., bréfdúfur með 100 km hraða, en flestir smáfuglar fljúga 40—50 km á klst. Hrað-

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.