Fréttablaðið - 09.03.2010, Qupperneq 6
6 9. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
sex saman í p
akka
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
S
A
4
5
8
6
1
0
4
/0
9
Á Austur-Indíafjelaginu geturðu nú kitlað bragðlaukana
með veislu í tilefni Holi-hátíðarinnar á Indlandi.
Risarækjur í forrétt, í aðalrétt eru kjúklingalundir, lambafillet
og grænmetisréttur. Með þessu er síðan úrval Naan-brauða,
Raitha, hrísgrjón og að síðustu ljúffengur eftirréttur.
Þessi ríkulegi veislukostur býðst nú í mars á
aðeins 4.990 kr. sun-fim og 5.990 kr. fös og lau.
Á föstudags- og laugardagskvöldum svífur
dansfuglinn Mínerva inn í veitingasal okkar
með sínum yndisþokka og dansi.
Borðapantanir í síma 552 1630.
Hverfisgata 56, 101 Reykjavík
Sími: 552 1630
austurindia@austurindia.is
Opið: sun.-fim. 18:00 - 22:00
fös. og lau. 18:00 - 23:00 www.austurindia.is
HOLI
MATSEÐILL
Austur-Indíafjelagsins
Litríkur og dásamlegur
4.990 kr. sun-fim
5.990 kr. fös-lau
HOLI-hátíð
gleði, dans
og litríkur matur
FÉLAGSMÁL Nýjum málum fækk-
aði í fyrra um 15 prósent milli ára
hjá Stígamótum, grasrótarsamtök-
um gegn kynferðisofbeldi. Guðrún
Jónsdóttir, talskona Stígamóta,
segir fækkunina að hluta skýr-
ast af samdrætti í starfseminni.
Einnig kunni efnahagsþrenging-
ar þjóðarinnar að verða til þess að
fórnarlömb kynferðisofbeldis leiti
sér síður hjálpar. Fólk sé gjarnan
að fást við löngu liðna atburði og
skorti til þess þrek í öðrum aðsteðj-
andi vanda.
Frá stofnun Stígamóta hafa 5.347
manns leitað til samtakanna, en þau
fagna nú 20 ára afmæli sínu. Sam-
tökin voru stofnuð 8. mars 1989 á
alþjóðlegum baráttudegi kvenna.
Fjöldi nauðgunarmála var nærri
sá sami og árið áður, eða 157. Guð-
rún sagði hins vegar að sifjaspells-
málum hefði farið fækkandi undan-
farin fjögur ár. „Þarna gæti verið
að við séum að vinna upp gamlan
vanda,“ sagði Guðrún, en tölfræð-
in sýnir að oft er það ekki fyrr en
15 til 20 árum eftir að brot hafa átt
sér stað, að fórnarlömbin leita sér
hjálpar hjá Stígamótum.
Mál sem tengdust hópnauðgunum
voru þrettán talsins í fyrra, sem og
mál þar sem grunur lék á um lyfja-
nauðgun. Hópnauðganamál voru
tveimur fleiri árið 2008, en það ár
segir Guðrún að hafi orðið „gífur-
leg“ fjölgun slíkra mála.
Vettvangur nauðgana er í 70
prósentum tilvika heimili lands-
ins, allnokkur hluti mála á sér stað
á útihátíðum eða skemmtistöð-
um. Svokallaðar götunauðganir,
þar sem ráðist er á konur úr laun-
sátri, eru undantekningartilvik, að
sögn Guðrúnar. Hún segir tölfræði
samtakanna sýna að allt of mikið
sé lagt upp úr líkamlegum áverk-
um þegar nauðgunarmál rata fyrir
dóm. Í 30,8 prósentum tilvika sé
beitt hótunum við nauðganir, en
líkamlegu ofbeldi í 18,6 prósentum
tilvika. „Nauðgunarákvæði ættu að
endurspegla að það sé spurning um
samþykki, hvort nauðgun hafi átt
sér stað eða ekki.“
Guðrún segir Stígamót hafa þurft
að draga saman seglin og ekki sé
alveg útséð um frekari samdrátt.
Framlag ríkisins hafi verið skert
um 10 prósent, en ekki liggi fyrir
hvað verði með framlag sveitarfé-
laga. Vegna þessa hafi samtökin
þurft að hætta ferðum út á land þar
sem fórnarlömbum kynferðisof-
beldis voru boðin viðtöl. „Það fækk-
aði hér um tvö stöðugildi á árinu,
þannig að eitthvað varð undan að
láta.“ olikr@frettabladid.is
ÁRSSKÝRSLAN KYNNT Starfskonur Stígamóta, Karen Eiríksdóttir, Guðrún Jónsdóttir
og Þórunn Þórarinsdóttir, kynntu ársskýrslu Stígamóta í gær. 5.347 hafa leitað hjálpar
hjá Stígamótum á 20 ára starfstíma samtakanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ekki útséð um niður-
skurð hjá Stígamótum
Nýjum málum fækkaði um 15 prósent árið 2009 hjá Stígamótum í fyrra, sam-
kvæmt ársskýrslu. Efnahagsástandið kann að hafa áhrif. Dómstólar leggja of
mikla áherslu á líkamlega áverka í nauðgunarmálum, segir talskona Stígamóta.
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir margvíslega viðburði á döfinni
á afmælisári samtakanna, en milli klukkan eitt og fimm í dag blása sam-
tökin til ráðstefnu undir yfirskriftinni „Nauðganir og viðbrögð samfélagsins
við þeim“. Fundarstýra er Guðrún Agnarsdóttir, en ráðstefnan er haldin á
Grand hóteli Reykjavík.
„Þar höfum við fengið til liðs við okkur allt það mikilvægasta fólk sem
kemur að nauðgunarmálum: dómsmálaráðherra, dómara, ríkissaksóknara,
lögreglustjóra, konur sem hafa þessa reynslu og svo okkur í grasrótinni,“
sagði Guðrún Jónsdóttir um leið og kynnt var ársskýrsla samtakanna í gær.
Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra setur ráðstefnuna, en svo taka við
erindi frá frummælendum og endað á umræðum. - óká
NAUÐGANIR OG VIÐBRÖGÐ SAMFÉLAGSINS
ATVINNUMÁL Mánudaginn 25. október hefur kvenna-
hreyfingin öll boðað til endurtekningar á kvennafríi.
„Þetta verður hápunkturinn á afmælishátíð okkar,“
sagði Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, þegar
hún upplýsti um fyrirætlanina á kynningu á árs-
skýrslu Stígamóta.
„Okkur er alveg sama hver á hugmyndina, en
okkur er í mun að baráttan eigi sér stað,“ sagði hún,
en deginum áður hefur verið blásið til alþjóðlegrar
ráðstefnu um baráttu kvenna. „Í gegnum árin höfum
við stöðugt áttað okkur betur á því að kvennaverk-
fallið á Íslandi árið 1975 og aftur árið 2005 vakti
heimsathygli.“
Guðrún segir áætlað að konur gangi út af vinnu-
stöðum sínum eftir að „vinnu lýkur“, en vinnulokin
þann daginn verða reiknuð í hlutfalli af launamun
kynjanna. „Það á eftir að reikna út hvenær það verð-
ur,“ sagði hún og kvað verða spennandi að sjá á hvaða
leið konur eru og hversu hröð þróunin hafi verið.
„Og hingað kemur fjöldi erlendra kvennahópa,
bæði til að taka þátt í þessu og til þess að funda á
alþjóðavísu.“ - óká
KVENNAFRÍDAGURINN 1975 Kvennafrídagurinn var í fyrsta sinn
haldinn 24. október árið 1975. Í ár ber 24. upp á sunnudag, en
frídagur verður haldinn degi síðar. MYND/ÚR SAFNI
Tuttugasta og fimmta október á þessu ári er blásið til kvennafrídags:
Konur boða verkfall í þriðja sinn
Átt þú von á eldgosi í Eyjafjalla-
jökli?
Já 49,9%
Nei 50,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Viltu að álverið í Straumsvík
verði stækkað?
Segðu skoðun þína á visir.is
ATVINNUMÁL Franskt fyrirtæki
hefur fengið leyfi til tilraunadæl-
ingar á kalkþörungum úr Hrúta-
firði og Miðfirði. Húnvetning-
ar vonast til að verkefnið leiði til
þess að allt að tuttugu manna iðn-
fyrirtæki byggist upp í héraðinu.
Framkvæmdastjóri Sam-
taka sveitarfélaga á Norðurlandi
vestra, segir að fyrirtækið hafi
fengið rannsóknarleyfi og tekið
borkjarnasýni.
Úr kalkþörungasetinu er unnið
kalk til nota í áburð og fóðurbæti,
matvælavinnslu og lyfjagerð. - kmu
Kalkþörungavinnsla möguleg:
Vonast eftir
iðnaði nyrðra
SAMGÖNGUR „Þetta var einfaldlega
yfirsjón af okkar hálfu,“ segir
Magnús Jóhannsson, svæðisstjóri
Vegagerðarinnar á Norðvestur-
landi, um framkvæmdir án leyfis
í friðlandi í Vatnsfirði.
Vegarkaflinn sem nú er unnið
að í Vatnsfirði á Barðaströnd er
um fimmtán kílómetra langur.
Þar af liggja um fjórir kílómetrar
um friðlandið sem þar er. Fram-
kvæmdir í friðlandinu hófust að
sögn Magnúsar fyrir um hálfum
mánuði án þess að formlegt leyfi
frá Umhverfisstofnun væri feng-
ið. Magnús segir Vegagerðinni til
málsbóta að það hafi einmitt verið
Umhverfisstofnun sem skar úr um
það að framkvæmdin þyrfti ekki
að fara í umhverfismat.
„Við vorum búnir að fá fram-
kvæmdaleyfi en þetta leyfi
gleymdist. Um leið og við upp-
götvuðum það sóttum við formlega
um leyfið og fengum það um leið,“
segir Magnús.
Rask vegna vegagerðarinn-
ar hefur verið gagnrýnt. Magn-
ús segir Vegagerðina hins vegar
fylgja öllum fyrirmælum og að
framkvæmdin sé undir eftirliti
Náttúrustofu. - gar
Vegagerðin viðurkennir yfirsjón við framkvæmdir í Vatnsfirði á Barðaströnd:
Gleymdu að fá leyfi í friðlandi
VEGAGERÐ Í VATNSFIRÐI Svæðisstjóri
Vegagerðarinnar segir það einfaldlega
hafa gleymst að sækja um leyfi frá
Umhverfisstofnun.
KJÖRKASSINN