Fréttablaðið - 09.03.2010, Side 22
Ný 4. vikna krakkajóganámskeið hefst 15. mars hjá
Jóga Stúdíó Stórhöfða 17.
2–5 ára » mánudagar klukkan 16:20–17:00
6–10 ára » miðvikudagar klukkan 16:20–17:00
Skráning í síma 772 1025 og 695 8464
Verð aðeins 5.000 kr.
Krakkajóga
Nánari upplýsingar á
jogastudio.orgStórhöfði 17 (gengið inn um Veggsport)
Tannvernd barna
Eitt mesta
úrval landsins
af taubleium!
Ásamt úvali af öðrum
vörum fyrir börn og mæður.
Meðgöngu- og brjóstagjafahaldarar
Í mörgum gerðum
og stærðum 32–46,
skálar A–H
Móðurást, Hamraborg 9
s. 564 1451, www.modurast.is
GOTT RÁÐ er að vefja ungbörn þétt inn í teppi
fyrir svefninn ef þau eru óvær. Þá geta þau ekki hreyft
hendur eða fætur að ráði og það virðist róa þau.
„Við höfum kennt barna-kickbox í
níu ár,“ upplýsir Bryndís Sigurðar-
dóttir annar eigenda Pumping Iron
í Dugguvogi. Eiginmaður hennar
og hinn eigandi stofunnar, Jimmy
R. Routley, kennir sparkbox og
var að sögn Bryndísar sá fyrsti til
að gera það hér á landi. En hvern-
ig vaknaði hugmyndin að barna-
sparkboxi? „Þegar litla stelpan
okkar var orðin þriggja ára lang-
aði hana að vera með, þannig að
við ákváðum að búa til tíma fyrir
hana,“ segir Bryndís. Jasmín Cass-
andra verður ellefu ára á þessu ári.
Hún hefur tekið þátt í öllum barna
sparkbox-námskeiðum hjá pabba
sínum en fer þó bráðum að færast
upp í fullorðinsflokk enda farin að
standa ágætlega uppi í hárinu á
pabba sínum í sportinu.
Hvert námskeið stendur í þrjá
mánuði og æft er tvisvar í viku. Á
hverju námskeiði eru tólf til fimm-
tán krakkar. „Jimmy vill helst ekki
vera með fleiri til að geta veitt
öllum athygli,“ útskýrir Bryndís
og tekur fram að yngstu börn-
in séu fimm ára en þau elstu tólf.
En hvað læra börnin? „Þau stunda
upphitun, hlaupa, sippa og teygja
vel enda þurfa þau oft að sparka
hátt. Síðan sparka þau í púða, læra
alls konar spörk og boxa,“ segir
Bryndís og bætir við að auðvitað
læri þau einnig að þetta eigi aðeins
að gera í tíma.
Hún telur helstu kosti æfinganna
vera þá að börnin verði þolbetri og
liðugri. „Þá læra þau líka aga, enda
þurfa þau að hlýða Jimmy í tímun-
um.“
Margir telja sparkbox til karla-
sports en svo er alls ekki. Bryn-
dís segir stelpur yfirleitt fleiri í
barna-sparkboxinu, en hins vegar
breytist hlutfallið þegar komið sé í
fullorðinsflokk. Í heildina sé spark-
boxið góð íþrótt sem veiti betra þol,
meiri liðleika og sé almennt bráð-
skemmtileg. solveig@frettabladid.is
Verða liðug og læra aga
Jimmy R. Routley, eigandi Pumping Iron í Dugguvogi, kennir börnum á aldrinum fimm til tólf ára sparkbox.
Þar læra þau spörk, æfa teygjur og stunda þolæfingar. Einnig læra þau aga sem fylgir bardagalistum.
Jasmín Cassandra æfir kick-box með pabba sínum Jimmy. Hún hefur sótt barna-sparkboxtíma hjá honum frá unga aldri en í
slíkum tímum eru börn frá fimm til tólf ára. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is
sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is
sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is
sími 512 5447
Fimmtudaga