Fréttablaðið - 09.03.2010, Page 44
28 9. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
„Þetta er í fyrsta skipti sem við próf-
um að breyta svona út af venjunni og
það verður spennandi að sjá hvern-
ig til tekst. Við höfum fulla trú á því
að þetta lukkist vel,“ segir Vala Ósk
Bergsveinsdóttir, kennari við Kvenna-
skólann í Reykjavík. Vala kemur að
skipulagningu góðgerðadags sem
haldinn er í dag í skólanum.
Vikan er undirlögð af Tjarnardög-
um í Kvennó, sem eru opnir dagar
eins og flestir framhaldsskólar lands-
ins halda á vorönn. Skapast hefur hefð
fyrir því að á Tjarnardögum sé nem-
endum boðið upp á ýmis konar nám-
skeið og fræðslu í bland við skemmt-
un til að breyta örlítið út af vanalegri
skóladagskrá. „Í ár ákváðum við að
prófa eitthvað nýtt og hafa einn af
Tjarnardögunum tileinkaðan starfi í
þágu samfélagsins,“ segir Vala. „Við
fengum hin ýmsu samtök til liðs við
okkur og allir bekkir skólans, 24 tals-
ins, drógu síðan ein samtök úr potti
til að vinna með. Bekkirnir settu sig
svo í samband við samtökin og ákváðu
í sameiningu verkefni sem verður
framkvæmt í dag.“
Vala segir starf bekkjanna í dag
vera með ýmsu sniði. Algengastar
verða þó væntanlega fjáraflanir og
kynningar á starfsemi samtakanna
sem um ræðir. „Kvennókrakkarn-
ir verða örugglega áberandi í mið-
bænum, þar sem einn bekkur ætlar
meðal annars að framkvæma gjörn-
ing, og einhverjir bekkir verða líka
í Kringlunni og víðar. Sumir hópar
hafa haft samband við fyrirtæki með
það fyrir augum að kíkja í heimsókn
til þeirra. Einn hópur ætlar að baka
og halda kaffiboð hjá Blindrafélag-
inu, annar að selja kakó og faðmlög
og svo mætti lengi telja. Einn bekkur
kemur til með að starfa með krabba-
meinsstuðningsfélaginu Krafti að
hugmyndavinnu sem félagið getur svo
nýtt sem fræðsluefni í framhaldsskól-
um. Það er ýmislegt að gerast í dag,“
segir Vala.
Mikið er um að vera í Kvennó þessa
dagana. Hápunktur Tjarnardaganna
er sjálf árshátíðin, sem haldin verð-
ur á fimmtudagskvöld með dagskrá
og máltíð á Hilton Reykjavík Nordi-
ca og balli með sveitaballaboltunum
í Skítamóral á Nasa. Þá frumsýnir
Fúría, leikfélag Kvennaskólans, leik-
ritið Kvennó Eddu eftir Árna Kristj-
ánsson í leikstjórn höfundar og Bryn-
dísar Óskar Þ. Tryggvadóttur 13.
mars, svo fátt eitt sé nefnt.
kjartan@frettabladid.is
KVENNASKÓLINN Í REYKJAVÍK: 24 BEKKIR VINNA AÐ GÓÐGERÐAMÁLUM Í DAG
Nemar Kvennaskólans
verða áberandi í miðbænum
Í ÞÁGU SAMFÉLAGSINS Vala ásamt bekk sínum við Kvennaskólann, 2NÞ, sem vinnur með Samtökum sykursjúkra í dag við ýmis konar kynningu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Á þessum degi árið 1950
hélt Sinfóníuhljómsveit
Íslands sína fyrstu tón-
leika í Austurbæjarbíói
undir stjórn Róberts
A. Ottóssonar. Sveitin
starfaði eftir samþykkt
útvarpsráðs og sam-
kvæmt henni voru tut-
tugu og fimm hljóðfæra-
leikarar ráðnir til starfa í
sveitina. Auk þeirra léku í
sveitinni hljóðfæraleikar-
ar sem áður höfðu verið
á samningi hjá Ríkisútvarpinu.
Fyrstu árin hafði sveitin engin föst fjárframlög.
Því fengu meðlimir hennar fremur lág laun fyrir
að leika með sveitinni og
þurftu að vinna önnur
störf samhliða til að
framfleyta sér. Árið 1983
var tilvera Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar tryggð með
lagasetningu og henni
gefið ákveðið hlutverk
í menningarlífi þjóðar-
innar.
Í dag hefur Sinfóníu-
hljómsveitin aðsetur í
Háskólabíói við Haga-
torg en mun flytja yfir í
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið þegar það verður
fullklárað. Aðalhljómsveitarstjóri hennar er
Rumon Gamba.
ÞETTA GERÐIST: 9. MARS 1950
Fyrstu tónleikar Sinfóníunnar
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Fréttablaðið býður nú upp
á birtingu æviminninga á
tímamótasíðum blaðsins.
Hafið samband í síma
512 5490-512 5495 eða sendið
fyrirspurnir á netfangið
timamot@frettabladid.is
Æviminning
Gísli Eirík
ur Helgaso
n
Laugateigi 7
2, Reykjavík
Gísli Eirík
ur Helgaso
n fæddist
í
Reykjavík
1. janúar 1
931. Hann
lést á Hraf
nistu í Ha
fnarfirði 1
2.
janúar síð
astliðinn.
Foreldrar
hans
voru Guðr
ún Jónsdót
tir frá Þing
eyri
í Dýrafirði
f. 1917, d.
1988, og H
elgi
Gíslason fr
á Ísafirði,
f. 1915, d.
1970.
Gísli Eirík
ur bjó fyrs
tu æviár sí
n í
Reykjavík
en fluttist
eftir það v
estur
til Ísafjarð
ar með for
eldrum sín
um
og systkin
um.
Systkini G
ísla Eiríks
eru Jón
Hannes, f.
1933, Sigrí
ður Ása, f.
1936 og G
uðmundur
, f.
1941.
Eiginkona
Gísla Eirí
ks er Marg
rét Magnú
sdóttir hjúk
r-
unarfræði
ngur, f. 4.
apríl 1937
. Þau geng
u í hjóna-
band árið
1960. Börn
Gísla Eirí
ks og Mar
grétar eru:
1) Magnús
kennari, f
. 1.5. 1972
, kvæntur
Guðbjörgu
Björnsdótt
ur kennara
, f. 30.11. 1
971. Börn
þeirra eru
Margrét, f.
17.2. 1997
og Björn J
óhann, f. 2
0.1. 1999.
2) Helgi tæ
knifræðin
gur, f. 18.6
. 1975, í sa
mbúð með
Jórunni Dr
öfn Ólafsdó
ttur leiksk
ólakennar
a, f. 15.2.
1975. Þeir
ra dóttir e
r Þórunn Á
sta, f. 24.12
. 2001. 3)
Guðrún læ
knir, f. 14.
11. 1979, í
sambúð m
eð Þór
Halldórssy
ni stjórnm
álafræðing
i, f. 6.6. 19
80.
Gísli Eirík
ur lauk sk
yldunámi
á Ísafirði e
n hélt suð
ur
til Reykjav
íkur 17 ára
gamall til
að nema h
úsasmíði.
Húsasmíð
ar urðu æv
istarf hans
. Framan a
f starfsæv-
inni vann
hann á Tré
smíðaverk
stæðinu Fu
ru en eftir
að
hafa fengi
ð meistara
réttindi í i
ðn sinni st
ofnaði han
n
sitt eigið f
yrirtæki, G
ísli, Eiríku
r, Helgi, se
m hann át
ti
og rak þar
til fyrir fá
einum áru
m.
Stangveið
i var aðalá
hugamál G
ísla Eiríks
alla tíð
og sinnti h
ann meða
l annars tr
únaðarstö
rfum fyrir
Stangveið
ifélag Reyk
javíkur.
Útför Gísla
Eiríks fer
fram í dag
kl. 13.00 í
Fossvogskir
kju.
G
1
s
gason
æddist í
Hann
firði 12.
drar hans Þingeyri , og Helgi5, d. 1970. ár sín í
að ve tur m sínum
ur, f.
úkr-
u:
u
ð
ur
ð
Gísli Eiríkur HelgasonTrésmíðameistariGísli Eiríkur Helgason fæddist í Reykjavík 1. janúar
1931. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. janúar
síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir frá
Þingeyri í Dýrafirði f. 1917, d. 1988, og Helgi Gíslason
frá Ísafirði, f. 1915, d. 1970. Gísli Eiríkur bjó fyrstu
æviár sín í Reykjavík en fluttist eftir það vestur til
Ísafjarðar með foreldrum sínum og systkinum.
Systkini Gísla Eiríks eru Jón Hannes, f. 1933, Sigríður
Ása, f. 1936 og Guðmundur, f. 1941.
Eiginkona Gísla Eiríks er Margrét Magnúsdóttir hjúkr-
unarfræðingur, f. 4. apríl 1937. Þau gengu í hjóna-
band árið 1960. Börn Gísla Eiríks og Margrétar eru:
1) Magnús kennari, f. 1.5. 1972, kvæntur Guðbjörgu
Björnsdóttur kennara, f. 30.11. 1971. Börn þeirra eru
Margrét, f. 17.2. 1997 og Björn Jóhann, f. 20.1. 1999.
2) Helgi tæknifræðingur, f. 18.6. 1975, í sambúð með
Jórunni Dröfn Ólafsdóttur leikskólakennara, f. 15.2.
1975. Þeirra dóttir er Þórunn Ásta, f. 24.12. 2001. 3)
Guðrún læknir, f. 14.11. 1979, í sambúð með Þór
Halldórssyni stjórnmálafræðingi, f. 6.6. 1980.
Gísli Eiríku lauk skyldunámi á Ísafirði en hélt suður
til Reykjavíkur 17 ára gamall til að nema húsasmíði.
Húsasmíðar urðu ævistarf hans. Framan af starfsæv-
inni vann hann á Trésmíðaverkstæðinu Furu en eftir að
hafa fengið meistararéttindi í iðn sinni stofnaði hann
sitt eigið fyrirtæki, Gísli, Eiríkur, Helgi, sem hann átti
og rak þar til fyrir fáeinum árum.
Stangveiði var aðaláhugamál Gísla Eiríks alla tíð
og sinnti hann meðal annars trúnaðarstörfum fyrir
Stangveiðifélag Reykjavíkur. Útför Gísla Eiríks fer fram í dag kl. 13.00 í Fossvogskirkju.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
Rannveig Árnadóttir
Hvassaleiti 58, Reykjavík,
lést á Landakoti 4. mars 2010.
Erna Borgþórsdóttir Óskar Alvarsson
Rannveig Óskarsdóttir Jóhann T. Maríusson
Borgþór Alex Óskarsson
Margrét Birta Óskarsdóttir
Arnþór, Huginn Þór, Elísabet Jóhannsbörn.
Elskulegur eiginmaður minn og faðir,
Sigurbjörn Hreindal
Pálsson
Vallarhöfða 12, Kópavogi,
lést laugardaginn 6. mars á gjörgæsludeild
Landspítalans. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju
mánudaginn 15. mars kl. 13.00.
Elsa Skarphéðinsdóttir
Bóas Hreindal Sigurbjörnsson
Okkar yndislegi eiginmaður, faðir,
sonur, bróðir, frændi, tengdasonur og
barnabarn,
Konráð Davíð
Þorvaldsson
hagfræðingur,
lést 6. mars á Líknardeild Landspítalans, Kópavogi.
Útför hans verður auglýst síðar.
Arna Björk Þorkelsdóttir
Konráð Pétur Konráðsson
Halldóra Konráðsdóttir Þorvaldur Þ. Sigurbjörnsson
Tómas Páll Þorvaldsson Edda Þuríður Hauksdóttir
Rakel Elísabet Tómasdóttir
Guðrún Pétursdóttir Þorkell Þorsteinsson
Guðrún Halldórsdóttir Sigurbjörn Tómasson
Páldís Eyjólfs
MERKISATBURÐIR
1497 Nikulás Kópernikus gerir
fyrstu skráðu stjörnu-
athugun sína.
1573 Sautján fiskibátar með 53
mönnum farast undan
Hálsahöfn í Suðursveit í
Austur-Skaftafellssýslu.
1796 Napóleon Bónaparte gift-
ist fyrstu konu sinni, Jose-
phine de Beauharnais.
1862 Fyrsti bardagi á milli
tveggja brynvarinna skipa,
Monitor og Virginia, er
háður í Bandaríkjunum
og lýkur með jafntefli.
1957 Jarðskjálfti af stærðar-
gráðunni 9,1 verður á
Aleut-eyjum.
2007 Byggingu nýja Wembley-
leikvangsins lýkur.
Heildarfjöldi gesta Listasafns Reykjavíkur á síðasta ári
nam tvö hundruð og tuttugu þúsundum. Tuttugu prósenta
aukning var á milli áranna 2008 og 2009. Aðgangur að safn-
inu var gefinn frjáls 1. janúar 2008. Aðgangurinn hefur auk-
ist jafnt og þétt undanfarin ár, en ef litið er á tímabilið frá 1.
janúar 2007 til ársloka 2009 nemur aukningin 65 prósentum.
Einnig hefur skipulögðum skólaheimsóknum fjölgað og
aðsókn aukist á skipulagða fjölskylduviðburði.
Af þeim þremur safnhúsum sem Listasafn Reykjavík-
ur hefur yfir að ráða, Hafnarhúsi, Kjarvalsstöðum og
Ásmundarsafni, lagði stærstur hluti gestanna á síðasta ári
leið sína í Hafnarhúsið, eða 63 prósent.
Á árinu 2009 voru 33 sýningar í Listasafni Reykjavíkur
en auk þess 200 skipulagðir viðburðir sem tengdust sýning-
um safnsins á einn eða annan hátt eða voru unnir í sam-
starfi við félagasamtök, skóla, myndlistarmenn, tónlistar-
menn og aðra aðila.
Aðsóknarmet í Listasafni Reykjavíkur
HAFNARHÚS Flestir gestir Listasafns Reykjavíkur lögðu leið sína í
Hafnarhús á síðasta ári.
BOBBY FISCHER FÆDDIST Á
ÞESSUM DEGI ÁRIÐ 1943:
„Ég trúi ekki á sálfræði, ég
trúi á góðar hreyfingar.“
Bandaríkjamaðurinn Bobby
Fischer er talinn einn allra
fremsti skákmaður allra tíma.
Hann var íslenskur ríkisborg-
ari síðustu ár ævi sinnar.