Fréttablaðið - 22.03.2010, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 22.03.2010, Blaðsíða 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 „Við vorum í kúrsi í hópavinnu, fjórir nemar í Listaháskólanum og tveir úr Háskólanum í Reykjavík. Afraksturinn varð sjálfvökvandi pottur fyrir kryddjurtir. Hópur- inn valdi að vinna með Bjarkar- ási því þar er allt gert á umhverf- isvænan hátt, mót búin til, unnið með leir og pappír er endurunn- inn, auk þess sem þar er gróður- hús. Því þurfti lítið af aukahlutum, bara blöðru og kveikiþráð.“ Þannig lýsir Embla tilurð pottsins. Potturinn er tvískiptur. Í neðri hlutanum er vatn en í þeim efri mold. Á milli er blaðra sem klippt er í tvennt, þanin út yfir brúnirnar og myndar rönd í miðjunni og eru blöðrurnar í ýmsum litum. Stútur- inn á blöðrunni vísar niður í vatns- ílátið og í gegnum hann liggur kveikurinn. Þannig getur plantan sogið til sín vatn. En hvaða gagn gerir endurunni pappírinn sem Embla minntist á? „Hann er til að halda moldinni á sínum stað meðan potturinn er í pakkningum. Svo þegar fólk er búið að setja fræin í moldina er betra fyrir þau að vera í myrkri fyrstu dagana, þá spíra þau hrað- ar og því er pappírinn lagður yfir.“ En hvar fæst þessi gersemi? „Í Bjarkarási í Stjörnugróf og á fésbókarsíðu GrowMe-hópnum,“ upplýsir listakonan. Til að nýta pottinn lengur þegar fyrsta plantan hefur runnið sitt skeið er hægt að kaupa lítinn kassa með öllu sem þarf til ræktunarinn- ar. Þar er mold, fræ, pappír, blaðra og kveikur. gun@frettabladid.is Lífrænt, grænt og vænt Embla Vigfúsdóttir er á lokaspretti í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands. Meðal þess sem hún hefur tekið þátt í þar er gerð sjálfvökvandi kryddjurtapotts sem framleiddur er í Hæfingarstöðinni Bjarkarási. Hönnunarneminn Embla með timjan í potti. Myndin er tekin í Bjarkarási þar sem framleiðslan er og potturinn góði er til sölu. FréttaBlaðið/GVa GrEnndarStöðVar Sorpu á ������������ svæ�in� ��� ��� ��� ���sins�� �� �v���i s��� ��� �v�i� �á������ Í þá ��á s��j� ���kk���n ú���n��� B�á� �á���� ��k�� vi� p�ppí� �� s�é����� p�pp� �� ��ænn �á���� ��k�� vi� p��s�����ú������ www�� s��p���is Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu Takmarkað magn af IQ-Care heilsudýnum og Proflex stillanlegum rúmum á sértilboði frá framleiðanda Proflex 2x80x200 með okkar bestu IQ-CARE heilsudýnu kr. 339.900 - verð áður kr. 429.000 Proflex 2x90x200 með okkar bestu IQ-CARE heilsudýnu kr. 349.900 - verð áður 459.000 Listh Fermingartilboð sjá www.svefn.is A u g lý si n g a sí m i Allt sem þú þarft… Hágæða kítti fyrir fagmanninn í ýmis verkefni á frábæru verði. Akrýl - Silíkon - Límkítti - Eldvarnarefni - ofl. Járn & Gler ehf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin - 104 Reykjavík S: 58 58 900 www.jarngler.is Den Braven þéttiefni

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.