Fréttablaðið - 22.03.2010, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 22.03.2010, Blaðsíða 48
Mest lesið DREIFING: dreifing@posthusid.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja FRÉTTIR AF FÓLKI sumarferdir.is ...eru skemmtilegri en aðrar Vatnagarðadagar! Nú er fjör hjá Sumarferðum! Við bjóðum viðskiptavinum okkar frítt í glæsilega vatnsrennibrautagarða í Portúgal og Tenerife í sumar ef bókað er frá 20. til 26. mars. Tryggðu þér miða og bókaðu fyrir 26. mars á sumarferðir.is. Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð með einu svefnherbergi á Hótel Apartamentos Presidente. Brottför: 10. júní. 79.900 kr.*fráFlug og gisting í viku og frír aðgöngumiði í Slide&Splash. Portúgal (Praia da Rocha) Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð með einu svefnherbergi á Hótel Parque de las Americas. Brottför: 6. júní. 99.900 kr.*fráFlug og gisting í viku og frír aðgöngumiði í Aqualandia. Tenerife (Playa de las Americas) * Flug, flugvallarskattar, gisting, íslensk fararstjórn og aðgöngumiði í vatnsrennibrautagarða á meðan birgðir endast. Verð miðast við að bókað sé á netinu. Birt með fyrirvara um prentvillur. Ferðaskrifstofa Leyfishafi Ferðamálastofu Stór dagur Það er stór dagur fram undan hjá Friðriki Þór Friðrikssyni og Margréti Dagmar Ericsdóttur því Sólskinsdreng- urinn, heimildarmynd þeirra um einhverfan son Margrétar, verður forsýnd í höfuðstöðvum bandaríska sjónvarpsrisans HBO í New York í dag. Myndin hefur fengið enskt nafn og heitir nú A Mother’s Courage: Talking Back to Autism. Áfall En það verður að teljast eilítið áfall fyrir Friðrik og Margréti að Kate Winslet, Óskarsverðlaunaleikkonan, skuli ekki ætla að mæta en vísir.is greindi frá því á föstudagskvöldið. Breska glanstímaritið Ok! greindi upphaflega frá þessu og tengdi fjarveru hennar um leið við skilnað hennar og leikstjórans Sam Mendes en Winslet er sögumaðurinn í ensku útgáfunni. Hins vegar má fastlega reikna með því Rosie O‘Donnell verði hins vegar meðal gesta en hún hefur séð um að kynna myndina fyrir helstu toppum afþreyingariðn- aðarins. Girnileg staða Árni Snævarr, áður fréttamaður, hefur starfað fyrir Sameinuðu þjóðirnar í Brussel síðustu ár en virðist farinn að huga að heimferð. Á Facebook-síðu sinni lýsir hann vonbrigðum með að hafa ekki fengið tækifæri til að sækja um starf ritstjóra Kastljóssins. Sigmar Guðmundsson var ráðinn í starfið án auglýsingar. „Grínlaust. Þetta er ein girnilegasta staðan í íslenskri fjölmiðlun og mér finnst að það eigi að láta reyna á eitthvað annað en duttlunga,“ sagði Árni. Meðal vina Árna sem lýsa óánægju með vinnubrögð við ráðninguna er Þórunn Sveinbjarnardóttir, þing- maður Samfylkingarinnar. - fgg, pg 1 Þrír flugvellir lokaðir vegna gossins 2 Fóru í leyfisleysi á Fimm- vörðuháls og festu sig 3 Gosið enn í fullum gangi 4 Innanlandsflug liggur niðri til kvölds 5 Lögreglan lokaði veitingastað á Laugavegi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.