Fréttablaðið - 22.03.2010, Blaðsíða 20
22. MARS 2010 MÁNUDAGUR2 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald
Sjálfboðaliðar á vegum Ver-
aldarvina gerðu upp nokkur
niðurnídd hús við Hverfisgötu
á síðasta ári og endurtaka nú
leikinn.
„Við tókum á leigu hús 59 og 61
og ætlum að reka þar litla menn-
ingarmiðstöð helgaða fjölmenn-
ingu og náttúruvernd,“ segir Þór-
arinn Ívarsson, formaður Ver-
aldarvina, félagasamtaka sem
hafa umhverfismál meðal ann-
ars í öndvegi. „Í húsi 61 var mót-
orhjólaklúbburinn Fáfnir áður til
húsa þannig að óhætt er að segja
að starfsemin verði með töluvert
breyttu sniði.“
Framkvæmdir eru þegar hafn-
ar þar sem fyrsti hópur sjálf-
boðaliða tók til starfa í marsbyrj-
un. „Samtals verða þetta átján
hópar og samanstendur hver af
tólf manns,“
segir Þórarinn.
Hann bætir við
að útlending-
ar séu í meiri-
hluta sjálfboða-
liða en nokkrir
þeirra íslensku
séu þátttak-
endur í átaks-
verkefninu Ungt fólk til athafna
sem Vinnumálastofnun stend-
ur fyrir. „Við erum að fá hingað
um 1.400 manns frá öllum heims-
hornum, flesta frá Evrópu. Þetta
er fjölgun frá því í fyrra þegar
1.000 manns komu, en ástæðan
fyrir henni eru góðir dómar sem
við fáum hjá samstarfsaðilum úti
í heimi,“ segir Þórarinn. „Æv-
intýramennskan dregur marga
hingað en hagstætt gengi og falleg
náttúra heilla líka.“
Þórarinn segir vel tekið á móti
sjálfboðaliðunum. „Þeim er séð
fyrir gistingu, bæði í bænum og
úti á landi þar sem við erum með
önnur verkefni í gangi og sveitar-
félögin greiða niður fæðiskostn-
að fyrir fólkið. Reykjavíkurborg
hefur hins vegar ekki viljað borga
mat fyrir það,“ bendir hann á en
segist þakklátur fyrir málningu
sem borgin styrkti verkefnið um
síðast.
Sjálfboðaliðarnir verða að
störfum fram í október á þessu
ári, hver hópur í tvær vikur í
senn. Auk þess að standsetja húsin
tvö ætla þeir að að bæta frekar
ímynd svæðisins með því að taka
fyrir alla Hverfisgötuna, þvergöt-
ur sem liggja upp að Laugavegi og
sinna léttum viðhaldsverkefnum
fyrir nágrannana. „Við buðum þá
þjónustu í fyrra og var vel tekið
og ætlum því að gera þetta aftur í
ár.“ - rve
Fjölmenning í Fáfnishúsi
Antonio Perez, 29 ára, er fæddur og
uppalinn í Madríd á Spáni. Hann kom
hingað fyrir fjórum árum til að starfa
með Veraldarvinum og líkaði svo
vel að hann settist að á Íslandi. „Ég
er mjög stoltur af því að starfa með
Veraldarvinum og sér í lagi að taka
þátt í því að standsetja þessi gömlu
hús og bæta ímynd götunnar. Ég vona
að þetta verði fleirum hvatning til
góðra verka.“
Matthew Hilton, 23 ára, er kominn
hingað til lands frá Mississippi í
Bandaríkjunum til að starfa með
Veraldarvinum. „Ég er alveg heillaður
af náttúrunni. Ég var búinn að heyra
vel látið af henni en hún er engu lík og
veðráttan skemmtilega síbreytileg,“
segir Matthew, sem býr með 25 sjálf-
boðaliðum og nýtur samvistanna. „Það
er gaman að kynnast fólki frá þessum
ólíku löndum.“
Kana Habino, 21, frá Tókýó í Japan ætlar
sér að starfa við vistvæna ferðaþjónustu
í framtíðinni og telur starfið með Verald-
arvinum ágætan undirbúning fyrir það.
„Ég ætla að vinna á alþjóðlegum mark-
aði þannig að þetta á eftir að nýtast mér
vel,“ segir Kana, sem fann verkefnið á
vefsíðu samstarfsfélags Veraldarvina í
Japan. Kana hefur áður unnið sjálfboða-
störf í Indónesíu, þar sem hún kenndi
hrísgrjónarækt.
Sjálfboðaliðar á vegum Veraldarvina vinna nú hörðum höndum að því að bæta ímynd Hverfisgötu með endurbótum á niðurnídd-
um húsum. „Í húsi 59 verður rekin verslun þar sem selt verður grjót úr fjörum Íslands og hlutir sem erlendir sjálfboðaliðar koma
með sér til landsins. Allur ágóði rennur óskiptur til verkefna sem Veraldarvinir skipuleggja á eyjunni Tierra Bomba í Karíbahafinu
fyrir utan Cartagena De Indias í Kólumbíu. Þar er ekkert ferskt vatn og mikil fátækt,“ segir Þórarinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þórarinn Ívarsson
● YNDISLEGA RÓSIN MÍN Rósaklúbbur Garðyrkjufélags Íslands
er hópur áhugafólks um ræktun rósa, en markmið klúbbsins er að auka
ræktun og þekkingu á rósum. Starf Rósaklúbbsins felst
meðal annars í því að afla reynslu á áður óreynd-
um rósayrkjum, safna saman þekkingu í rækt-
un rósategunda, mynda samband við rósafé-
lög í nágrannalöndunum, standa fyrir rósa-
skoðunarferðum og efla alla menningu sem
vegsamar rósir. Ekki síst er stuðlað að því
að Rósaklúbburinn verði vettvangur til
fræðslu og gleði fyrir félagsmenn sem hafa
áhuga á rósum.
Heimild: Garðyrkjufélag Íslands
● ALHLIÐA GLUGGAÞVOTTUR Fyrirtækið Gluggaþvottur ehf.
hefur verið starfsrækt síðan 1998 og sérhæfir sig í alhliða gluggaþvotti,
bæði fyrir fyrirtæki
og heimili. Þór Beck,
rekstrarstjóri fyrir-
tækisins, segir nóg
að gera, aðeins hafi
dregið úr viðskiptun-
um í kringum hrun
en nú sé allt komið á
fullt skrið. Margir séu
að panta þvott fram
í tímann og sumir,
einkum og sér í lagi
fyrirtæki, fái reglulega
þvott, allt að nokkr-
um sinnum í mánuði. Íbúðareigendur láti sér yfirleitt nægja að fá einn og
upp í þrjá þvotta yfir árið. Fyrirkomulagið segir hann einfalt. Hægt er að
óska eftir tilboði og mæta þá starfsmenn Gluggaþvottar til að taka verk-
ið út endurgjaldslaust. Náist samkomulag er hafist handa og er allt inni-
falið. Þá er hægt að þurrka af gluggakörmum sé þess óskað. Allar nánari
upplýsingar á www.gluggaþvottur.is.