Fréttablaðið - 22.03.2010, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 22.03.2010, Blaðsíða 21
FASTEIGNIR.IS 22. MARS 201012. TBL. Fasteignamarkaðurinn er með á skrá tveggja hæða parhús sem er 174,2 fermetrar og með bílskúr við Álfhólsveg 69 í Kópavogi. Á neðri hæð er gengið inn í flísalagða forstofu með fataskápum. Inn af henni er þvottaherbergi með inn- réttingu og innfelldum vaski. Hol er flísalagt. Bað- herbergi er flísalagt, með flísalögðum sturtuklefa og hornbaðkeri með nuddi. Barnaherbergi eru tvö og bæði parketlögð. Á neðri hæð er einnig rúmgott hjónaherbergi, þaðan sem útgengt er á viðarverönd með skjólveggjum. Gengið er inn um steyptan stiga á efri hæðina. Komið er á parketlagðan stigapall. Gestasnyrting er flísalögð í gólf. Sjónvarpsherbergi er parketlagt með útgengi á stórar og skjólgóðar svalir til suðurs. Eld- hús er parketlagt og með borðaðstöðu. Inn af því er búr með glugga og hillum. Stofur eru rúmgóðar, sam- liggjandi og með útsýni að Snæfellsjökli, Esjunni og að Grafarholti. Bílskúr er með hita, rafmagni og rennandi vatni. Á honum eru dyr, gluggar og rafmagnsopnari. Húsið er í góðu ásigkomulagi að utan og sömuleið- is þakið. Því fylgir falleg lóð. Þrjú sérbílastæði eru á lóð hússins. Innkeyrsla er hellulögð og upphituð. Stéttir eru framan við húsið. Verönd og skjólveggir eru sunnan við það. Vel staðsett hús með fallegu útsýni Húsinu fylgir meðal annars bílskúr, upphituð innkeyrsla og lóð í góðu ásigkomulagi. MYND/ÚR EINKASAFNI Falleg og rúmgóð 76,3 fm 3ja herb. íbúð á 3.hæð (efstu) í snyrtilegu fjölbýli. Eignin skiptist. Anddyri/gangur, tvö svefnher- bergi, baðherbergi, eldhús og stofa. Suður svalir og endurnýjað eldhús. Geymsla og þvottahús í kjallara. Verð aðeins 15,9 millj. Uppl. veitir Elías lögg.fasteignsali í síma 551-3800 eða 898-2007. Skúlagata - Laus. HÚSAVÍK - GOTT ORÐSPOR - TRAUST VIÐSKIPTI LÆKK AÐ V ERÐ sími 483 5800 Tækifæri í Hveragerði. Höfum í sölu atvinnu/íbúðar- húsnæði við aðalgötu bæjar- ins. Söluturn er á jarðhæð og á annarri hæð er íbúð. Góð fjárfesting og ýmis skipti koma til greina. Verð 36 millj. Austurmörk 4, Hveragerði, www.byrfasteign.is Eitt af fallegustu húsum Hveragerðisbæjar til sölu! Soffía Theodórsdóttir , löggiltur fasteignasali. Breiðamörk

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.