Fréttablaðið - 22.03.2010, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 22.03.2010, Blaðsíða 36
20 22. mars 2010 MÁNUDAGUR BAKÞANKAR Júlíu Margrétar Alexanders- dóttur ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Ég gat ekki ákveðið hvort ég vildi verða taugasjúk- dómafræðingur eða sér- fræðingur í endaþarms- meinum. Þannig hef ég alltaf verið, þetta er alltaf annaðhvort í ökkla eða eyra hjá mér. Þú spilar Old- boys-fótbolta, ekki satt Pond- us? Þá ættirðu að vera góður í að teygja. Já! Ég er nokkuð liðugur! Við skulum prófa svolítið. Geturðu tekið upp þennan fimmtíukall án þess að beygja lappirnar? Fáðu þér sæti, læknirinn tekur á móti þér eftir augnablik Jájá! Þetta er alveg að koma! Halló? Palli, þetta er pabbi. Uhm. Má ég tala við mömmu þína? Uhm. Sitt lítið af hvoru. Er Palli nývaknaður eða var hann að vakna úr dái? Ááá! Ááá! Ég gerði þetta ekki. HVAÐ ER Í MATINN? Á kynnir skemmtilegan sérvef um matargerð og hagkvæm matarinnkaup. Með því að nota einfalt og skemmtilegt kerfi útbúum við handa þér matseðil eftir þínu höfði. Kynntu þér ótrúlegan fjölda gómsætra uppskrifta á Hvað er í matinn? á ...ég sá það á visir.is Í rúmt ár hef ég átt í erfiðleikum með svefn, það erfitt að eftir svefnlausar vikur, skrifaði læknir upp á svefnlyf sem hefur hjálpað mér mikið enda svefn lykillinn að góðri andlegri heilsu. VERANDI B-manneskja, sem myndi helst vilja draga björg í bú eftir klukkan 10 á kvöldin, hefur þetta þó valdið eilítilli tog- streitu milli kvöldvenja minna og svefn- lyfjanna. Þannig er mælt með því að eftir inntöku „immovan“ drífi fólk sig upp í rúm og leggist strax til hvílu því annars er hætt við að fólki endi ráfandi um íbúðina, teljandi sig vel á sig komið, undir áhrifum þríhyrningslyfs. B- manneskjur vilja hins vegar bara aðeins kíkja á sjónvarpið, aðeins fara í tölvuna, aðeins hringja eitt símtal og fá sér smávegis kex. AUK þess að eiga erfitt með að drífa mig upp í rúm á skikkanlegum tíma, virkar svefnlyfið sem nokkurs konar sannleikslyf þannig að bæði fjúka hvítar, lífsnauðsynlegar lygar út í kvöldgoluna og upplýsingaflæðið er óheft og frjálst. Þannig vissu allir á heimilinu hvað þeir myndu fá í jólagjöf mörgum vikum áður en pakkarnir voru opnaðir, hvað gjafirnar hefðu kostað og hvar þær voru geymdar. Af hálfri, sakleysislega útlítandi hvítri pillu breyttist ég því mörg kvöld í moggabloggara heimilisins – óstöðvandi í óþolandi mali um allt og ekkert, þó að vísu einstaklega elskuleg að mér er sagt. FORELDRAR mínir báðu mig fyrir skemmstu vinsamlegast að hætta að hringja í sig eftir klukkan tíu á kvöldin til að mala, þar sem ég haldi fyrir þeim vöku, og minn nánasti hringur símavina svarar mér ekki þegar ég hringi svo seint núorðið enda vil ég bara tala og tala, gefa upp- skriftir og húsráð og uppskrift sem ég gaf vinkonu minni óumbeðin í einu af þessum símtölum er orðin fræg – túnfisksalat a la Immoven – þar sem ég lýsti skurði græn- metisins af stakri nákvæmni í smáatriðum sem og hvernig olíunni skyldi hellt yfir sal- atið. Skemmst er frá því að segja að þegar umrætt salat kom til umræðu daginn eftir í allsgáðu ástandi mínu, mundi ég í fyrstu ekkert einu sinni eftir að hafa bragðað eða eldað slíkt salat. Eftir mikil heilabrot gat ég þó rakið salatið sautján ár aftur í tímann. Í LJÓSI þessa varð mér hugsað til embætt- is sérstaks saksóknara sem nú reynir af öllum mætti að fá fjármálafursta til að rifja upp allt sem þeir segjast hafa gleymt. Hálf still nacht fengi þá kannski til að muna eftir vafasömum milljarða millifærslum og heil gerði frásögnina eflaust enn meira djúsí. Kvöldstund sannleikans

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.