Fréttablaðið - 22.03.2010, Page 36
20 22. mars 2010 MÁNUDAGUR
BAKÞANKAR
Júlíu
Margrétar
Alexanders-
dóttur
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ég gat ekki ákveðið hvort
ég vildi verða taugasjúk-
dómafræðingur eða sér-
fræðingur í endaþarms-
meinum. Þannig hef ég
alltaf verið, þetta er alltaf
annaðhvort í ökkla eða
eyra hjá mér.
Þú spilar Old-
boys-fótbolta,
ekki satt Pond-
us? Þá ættirðu
að vera góður í
að teygja.
Já!
Ég er
nokkuð
liðugur!
Við skulum
prófa
svolítið.
Geturðu tekið upp
þennan fimmtíukall
án þess að beygja
lappirnar?
Fáðu þér sæti,
læknirinn tekur
á móti þér eftir
augnablik
Jájá! Þetta
er alveg að
koma!
Halló? Palli,
þetta er
pabbi.
Uhm.
Má ég
tala við
mömmu
þína?
Uhm.
Sitt lítið
af hvoru.
Er Palli nývaknaður
eða var hann að vakna
úr dái?
Ááá!
Ááá!
Ég gerði
þetta
ekki.
HVAÐ ER Í MATINN?
Á
kynnir skemmtilegan sérvef um
matargerð og hagkvæm matarinnkaup.
Með því að nota einfalt og skemmtilegt
kerfi útbúum við handa þér matseðil eftir
þínu höfði.
Kynntu þér ótrúlegan fjölda gómsætra
uppskrifta á Hvað er í matinn? á
...ég sá það á visir.is
Í rúmt ár hef ég átt í erfiðleikum með svefn, það erfitt að eftir svefnlausar
vikur, skrifaði læknir upp á svefnlyf
sem hefur hjálpað mér mikið enda svefn
lykillinn að góðri andlegri heilsu.
VERANDI B-manneskja, sem myndi helst
vilja draga björg í bú eftir klukkan 10 á
kvöldin, hefur þetta þó valdið eilítilli tog-
streitu milli kvöldvenja minna og svefn-
lyfjanna. Þannig er mælt með því að eftir
inntöku „immovan“ drífi fólk sig upp í
rúm og leggist strax til hvílu því annars
er hætt við að fólki endi ráfandi um
íbúðina, teljandi sig vel á sig komið,
undir áhrifum þríhyrningslyfs. B-
manneskjur vilja hins vegar bara
aðeins kíkja á sjónvarpið, aðeins fara í
tölvuna, aðeins hringja eitt símtal og fá
sér smávegis kex.
AUK þess að eiga erfitt með að drífa
mig upp í rúm á skikkanlegum tíma,
virkar svefnlyfið sem nokkurs konar
sannleikslyf þannig að bæði fjúka
hvítar, lífsnauðsynlegar lygar út í
kvöldgoluna og upplýsingaflæðið
er óheft og frjálst. Þannig vissu
allir á heimilinu hvað þeir
myndu fá í jólagjöf mörgum
vikum áður en pakkarnir
voru opnaðir, hvað gjafirnar
hefðu kostað og hvar þær voru
geymdar. Af hálfri, sakleysislega útlítandi
hvítri pillu breyttist ég því mörg kvöld í
moggabloggara heimilisins – óstöðvandi í
óþolandi mali um allt og ekkert, þó að vísu
einstaklega elskuleg að mér er sagt.
FORELDRAR mínir báðu mig fyrir
skemmstu vinsamlegast að hætta að
hringja í sig eftir klukkan tíu á kvöldin til
að mala, þar sem ég haldi fyrir þeim vöku,
og minn nánasti hringur símavina svarar
mér ekki þegar ég hringi svo seint núorðið
enda vil ég bara tala og tala, gefa upp-
skriftir og húsráð og uppskrift sem ég gaf
vinkonu minni óumbeðin í einu af þessum
símtölum er orðin fræg – túnfisksalat a la
Immoven – þar sem ég lýsti skurði græn-
metisins af stakri nákvæmni í smáatriðum
sem og hvernig olíunni skyldi hellt yfir sal-
atið. Skemmst er frá því að segja að þegar
umrætt salat kom til umræðu daginn eftir
í allsgáðu ástandi mínu, mundi ég í fyrstu
ekkert einu sinni eftir að hafa bragðað eða
eldað slíkt salat. Eftir mikil heilabrot gat ég
þó rakið salatið sautján ár aftur í tímann.
Í LJÓSI þessa varð mér hugsað til embætt-
is sérstaks saksóknara sem nú reynir af
öllum mætti að fá fjármálafursta til að rifja
upp allt sem þeir segjast hafa gleymt. Hálf
still nacht fengi þá kannski til að muna eftir
vafasömum milljarða millifærslum og heil
gerði frásögnina eflaust enn meira djúsí.
Kvöldstund sannleikans