Fréttablaðið - 22.03.2010, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 22.03.2010, Blaðsíða 18
Inga Elín hefur unnið sér ýmis- legt til frægðar. Hún hefur unnið sem keramiker og gler- listamaður í tuttugu ár og hannaði meðal annars Ístón- inn, verðlaunagrip íslensku tón- listarverðlaunanna. Svo muna eflaust margir eftir því þegar Elton John keypti af henni skúlptúr og skál. Nú hefur hún hannað bráðskemmtilega ljósa- krónu úr postulíni í sam- starfi við Lumex. „Mér finnst postulín svo skemmti- legt því það er næstum gegn- sætt ef maður hefur það þunnt,“ segir Inga Elín en ljósið Ljóri er nokkurs konar sjálfstætt framhald af kerta- stjökum hennar sem hún kallar skeljar. „Ég fékk fag- menn í Lúmex til liðs við mig við þetta verkefni því ég hef ekkert vit á rafmagni,“ segir hún og hlær. Henni fannst samstarfið ganga vel og skemmtilegt að blanda saman hönnun og vísindum. Inga Elín sækir oft hugmyndir sínar í gamla íslenska muni. Þannig er nafnið Ljóri einnig fengið úr fortíðinni en það var notað yfir glugga á baðstofum til forna. Ljóri merkir einnig fyrstu skímu komandi dags. Ljósið var frumsýnt á Hönn- unarMars um helgina en verður áfram til sýnis bæði í Fógetastof- unni í Aðalstræti 10 og í Lumex í Skipholti. solveig@frettabladid.is Fyrsta skíma komandi dags Inga Elín Kristinsdóttir hefur hannað falleg keramikljós í samstarfi við Lumex en þau voru frumsýnd á HönnunarMars. Ljóri kallast ljósin sem öll eru handgerð úr þunnu postulíni. Skeljar kallast þessir kertastjakar en þaðan fékk Inga Elín hugmyndina að Ljóra. Ljós Ingu Elínar er bæði hægt að fá stök og mörg saman. Þau verða til sýnis í Lumex og í Kraum í Aðalstræti. FRÉTTABLAIÐ/GVA Inga vinnur mikið með postulín. REGNFÖT sem farið hafa í sundur í límingunni má laga á auð- veldan hátt. Leggja skal sárið saman og setja álpappír beggja megin við það og strauja rólega yfir með straujárni. Hjá Leiðbeiningastöð heimilanna er veitt ráðgjöf um flest það sem lýtur að heimilishaldi, allt frá matreiðslu og bakstri til þrifa og meðferðar matvæla. www.leidbeiningastod.is Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is | www.raudakrosshusid.is | Opið virka daga kl. 12-17 Ókeypis námskeið og ráðgjöf Mánudagur 22. mars Miðvikudagur 24. mars Fimmtudagur 25. mars Qi – Gong - Viðar H. Eiríksson kennir fólki að afla, varð- veita og dreifa orku um líkamann. Tími: 12.00-13.00. Gönguhópur - Klæddu þig eftir veðri. Tími: 13.00 -14.00. Íslenskuhópur - Hefur þú lært íslensku en þarft að æfa þig í að tala? Tími: 13.00 -14.00. Hvernig stöndumst við álag - Hvað fær okkur til að pirrast og reiðast yfir smámunum? Tími: 14.00 -15.30. Vinnum saman - Ný viðhorf (Býflugurnar) - Vertu með í skapandi hópi atvinnuleitenda. Tími: 14.00-16.00 Skiptifatamarkaður - Barnaföt - Tími: 16.00 -18.00. Fluguhnýtingahópur - Komdu með fluguhnýtinga- stand ef þú getur. Tími: 12:00 -13.30. Föndur, skrapp myndaalbúm og kort - Gott er að hafa skæri meðferðis. Tími: 12:00 -14.00. Saumasmiðjan - Breytt og bætt. Tími: 13.00-15.00. Þýskuhópur - Í þessarri viku ræðum við á þýsku um hefðir. Tími: 14.00-14.45. Spænskuhópur - Við æfum okkur í að tala saman á spænsku um fjölskyldur. Tími: 15:00 -15.45. Jóga - Viltu prófa jóga? Tími: 15.00-16.00. Skip án skipstjóra - Einstaklingur án markmiða er eins og skip án skipstjóra. Tími: 12.30-13.30. Gönguhópur - Klæddu þig eftir veðri. Tími: 12.30 -13.30. Bingó - Veglegir vinningar, vöfflur með rjóma og heitt á könnunni. Tími: 14.00 -15.00. Hláturjóga - Viltu losa um spennu? Tími: 15.30-16.30. Föstudagur 26. mars Allir velkomnir! Tölvuaðstoð - Persónuleg aðstoð. Komdu með fartölvu ef þú getur. Tími: 13.30-15.30. Áhugasviðsgreining - Könnun og fagleg ráðgjöf. Skráning nauðsynleg. Tími: 14.00 -16.00. Ráðgjöf fyrir innflytjendur - Sérsniðin lögfræðiráð- gjöf og stuðningur við innflytjendur. Tími: 14.00 -16.00. Briddsklúbbur - Hefur þú gaman af bridds? Langar þig að læra bridds? Tími: 14.00-16.00. Næringarlæsi og fæðuval - Fyrirlestur sniðinn að því að hjálpa fólki að velja hollt fæði, allt frá uppskrifta- bókinni að búðarkassanum. Tími: 14.30 -15.30. Þriðjudagur 23. mars Rauðakrosshúsið Líðan atvinnuleitenda - Umræður og vinnuhópar Félagsvinir atvinnuleitenda stjórna. Tími: 12.30-14.00. Fáðu félagsskap og stuðning Samskipti við börn á erfiðum tímum - Dr. Sigrún Júlíusdóttir félagsráðgjafi fjallar um hvað skiptir mestu máli fyrir börn í kreppu. Tími: 12.30-13.30. Prjónahópur - Komdu og prjónaðu. Tími: 13.00 -15.00. Enskuhópur - Æfðu þig í að tala ensku. Tími: 14.00 -15.00. EFT og djúpslökun - Viðar Aðalsteinsson EFT sérfræð- ingur kennir okkur að innleiða EFT tæknina (Emotional Freedom Techniques) í daglegt líf okkar og umbreyta heftandi viðhorfum. Tími: 15.00 -17.00. Skákklúbbur - Komdu og tefldu. Tími: 15.30 -17.00.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.