Fréttablaðið - 23.03.2010, Side 27
ÞRIÐJUDAGUR 23. MARS 2010 7
Fólk er gjarnt á að nota tím-
ann sem það hefur meðan það
ekur milli staða til að tala í sím-
ann. Það er þó ólöglegt nema
með notkun handfrjáls búnað-
ar. Hinn 1. nóvember árið 2001
voru sett lög þar sem bannað er
að tala í farsíma undir stýri en í
þeim segir: „Ökumanni vélknú-
ins ökutækis er við akstur óheim-
ilt að nota farsíma án handfrjáls
búnaðar.“ Ári síðar var ákveðið
að sekt lægi við því ef lögin yrðu
brotin að upphæð 5.000 krónur.
Rætt hefur verið um hvort
ekki ætti að banna alfarið að
talað sé í síma við akstur öku-
tækis. Rökin eru þau að það að
halda símanum við eyrað sé ekki
það sem truflar aksturinn mest
heldur símtalið sjálft og það sem
rætt er um í símann. Við akstur
sé allrar athygli þörf og best að
stöðva einfaldlega bifreiðina ef
tala þarf í símann. - rat
Sá tími er liðinn þegar einung-
is var hægt að tala sín á milli
í símanum. Nettenging og
staðsetningarbúnaður er orð-
inn hluti af kröfum neytenda
en Nova selur meðal annars
iPhone, Nokia og Huawei-
farsíma.
„iPhone-síminn er svo miklu
meira en bara sími, það að hægt
sé að tala í hann er orðið auka-
atriði,“ segir Harald Pétursson,
sölustjóri hjá Nova í Lágmúla.
„Viðskiptavinurinn er nánast
kominn með ferðavél í hendurnar
og getur vafrað á netinu, sótt vef-
póstinn sinn í símann og eins er
hægt að sækja hundruð þúsunda
forrita úr búðinni í símann.“
Aðdráttarafl iPhone-símans
segir Harald liggja í stórum
snertiskjá og notendavænu við-
móti og telst honum til að not-
endur hér á landi skipti þúsund-
um. „Við hjá Nova höfum einnig
verið í fararbroddi hvað varðar
hagkvæma verðskrá og látum eitt
gígabæt fylgja til allra iPhone-
notenda sem eru hjá Nova. Í frels-
inu er hægt að nota netið fyrir 19
krónur á daginn.“
Harald segir stóra snertiskjái
og nettengingu það sem viðskipta-
vinurinn leiti eftir í dag í sím-
tækjum. Nokia 5230 uppfyllir þær
kröfur og í honum er fullkominn
staðsetningarbúnaður. „Ég held
að ég geti fullyrt að Nokia 5230
sé ódýrasta gps-græjan sem fæst
á markaðnum í dag. Í apríl verður
einnig komið fullkomið Íslands-
kort í símann sem allir Nokia-not-
endur geta sótt frítt. Í símanum er
til dæmis hægt að sjá hvar þú ert
staddur og hvaða hótel eða búðir
eru í kring og í hvaða fjarlægð
þær eru frá þér. Síminn segir þér
svo nákvæmlega hvaða leið á að
ganga.“
Nova hefur tekið símtæki frá
kínverska framleiðandanum Hu-
awei í sölu en merkið er ráðandi á
Evrópumarkaði hvað varðar net-
módem fyrir fartölvur. „Við eigum
eftir að sjá meira af þessu merki
í framtíðinni. Huawei-pungurinn
virkar mjög vel og nánast öll sum-
arhúsahverfi á Íslandi eru orðin
pungvædd með pung frá Huawai.
Fólk hefur hann með sér í tösk-
unni og getur þá skroppið á netið
hvar sem er.“
farsímar ●
Harald Pétursson, sölustjóri hjá Nova, segir farsímann orðinn að fartölvu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sekt liggur við því að tala í farsíma meðan á akstri stendur.
Bannað að tala í farsíma undir stýri
Miklu meira en bara sími
● TÆKNINÝJUNGAR Þessi glæsilega
græja gengur undir heitinu iMovee mobile
digital TV og er á meðal þess sem var til sýnis
á ráðstefnunni International Consumer Elect-
ronics Show 2010. Hin myndin sýnir Regen
ReNu solar iPhone og iPhod í hleðslu. Ráðstefn-
an er árleg og var hún að þessu sinni haldin í
Las Vegas í Bandaríkjunum. Yfir 2.500 aðilar sýndu
ýmsar spennandi tækninýjungar og er talið að í
kringum 110.000 manns hafi sótt ráðstefnuna í ár.
Verslanir Nova eru í Kringlunni, Smáralind, Lágmúla,
Glerártorgi Akureyri og MM Selfossi | Þjónustuver 519 1919
www.nova.is | Facebook | Twitter
Stærstiskemmtista›u
r
í heimi!
d
a
g
u
r
&
s
t
e
in
i
2.000kr. notk
un
á mánuði í
18 mán. fylg
ir!
Gildir í áskr
ift og frelsi.
Mánaðarleg afborgun greidd með kreditkorti + 250 kr. /mán. greiðslugjald. Staðgreitt: Þá þarf ekki kreditkort.
d
a
g
u
r
&
s
t
e
in
i
1.000kr. notkun á mánuði í 12 mán. fylgir!Gildir í áskrift og frelsi.
1.000kr. notkun á mánuði í 12 mán. fylgir!Gildir í áskrift og frelsi.
iPhone 3GS
Flottasti
snertisíminn
Útborgun: 0 kr.
Afborgun: 9.900 kr. á mán.
í 18 mán. 2.000 kr. notkun
á mán. í 18 mán. fylgir.
33.990 kr./ stgr.
Nokia 5230
Vinsælasti
snertisíminn
Útborgun: 9.990 kr.
Afborgun: 2.000 kr. á mán.
í 12 mán. 1.000 kr. notkun
á mán. í 12 mán. fylgir.
24.000 kr./ stgr.
Huawei U7510
Ódýrasti
snertisíminn
Útborgun: 0 kr.
Afborgun: 2.000 kr. á mán.
í 12 mán. 1.000 kr. notkun
á mán. í 12 mán. fylgir.
2 GB
minnisk
ort
fylgir!
1.990 kr. á mánuði í 12 mánuði
+ 250 kr. greiðslugjald,
greitt m/kreditkorti.
3G pungur og internet áskrift
1.990 kr./mán.
Allt að 5 Mb/s hraði og 5 GB
netnotkun innifalin á mánuði.
Vertu í þráðlausu
háhraða sambandi
hvar sem er!