Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.03.2010, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 23.03.2010, Qupperneq 40
24 23. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR BOUNTY HUNTER kl. 5.30 - 8 - 10.25 BOUNTY HUNTER LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.25 THE GREEN ZONE kl. 8 - 10.30 THE LIGHTNING THIEF kl. 5.40 SHUTTER ISLAND kl. 8 LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 5 - 8 ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 kl. 3.45 íslenskt tal AVATAR 3D kl. 4.40 Síðustu sýningar 117.000 GESTIR SÍÐUSTU SÝNINGAR 650 650650650 650 650 650 650 650 650 650650 Gildir ekki í Lúxus 650 SÍMI 564 0000 7 7 12 10 16 14 L 10 SÍMI 462 3500 12 16 10 12 14 L LOVELY BONES kl. 5.30 - 8 - 10.30 DAYBREAKERS kl. 8 - 10.15 THE GOOD HEART kl. 5.50 - 10.30 PRECIOUS kl. 5.30 - 8 LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 10.30 MAMMA GÓGÓ kl. 6 Síðustu sýningar SÍMI 530 1919 16 10 16 16 L DAYBREAKERS kl. 5.45 - 8 - 10.15 THE GOOD HEART kl. 5.50 - 8 - 10.10 FROM PARIS WITH LOVE kl. 5.50 - 8 - 10.10 LEGION kl. 8 - 10.15 NIKULÁS LITLI kl. 6 SÍMI 551 9000 .com/smarabio AÐDÁENDUR GETA UNNIÐ BÍÓKORT ÚT ÁRIÐ, BOÐSMIÐA Á FORSÝNINGAR O.M.FL. 7 12 16 BOUNTY HUNTER kl. 6 - 8 - 10.10 THE GREEN ZONE kl. 8 - 10.10 FROM PARIS WITH LOVE kl. 6 Þ.Þ. - Fbl T.V. - kvikmyndir.isÓ.H.T. - Rás2 S.V. - MBLÓ.H.T. - Rás-2 EMPIRE ROGER EBERT -S.V., MBL STANLEY TUCCI RACHEL WEISZ SUSAN SARANDON FRÁ ÓSKARSVERÐLAUNALEIKSTJÓRANUM PETER JACKSON BYGGÐ Á METSÖLUBÓKINNI SVO F VINSÆLAS TA MYNDIN Í DAG Susan Sarandon Mark Wahlberg Stanley Tucci Rachel Weis  empire 16 16 Stórkostlegt mynd frá DISNEY fyrir alla fjölskyldunaÁLFABAKKA KRINGLUNNI AKUREYRI SELFOSSI BOUNTY HUNTER kl. 5:40 - 8 - 10:20 BOUNTY HUNTER kl. 8 - 10:20 THE BLIND SIDE kl. 5:20 - 8 - 10:40 ALICE IN WONDERLAND 3D kl. 5:40(3D) ALICE IN WONDERLAND kl. 5:40 - 8 - 10:20 THE REBOUND kl. 8 - 10:20 BROTHERS kl. 10:20 BROTHERS kl. 5:50 VALENTINE ‘S DAY kl. 8 BJARNFREÐARSON kl. 5:50 THE LOVELY BONES kl. 5:30 - 8 - 10:30 THE BLIND SIDE kl. 5:50D - 8:10D ALICE IN WONDERLAND 3D kl. 5:50(3D) - 8:10(3D) - 10:30(3D) SHUTTER ISLAND kl. 10:30 LEGION kl. 8 SHUTTER ISLAND kl. 10:20 BROTHERS kl. 8 LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 10:20 ALICE IN WONDERLAND kl. 5:40 SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM M/ ísl. Tali kl. 6ALICE IN WONDERLAND - 3D kl. 8 (3D) AVATAR - 3 D kl 10:20 (3D) THE BLIND SIDE kl. 8 - 10:20 INVICTUS kl 10:20 12 12 12 12 14 12 L L L L L L L L LL 10 10 10 10 ÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í SAMBÍÓUNUM Í DAG KR. 600 GILDIR EKKI Í VIP, Á ÍSLENSKAR MYNDIR OG Á MYNDIR Í 3D OG BEINAR ÚTSENDINGAR TILBOÐ TILBOÐ - bara lúxus Sími: 553 2075 BOUNTY HUNTER kl. 5.45, 8 og 10.10 7 GREEN ZONE kl. 5.45, 8 og 10.10 12 FROM PARIS WITH LOVE kl. 8 og 10 16 IT’S COMPLICATED kl. 5.45 12 ÞRIÐJUDAGUR TILBOÐSDAGUR TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR T.V. -KVIKMYNDIR.IS 600 kr. 600 kr. 600 kr. 600 kr. Leikhús ★★★★ Gauragangur Eftir Ólaf Hauk Símonarson Leikmynd: Snorri Freyr Hilmars- son. Búningar: Filippía Elísdóttir. Lýsing: Björn Bergsteinn Guð- mundsson. Hljóðmynd: Horbjörn Knudsen. Myndband: Henrik Linnet. Dans og hreyfingar: Mar- grét Bjarnadóttir. Leikgervi: Elín S. Gísladóttir. Tónlistarstjóri: Jón Ólafsson. Leikstjóri: Magnús Geir Þórðarson. Það var dúndurstuð í Borgarleik- húsinu undir tónum hljómsveitar- innar Ný dönsk á föstudagskvöldið þegar Gauragangur Ólafs Hauks Símonarsonar gekk í endurnýjun lífdaga með nýrri áhöfn á stóra sviðinu. Við fáum að kynnast Ormi Óðinssyni sem Guðjón Davíð Karlsson leikur af miklum móð. Ormur er uppátektarsamur ungur maður, líklega óþolandi ef hann væri ekki um leið svo viðkvæm- ur og hjartahlýr. Ungmennin í dag þekkja sig máské ekki í þeim skáldakomplexum sem heltaka hann, hjá þeim ríkja kannski fremur draumar er tengjast tækni nútímans en engu að síður er ólgan í brjósti hins unga óharðnaða ungl- ings ávallt hin sama. Sú kynslóð sem nú er komin á miðjan aldur þekkti Orm Óðinsson, bæði úr bókunum og hinni stórgóðu sýn- ingu Þjóðleikhússins með Ingvar Sigurðsson í hlutverkinu. Ormur vinnur með skólanum hjá gömlum fornbókasala sem verður besti vinur hans. Ormur er kjaftfor í skólanum og álítur það heftandi fyrir snilldina að þurfa að vera í skóla. Skáldið verður að þroskast. Kennarinn skilur hann um leið og hann má ekki skilja hann. Skóla- stjórinn sem rekur hann, skil- ur hann um leið og hann má ekki skilja hann. Reglur eru reglur. Sá sem alls ekki skilur hann er leik- fimiskennarinn sem er erkitýpa leikfimiskennara þess tíma, það er einhvers konar herbúðarstjóri sem þrífst bara á því að pína og láta hlýða sér, þar sem allt gengur út á að hlaupa, svitna, djöflast til þess eins að þjást. Ormur býr á heimili móður sinn- ar, sem er fráskilin með þrjú börn og á í ástarsambandi við sjómann sem skvettir svolítið í sig. Faðir- inn gekk út af heimilinu og náði sér í snobbkerlingu og skildi móð- urina eftir eina með börnin þrjú, þar af eina dóttur sem er mis- þroska. Ormur er í vinahópi sem samanstendur af nokkrum mjög svo meðvituðum krökkum, róttæk- um og ljóðelskum. Allir í bekknum eru þó ekki þannig heldur eru þar einnig fulltrúar borgaralegra gilda ekki ósvipaðir pótintátum sem við þekkjum úr bönkum allra síðustu missera. Leikhússtjórinn Magnús Geir Þórðarson stillir hér saman strengi sem verða að stórgóðri skemmtun sem einkennist fyrst og fremst af frábærum rytma eða takti þar sem tónlistin drífur leikinn áfram. Jóhann Sigurðarson í hlutverki Gumma leikfimiskennara (sem sumir í salnum þóttust þekkja þ.e. fyrirmyndina) var tryllingslega skemmtilegur. Hann beitir sínum öfluga skrokki af slíkum krafti að undir öskrum og hamagangi var engu líkara en að innyflin ætl- uðu að þeytast út úr ístrunni sem hann beindi út í loftið í trölladansi engum líkum. Yfirleitt var tímasetning góð þó svo að nokkuð hafi hægt á tempó- inu rétt fyrir hlé. Þetta var löng sýning en aldrei langdregin. Það sem er kannski svolítið erfitt að átta sig á er tíminn eða ekki tím- inn. Fyrir okkur sem vorum ung á sjöunda og áttunda áratugnum var þetta eins og sýning um þau ungmenni sem þá máluðu bæinn rauðan. Málfarið og skáldaáhug- inn er algerlega frá þessum tíma. Kannski er það hreinlega styrkur sýningarinnar að vera ekkert að bögglast með að staðsetja hana í nútímanum. Raunar er heild- in heldur ekki tímalega skýr, má segja að einhvers konar tíma- laust ævintýr taki völdin á köfl- um. Sem dæmi um það er heim- ili Lindu, ríku stúlkunnar sem Ormur verður fyrir því að barna. Þar er það meira ýkt hugmynd um iðjuleysi hinna ríku sem sýnd er. Pétur Einarsson í hlutverki föður- ins situr og saumar út eins og Loð- vík fjórtándi (eða er fyrirmynd- in kannski íslenskur útibússtjóri fyrir norðan?) og móðirin er eins og uppstoppuð brúða annaðhvort með talgalla, þýsk eða dönsk og mest eru þau sýnd bak við þunna slæðu. Er það kannski stórrisinn sem var algerlega ómissandi hér á árum áður á heldri heimilum? Hanna María Karlsdóttir og Pétur Einarsson fara með hlutverk for- eldra Lindu sem Valgerður Guðna- dóttir leikur og syngur með mikilli útgeislun. Sigrún Edda Björnsdóttir leik- ur hina umburðarlyndu síreykj- andi móður Orms og varpar fram blíðri konu sem ber harm sinn í hljóði. Ágætlega trúverðug, eins er Þröstur Leó Gunnarsson sannar- lega trúverðugur í hlutverki Magn- úsar sjóara, sem er ábyrgðin upp- máluð í sínu starfi en sísumblandi í landi. Þeim hroka sem Ormur sýnir honum inni á heimilinu verð- ur hann svo að kyngja þegar hann fer út á sjó og mannast undir hand- leiðslu Magnúsar. Öll atburðarásin er eins og klippt út úr íslenskum veruleika kringum byrjun áttunda áratugarins. Það vottar mjög fyrir kvenfyrirlitningu í samskiptum ungmennanna. Stúlkubarnið Halla er fremur vandræðalega samsett persóna því það er einhvern veginn ómögulegt að staðsetja hana. Birgitta Birgis- dóttir fer með hlutverk þessarar duglegu stúlku sem talað er stans- laust um að sé feit en er í raun skinnhoruð þannig að maður velti fyrir sér hvort ekki hefði mátt níð- ast á einhverjum öðrum þætti því þetta var svo út í hött. Gervi henn- ar var skrautlegt en passaði ekki við úlpugarminn hans Orms og þá mynd sem búningastjórinn var að varpa fram. Birgitta lék þó hlut- verkið vel og er mjög vel talandi. Guðjón Davíð Karlsson lifir sig vel inn í hlutverk Orms og nær ágætum tökum og hreinlega flugi þegar hann er fúll eða fyndinn, það er aftur á móti erfiðara að vera rómantískur og sorgmædd- ur. Tónlistin var best en það hefði mátt draga aðeins úr einsöngsat- riðum sem í yfirvæmninni verða nánast vandræðaleg. Rúnar Freyr Gíslason fer með hlutverk Þórs sem er hægripúkinn í bekkn- um og flækist hið vandræðalega gervi nokkuð fyrir því að persón- an sé trúverðug. Hárkollan gerði hann svo hjákátlegan og ellilegan að hann hefði auðveldlega getað verið kennarinn. Ásta litla er skondin fígúra. Henni ratast oft satt orð á munn þótt hún sé með öðruvísi nálgun en annað fólk. Kristín Þóra Haralds- dóttir fer varfærnislega með hlut- verk þessarar viðkvæmu sálar án þess að freistast til þess að yfir- drífa skringilegheitin. Bergur Þór Ingólfsson í hlutverki Arnórs kennara nær undraverðum tökum á kennarakækjum og kemur hóg- værð og góðmennsku hins stressaða menntaþjóns mjög vel til skila. Örn Ólafsson svíkur ei heldur nokkurn í hlutverki skólastjórans sem var einnig eins og einhver ævintýra- fígúra. Jóhanna Vigdís Arnardótt- ir brá sér í nokkur gervi hvert öðru betra. Hún geislar eins og sólin og söngur hennar er sterkur og falleg- ur fyrir utan að kynþokki hennar í þessum hlutverkum er slíkur að það brakaði í hverju horni. Gunnfríður, systir Orms, er með kraftadellu og þar af leiðandi alger andstæða Orms en þó eru þau góð systkin og þrátt fyrir smá kýting tjá þau hvort öðru ást sína með samstöðu. Guðrún Bjarnadóttir fer með hlutverk Gunnfríðar og kær- astann hennar Knút að norðan leik- ur Walter Geir Grímsson sem tók sig til og sporðrennti salnum eins og mjólkinni sem hann þambaði í fyrstu heimsókninni hjá tilvon- andi tengdafjölskyldu sinni. Hann var eins og skrípamynd af hall- ærislegasta gæjanum. Mjög fynd- inn. Þorsteinn Gunnarsson leikur Hreiðar, vin Orms, gamla trygga góða bóksalann. Þorsteinn er svo sannarlega í uppsveiflu sem come- back leikari og hér verður enginn svikinn af nærveru hans. Gervið, nálgunin og búningar hans voru heillandi. Leikmyndin og myndböndin voru á heildina skemmtileg og hóg- vær. Stóru dansatriðin voru kraft- mikil og þó svo að hugurinn hafi fremur leitað til Ameríku á jafnvel fimmta áratug liðinnar aldar í jóla- innkaupa-atriðinu var það bara allt í lagi. Þetta er stórgóð skemmtun þótt það sé kannski svolítið pirr- andi hvað tungumálið er stundum stirðbusalegt. Fanný, nýja eigin- kona pabbans, birtist okkur á ster- ílu flottu heimili sínu og lék Vig- dís Gunnarsdóttir hana og Ellert A. Ingimundarson lék pabbann. Þau voru saman frábær, stílfærðir ýktir hönnunarplebbar og í þeirra rými nálgaðist leikstjórinn nútím- ann um leið og þetta hefði alveg eins getað verið kringum 1950. Tónlistin festist eins og líming og er vel flutt. Tíminn skiptir ekki máli, það er bara spurning hvort ungir áhorf- endur hafi smekk fyrir eða þol til þess að hlusta og horfa á roskna leikara leika unglinga frá löngu liðnum tíma. Elísabet Brekkan Niðurstaða: Löng en ekki langdregin, dúndursýning en tímalaus. Ætti að falla unglingum í geð á hvaða aldri sem er. Er hann engum líkur? LEIKLIST Sveppi, Hallgrímur, Guðjón og Birgitta eru kannski frekar í klíku frá sjöunda áratugnum. LR/GRÍMUR BJARNASON

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.