Fréttablaðið - 06.04.2010, Side 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
ÞRIÐJUDAGUR
6. apríl 2010 — 79. tölublað — 10. árgangur
Leyni
st þvo
ttavé
l
eða þ
urrka
ri frá
í þínu
m pa
kka
www.forlagid.is
KEMST MAN. UTD. ÁFRAM?
Á MORGUN KL. 18:30
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Í SÍMA 512 5100
MAN. UTD. - BAYERN MÜNCHEN
FASTEIGNIR.IS6. APRÍL 201014. TBL.
Eignamiðlun og Fasteignamiðstöðin eru með
reitinn á horni Lækjargötu og Austurstrætis
til sölu en þar stendur Reykjavíkurborg fyrir
enduruppbyggingu húsa sem skemmdust í
eldsvoða 2007.
V erið er að endurbyggja húsin í anda upprunalegs útlits. Uppbyggingin gengur vel og í samræmi við áætlanir verða eignirnar boðnar til sölu eða leigu. Hægt verður að afhenda húsin nýjum rekstrar-aðilum seint í haust. Saga og fortíð bygginga á reitnum á að skila sér, en þó þannig að húsin hafi fullt notagildi nútíma. Þetta er grunnurinn í verðlaunatillögunni um uppbyggingu og alls fyrirkomulags á reitnum sem atkitektastofurnar Gullinsnið, Studio Granda og Argos unnu.Byggingarnar sem um ræðir eru að Austurstræti 22 og Lækjargötu 2 og 2a. Austurstræti 22 var reist árið 1801 og var lengi meðal merkustu húsa bæjarins. Það var byggt sem stokkahús og kom tilsniðið til landsins. Í því var íbúð stiftamtmanns, aðsetur landsyfirréttar, prestaskóli, verslunarhús og veitingahús. Húsið var friðað samkvæmt þjóðminjalögum. Landsyfirréttarhús-ið að Austurstræti 22 sem byggt var af Ísleifi Einars-syni 1801-2, verður endurgert sem stokkahús og mun hafa allt yfirbragð frá blómaskeiði sínu eftir að Trampe greifi hafði endurbætt það verulega um 1807.
Húsið við Lækjargötu 2 var byggt árið 1852 og er
fyrsta sérhannaða hornhúsið í Reykjavík. Sigfús Ey-
mundsson ljósmyndari, bóksali og athafnamaður bjó í
húsinu og rak þar ljósmyndastofu um árabil. Þar hafa
verið ýmsar verslanir, myndlistargallerí og veitinga-
hús til húsa hin síðari ár. Húsið að Lækjargötu 2, sem byggt hefur verið í
mörgum áföngum frá 1852 til 1980, verður hækkað um
eina hæð, þ.e. byggð ný fyrsta hæð og eldri hlutar end-
urgerðir ofan á hana. Lækjargata 2a, Nýja bíó, stóð á baklóðinni og var
byggt sem bíóhús árið 1920. Það var þá stærsta sam-
komuhús landsins með sæti fyrir 500 manns. Það brann
árið 1998. Húsið var byggt í anda svokallaðs Jugend-
stíls. Reist verður nýtt hús á bakhluta lóðar Austur-
strætis 22 sem mun taka form sitt og yfirbragð að veru-
legum hluta af Nýja bíói.Gert er ráð fyrir að nýir notendur og framtíðareig-
endur innrétti húsin miðað við sínar þarfir. Öll húsin
verða fullfrágengin að utan, en óinnréttuð að innan.
Byggingar sem nú rísa á horni Lækjargötu og Aust-
urstrætis eru alls tæplega 2.500 m² að flatarmáli og
rúmlega 9.000 m³ eða um tvisvar sinnum stærri en þær
byggingar sem þarna stóðu fyrir brunann. Þar af er
kjallari um 800 m², Lækjargata 2 ofan kjallara um 756
m², bakhús (Lækjargata 2b, Nýja bíó) ofan kjallara og
með aðalstigakjarna um 724 m² og loks er húsið Austur-
stræti 22 ofan kjallara með útbyggingu um 220 m².
Metnaðarfull endurbygg-ing í takt við söguna
Húsin á reitnum verða endurbyggð í anda upprunalegs útlits.
Vel skipulagt 70,2 m2, 3ja herbergja raðhús á einni hæð með góðum garði við Grundar-
tanga í Mosfellsbæ. Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, þvottahús/geymslu,
baðherbergi, stofu og eldhús. Timburverönd og sérgarður í vestur. V. 19,9 m. 4861
Grundartangi 54 - 270 MosfellsbæOpið hús í dag þriðjudag frá kl. 17:30 til 18:00
KJARNA - ÞVERHOLTI 2 • 270 MOSFELLSBÆ • SÍMI: 586 8080 • FAX: 586 8081 WWW.FASTMOS.IS
Einar Páll Kjærnestedlögg. fasteignasali.einar@fastmos.is
Opið hú
s
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
NÝ BRÁÐAMÓTTAKA verður opnuð í Fossvogi 8. apríl.
Tvær stærstu bráðadeildir Landspítala sameinast þá í eina
bráðamóttöku. Í framhaldi tekur hjartamiðstöð til starfa við
Hringbraut þar sem áhersla verður á dag- og göngudeildarþjón-
ustu auk bráðaþjónustu fyrir hjartasjúklinga á virkum dögum.
Patti húsgögnLandsins mesta úrval af sófasettum
„Þetta var mjög naumt, ekki
nema tveggja stiga muHarald þett
Mammútar urðu krullu-meistarar í þriðja sinn
Mammútar sigrðu naumlega í spennandi úrslitaleik í krullu sem fór fram í Skautahölli i
dögunum. Haraldur Ingólfsson er liðsmaður í Mammútum og sk
Vígreifir Mammútar. Frá vinstri: Haraldur Ingólfsson, Jens Kristinn Gíslason, Jón Ingi Sigurðsson, Ólafur Freyr Númason og Sveinn
H. Steingrímsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.ISumræða 20
3 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Fasteignir.is
Söngkeppni
framhaldsskólanna
veðrið í dag
Ævintýri líkast
Séra Hjálmar Jónsson fékk
að prófa nýja gerð
af Mercedes
Benz á kapp-
akstursbraut í
Frakklandi.
fólk 26
Strekkingur eða hvassviðri vest-
antil á landinu en hægari vindur
austantil. Snjókoma norðan- og
vestanlands en slydda eða rigning
austantil. Dregur úr úrkomu og
vindi þegar líður á daginn. veður 4
1
-1 1
3
4
LANDBÚNAÐUR „Ef kemur til þess
að bú verða tekin til skipta í gegn-
um lánastofnanir þá er hættan sú
að verðmætum verði ráðstafað til
valinna aðila. Við viljum að allir
hafi jafnan aðgang og það eina
sem ráði því hver fær er hvort
viðkomandi geti greitt eða ekki.
Þetta gengur út á það að slíta á
tengslin á milli kaupanda og selj-
anda,“ segir Sigurður Loftsson,
formaður Landssambands kúa-
bænda.
Heildarskuldir kúabænda eru
metnar um 44 milljarðar króna.
Þau bú sem verst standa eru talin
eiga um fimmtán prósent af 116
milljóna lítra ársframleiðslu.
Hver lítri mjólkurkvóta er í dag
metinn á um 250 krónur svo um
milljarða hagsmuni er að tefla.
Kúabændur telja nauðsynlegt að
koma á fót uppboðsmarkaði með
mjólkurkvóta og sendu frá sér
ályktun þessa efnis eftir aðalfund
sambandsins nýlega. Ástæðan er
að 120 til 140 kúabú eiga í veru-
legum eða miklum fjárhagserfið-
leikum. Kúabú hér á landi eru um
700 alls og 75 til 80 þeirra eru upp
á náð og miskunn viðskiptabanka
og annarra lánardrottna komin.
Til þess hefur ekki komið enn þá
að bú hafi verið yfirtekin en LK
telur slíkt óumflýjanlegt, verði
ekki brugðist við skuldavandan-
um með „raunverulegum lausn-
um“ frá hendi lánastofnana, eins
og Sigurður kemst að orði.
Félag ungra bænda hefur tekið
undir með LK um að mikilvægt
sé að „allt greiðslumark komi á
markað nú þegar að mikil hætta
er á að bankastofnanir eignist bú
skuldsettra bænda og geti farið
að ráðstafa greiðslumarki út úr
bönkunum líkt og öðrum eignum
án auglýsingar eins og dæmin
sanna,“ eins og segir í ályktun.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, hefur lýst
yfir áhyggjum sínum af stöðu
kúabænda og þeirri hættu að
kvóti færist frá viðkomandi jörð
með tilheyrandi byggðaröskun
og samþjöppun mjólkurkvóta á
fárra manna hendur. Hann telur
eðlilegt að stjórnvöld leggist yfir
það hvort eðlilegt sé að grípa inn
í, jafnvel með miðlægum kvóta-
markaði.
Sigurgeir Þorgeirsson, ráðu-
neytisstjóri í sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytinu, segir
það til skoðunar innan ráðuneyt-
isins hvernig megi útfæra mark-
að með mjólkurkvóta. „Við eigum
í viðræðum við hagsmunaaðila um
hvernig má nálgast þetta, en það
væri ofsagt að það sé með skipu-
lögðum hætti enn þá.“ - shá
Bændur óttast
að útvaldir fái
mjólkurkvóta
Um áttatíu kúabændur eru upp á náð og miskunn
lánardrottna komnir. Fleiri í verulegum fjárhags-
erfiðleikum. Bændur vilja að allur mjólkurkvóti
gjaldþrota kúabúa verði settur á uppboðsmarkað.
UTANRÍKISMÁL Engar ákvarðan-
ir hafa verið teknar um fundi
samninganefnda Íslendinga, Hol-
lendinga og Breta vegna Icesave.
Búist er við að Gordon Brown rjúfi
breska þingið í dag og boði til kosn-
inga í byrjun maí. Það setji mönn-
um þröngar skorður hvað varðar
samninga.
Guðmundur Árnason, ráðu-
neytisstjóri í fjármálaráðuneyt-
inu, situr í samninganefnd Íslend-
inga. Hann segir menn hafa verið
í samskiptum en engar ákvarðanir
hafi verið teknar. „Það liggur ekki
fyrir hvenær eiginlegar viðræður
geta hafist. Það hafa verið samtöl
á milli manna og þess er jafnvel að
vænta að það ráðist á allra næstu
dögum hvort og hvenær af samn-
ingum verður.“
Fregnir bárust af því um helg-
ina að Hollendingar og Bretar
hefðu fallið frá einhliða fyrirvör-
um fyrir viðræðum. Steingrím-
ur J. Sigfússon fjármálaráðherra
segir það oftúlkun á stöðunni.
Engar nýjar fréttir séu af málinu,
en vonast sé til að enn sé svigrúm
til samninga. „Það væri augljós-
lega betra að þetta gæti gerst sem
allra fyrst, ef eitthvað á að reyna
við þetta áður en hann dettur alveg
inn í kosningar,“ segir Steingrím-
ur og vísar þar til Gordons Brown.
Hann vonast til að það takist. - kóp
Fyrirhugaðar kosningar í Bretlandi og Hollandi setja mönnum skorður:
Engir fundir á dagskrá um Icesave
HRAUNFOSS Í HVANNÁRGILI Hraun frá eldstöðinni á
Fimmvörðuhálsi fór að flæða niður Hvannárgil á laugardagskvöld. Þúsundir
manna lögðu leið sína að eldstöðvunum um páskana. Í gær versnaði veður
og voru þá fáir á ferli.
milljarðar króna
eru samanlagðar
skuldir um 700
kúabúa í landinu. Það svarar
til 63 milljóna að meðaltali.
LANDSSAMBAND KÚABÆNDA
44
Meisturunum skellt
Snæfell lagði KR á útivelli er
liðin mættust í undanúrslit-
um úrvalsdeildarinnar í gær.
Kefl avík vann Njarðvík.
íþróttir 20
Ný listahátíð
Jónsvaka, listahátíð fyrir
unga fólkið, verður haldin í
fyrsta sinn í júní.
fólk 26
M
YN
D
/B
R
JÁ
N
N
B
A
LD
U
R
SS
O
N
fréttir 4