Fréttablaðið - 13.04.2010, Qupperneq 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
RANNSÓKNARSKÝRSLAN Ríkisstjórn,
stjórnsýsla og bankarnir fá fallein-
kunn í skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis sem kom út í gær. Þrír ráð-
herrar, þrír seðlabankastjórar og for-
stjóri Fjármála eftirlitsins eru sakaðir
um að hafa gert mistök og sýnt van-
rækslu í starfi.
„Það gekkst enginn þeirra við
ábyrgð,“ sagði Páll Hreinsson, formað-
ur rannsóknarnefndarinnar, á blaða-
mannafundi í gær, spurður út í þá
stjórnendur sem komu fyrir nefndina.
Í allt gáfu 147 manns skýrslu.
Ráðherrarnir þrír eru Geir H.
Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra,
Árni M. Mathiesen, fyrrverandi fjár-
málaráðherra, og Björgvin G. Sigurðs-
son, fyrrverandi viðskiptaráðherra. Sá
síðastnefndi situr enn á þingi. Hann
sagði af sér sem þingflokksformaður
Samfylkingarinnar í gær.
„Ég kalla eftir að landsdómur komi
saman og vil fá tækifæri til að verja
nafn mitt þar,“ segir Björgvin.
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri
Fjármála eftirlitsins, er sagður hafa
sýnt af sér andvaraleysi gagnvart því
að koma nægilega traustu skipulagi
á daglega starfsemi stofnunarinnar.
Nauðsynlegan slagkraft hafi skort í
störf stofnunarinnar við að halda fjár-
málafyrirtækjunum að lögum.
Í skýrslu vinnuhóps um siðferði og
starfshætti kemur fram að sá hópur
sem stýrði bönkunum hafi fallið í
nánast allar þær freistingar sem á
vegi hans urðu.
„Rannsóknarnefnd Alþingis telur
að samþjöppun og áhætta hjá íslensku
bönkunum hafi verið orðin hættulega
mikil, þónokkuð fyrir fall þeirra,“
sagði Sigríður Benediktsdóttir
nefndarmaður í gær.
Eigendur allra stóru bankanna
fengu óeðlilega greiðan aðgang að
lánsfé í eigin bönkum, að því er virð-
ist í krafti eignarhalds síns. Helstu
eigendur stærstu bankanna þriggja,
og Straums-Burðaráss, voru meðal
stærstu lántakenda.
Baugur og félög tengd honum voru
stærstu lántakendur Glitnis. Vöxtur
hljóp í útlán bankans á árinu 2007
þegar stjórnarskipti urðu í honum
og aðilar tengdir Baugi og FL Group
juku við eignarhlut sinn. Lán til
Baugs og tengdra félaga námu 250
milljörðum eða um 70 prósentum af
eiginfé bankans.
Exista, stærsti hluthafi Kaupþings,
var jafnframt næststærsti skuldari
bankans. Robert Tchenguiz, hlut-
hafi og stjórnarmaður, var sá stærsti.
Exista skuldaði bankanum 200
milljarða þegar hann féll.
Björgólfur Thor Björgólfsson og
félög tengd honum voru stærstu skuld-
arar Landsbankans og Björgólfur
Guðmundsson þriðji stærsti. Skuldir
þeirra námu vel yfir 200 milljörðum,
sem var meira en eigið fé bankans.
Nefndin hefur afhent ríkissaksókn-
ara lista yfir mál og málaflokka sem
hún telur að þarfnist sakamálarann-
sóknar. Sjá síðu 2 til 26
13. apríl 2010 — 85. tölublað — 10. árgangur
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Bókin heitir Hvorki meira né
minna og hentar þeim sem er
umhugað um heilsuna, einkum
þeim sem eru í fráhaldi,“ útskýr-
ir Fanney Rut Elínardóttir, sem
hefur gefið út fyrstu íslensku
matreiðslubókina þar sem alfar-
ið er sneitt fram hjá sykri, hveiti
og sterkju.Fanney Rut gerði róttækar
breytingar á sínu mataræði fyrir
ári en hún var haldin matarfíkn
á háu stigi. „Ég fékk nóg og tók
málin í eigin hendur, komin langt
yfir kjörþyngd, pirruð og orku-
laus.“ Eftir að Fanney breytti mat-
aræðinu grenntist hún um 40 kíló.
„Lundin er líka léttari; systkinum
mínum finnst ég alla vega hress-
ari,“ segir Fanney og hlær og bætir
við að hún sé sömuleiðis orkumeiri
en áður.Fanney Rut viðurkennir að
snúningurinn hafi þ
átakala
Hentar fólki í fráhaldi
Fanney Rut Elínardóttir var haldin matarfíkn á alvarlegu stigi en sneri við blaðinu og leitaði sér hjálpar.
Hún tók mataræðið meðal annars í gegn og hefur nú gefið út bók með uppskriftum að hollum réttum.
Fanney Rut Elínardóttir fer eftir sérstöku kerfi sem hentar vel fólki í fráhaldi og miðar að því að borða vel úti látnar og léttar mál-
tíðir þrisvar sinnum á dag. Hver máltíð er vigtuð og þannig borðar Fanney Rut hvorki meira né minna en kerfið segir til um.FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bláberjapönnukaka
1 egg
30 g sojahveiti3 msk. vatn¼ msk. matarsódi1 msk. Canderel2 ½ dl bláber, frosin eða
fersk
1-1 ½ dl skyr.is með
vanillubragði frá MSBlandið öllu vel saman, nema bláberjunum og skyrinu. Hitið olíu á
vel heitri pönnu, hellið
blöndunni á pönnuna
og lækkið niður í miðlungs hita. Stráið
tæplega helmingnum
af bláberjunum ofan á
pönnukökurnar þegar
endarnir eru byrjaðir
að bakast í gegn og
steikið pönnukökuna
áfram í um það bil 1 mín. Snúið pönnu-kök-
unni
við og
bakið hana í um það
bil 3 mín. til viðbótar.
Bláberjahliðin er ekk-
ert sérlega falleg og
því er skemmtilegra
að snúa henni niður
þegar pönnukakan er
sett á diskinn. Berið
þessa dásamlegu bláberja-pönnuköku fram með vanillu-sk
DÓ OG FÓR TIL HIMNA
fann ekkertog þ
VERÐ SKÓLAMÁLTÍÐA var misjafnt vorið 2009. Í
nýlegri könnun kemur í ljós að meðalverð skólamáltíða yfir
landið var 279 krónur. Hæsta verð á skólamáltíð var 500
krónur og í einum skóla var skólamáltíðin nemendum að
kostnaðarlausu. Athyglisvert er að mismunandi verð var fyrir
skólamáltíð innan sama sveitarfélags.
Patti.isLandsins mesta úrval af sófasettumnÚ RÝMUM VIÐ FYRIR NÝJUM VÖRUM50%afslátturaf völdum vörum
Hornsófar, tungusófarsófasett, rúm, borðstofusett ofl. aðeins í eina vikutakmarkað magn
gildir til 20. april
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 1
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rafskutlur-frelsi og nýir möguleikarEinfaldar í notkun og hagkvæmar
í rekstri
SÉRBLAÐ
með Fréttablaðinu
Allt
ÞRIÐJUDAGUR
Sjálfstæðismenn
fengu mest
Tíu þingmenn fengu 100
milljónir eða meira að
láni frá bönkunum
fréttir 6
Inngrip hefði kostað málaferli
Geir H. Haarde segir að vöxtur
bankanna hafi valdið hruninu
fréttir 14
Eigendurnir veiktu bankana
Viðskiptabankarnir þrír
lánuðu eigendum hundr-
uð milljarða króna.
fréttir 20
ÞUNGAR ÁVIRÐINGAR Nefndarmennirnir þrír, Páll Hreinsson, Sigríður Benediktsdóttir og Tryggvi Gunnarsson, ásamt vinnuhópi um siðferði og starfshætti, sem Vilhjálmur Árnason, Salvör Nordal og Kristín Ástgeirsdóttir
skipuðu, fóru hörðum orðum um stjórnsýsluna, stjórnmála- og viðskiptalífið á blaðamannafundinum í Iðnó í gær.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
Útivistarleikur
Homeblest & Maryland
Leynist vinningur í
pakkanum þínum!
Heiðarleika
Veljum
framboð um
H-lista
í vor
Ólafur F. Magnússon
greiðir auglýsinguna
skoðun 28
Segja
má að sá
hópur sem stýrði
bönkunum hafi
fallið í nánast allar
þær freistingar
sem á vegi hans
urðu.“
ÚR SKÝRSLU
RANNSÓKNARNEFNDAR
Enginn gekkst við ábyrgð
Rannsóknarnefnd Alþingis skilaði af sér skýrslu um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna í gær. Ráðherrar, seðlabankastjórar
og forstjóri FME eru sakaðir um mistök og vanrækslu í starfi. Stærstu hluthafar bankanna fengu óeðlilegan aðgang að lánsfé.