Fréttablaðið - 13.04.2010, Page 23
ÞRIÐJUDAGUR 13. apríl 2010 3
Jóhanna er af vinum sínum kölluð
Hunda-Hanna enda mikil hunda-
manneskja að eigin sögn. Meðfram
námi í uppeldis- og menntunar-
fræðum við Háskóla Íslands lærir
hún hundaþjálfun hjá Sheila Harp-
ers International Dog Behavioral
and Training School í Bretlandi
sem er eins og hálfs árs nám.
Jóhanna stefnir á útskrift frá HÍ
í haust og vinnur nú að lokaverk-
efni sínu. „Ég hafði lengi spáð
í það hvernig hundurinn minn
hefði haft áhrif á uppeldi mitt,“
segir Jóhanna en hundurinn sem
hún eignaðist þegar hún var átta
ára dó af slysförum í janúar, 17 ára
gömul. Lát hins trygga förunautar
varð til þess að móta enn frekar
hugmyndina að ritgerðinni.
„Ég ákvað að taka fyrir kenning-
ar Dinu Baumrind um fjóra mis-
munandi uppeldishætti foreldra,“
útskýrir Jóhanna en þeir eru: leið-
andi, skipandi, eftirlátssamir og
afskiptalausir. „Ég ákvað síðan að
bera þá saman við þær þjálfunar-
aðferðir sem eru notaðar í hunda-
heiminum,“ segir hún og vill meina
að á Íslandi séu þrjár aðferðir ráð-
andi. Þjálfun byggð á hugmyndum
um yfirráð, þjálfun sem byggir á
hvatningastjórnun og þjálfun sem
styrkir jákvæða hegðun.
Þótt ritgerðinni sé ólokið hefur
Jóhanna komist að nokkrum megin-
niðurstöðum og telur að mismun-
andi uppeldis- og þjálfunaraðferð-
ir fari hönd í hönd.
Hún paraði saman hina leiðandi
og upplýsandi uppeldisaðferð for-
eldra við styrkingu við jákvæða
hegðun hjá hundaeigendum. „Börn-
in verða sjálfsörugg, ófeimin og
eiga auðveldara með að mynda
tengsl við aðra. Svipað má segja
um hunda sem hafa verið þjálfaðir
með styrkingu við jákvæða hegðun.
Þeir eru almennt ánægðari, hlýða
af því þeir vilja það en ekki af því
þeir þurfa þess eða þora ekki öðru,“
útskýrir Jóhanna.
Þá taldi hún skipandi uppeldis-
aðferðir af sama meiði og þjálfunar-
aðferðir byggðar á hugmyndum um
yfirráð. „Þannig eiga bæði börn og
hundar að hlýða skilyrðislaust hvort
sem þau skilja skipunina eða ekki,“
segir Jóhanna. Hún bætir við að
afleiðingar slíkra uppeldisaðferða
geti valdið því að börn geri uppreisn
á unglingsaldri og eigi erfitt í sam-
skiptum við önnur börn. Það sama
eigi við um hundana. Þeir verði óör-
uggir og kvíðnir og geti orðið árásar-
gjarnir við aðra hunda.
Eftirlátssamir uppeldishættir
virðast tengjast hvatningastjórn-
un hjá hundum. „Þar velur barnið
hvort það hlýðir eða ekki,“ segir
Jóhanna og bendir á að ef eigandi
treysti á hvötina hjá hundinum til
að hann læri hafi hann valið um að
fylgja hvöt eða skipun og í flestum
tilfellum velji hundurinn hvötina.
Að lokum paraði Jóhanna
afskiptalausa uppeldishætti við
vanrækslu hunda.
Hún skoðaði einnig sambönd
barna og hunda í tengslum við mis-
munandi uppeldishætti. Þannig
fann hún rannsókn sem sálfræð-
ingurinn og fjölskylduráðgjafinn
Robert Bierer gerði árið 2000.
„Hann tók fyrir börn á aldrinum
10 til 12 ára og bar saman börn sem
áttu hund og börn sem ólust ekki upp
með hundi. Sú rannsókn leiddi í ljós
að börnin sem áttu hund voru með
betra sjálfsálit, voru öruggari og
áttu auðveldara með að sýna samúð
og samkennd,“ greinir Jóhanna frá
og vonast til að niðurstöður ritgerð-
ar hennar geti nýst hundaeigendum
jafnt sem foreldrum. Fróðleiksfús-
um hundaáhugamönnum er einnig
bent á heimasíðu Jóhönnu, www.
reykjalin.com/hundahanna.
solveig@frettabladid.is
Ýmislegt líkt með uppeldi barna og hunda
Gæludýr kosta sum hver skildinginn
og þá sérstaklega ef þau eru hrein-
ræktuð. Hestakaup eru líka mikil fjár-
festing og vilja margir hafa vaðið fyrir
neðan sig og kaupa tryggingar sem
lágmarka mögulegt tjón eða skaða.
Við eftirgrennslan hjá nokkrum trygg-
ingarfélögum kom í ljós að flestir
kaupa hunda- og hestatryggingar þó
eitthvað sé um að fólk tryggi ketti,
fugla og önnur dýr. Iðgjöldin fyrir
þessar tryggingar eru jafn mismun-
andi og tryggingarnar eru margar en
þau ráðast af tegund dýrs, verðmæti
þess og notagildi (í tilfellum hesta og
hunda) auk þess sem líftryggingarfjár-
hæðin sem valin er getur verið mis-
jöfn. Hámarks vátryggingarfjárhæð fer
eftir tegund dýrs og getur hún lækkað
eftir því sem það eldist auk þess sem
eigin áhætta er öllu jöfnu einhver.
Tryggingarfélögin bjóða upp á nokk-
uð sambærilegar tryggingar þó ein-
hver blæbrigðamunur sé á áherslum.
Í flestum tilfellum er boðið upp á líf-
tryggingu sem bætir tjón ef dýrið deyr,
hvort sem það er af völdum sjúkdóms
eða slyss og sjúkrakostnaðartryggingu
sem bætir lækniskostnað. Þá er víða
boðið upp á ábyrgðartryggingu sem
bætir tjón sem fellur á vátryggðan eig-
anda vegna líkams- eða munatjóns
sem gæludýr veldur og afnotamissis-
tryggingu sem bætir tjón vegna dýra
sem eru notuð eða ætluð í ræktun.
Eins eru til umönnunar- eða gæslu-
tryggingar sem bætir gæslukostnað ef
eigandi slasast eða veikist alvarlega.
Sumar tryggingarnar er hægt að kaupa
einar og sér en aðrar sem viðbót með
líftryggingum. - ve
Dýrin tryggð fyrir
skakkaföllum
TRYGGINGARFÉLÖGIN BJÓÐA GÆLU-
DÝRATRYGGINGAR AF ÝMSUM TOGA.
Hreinræktuð gæludýr kosta skildinginn
og vilja eigendur þeirra margir vera með
gæludýratryggingar sem geta verið af
ýmsum toga. NORDICPHOTOS/GETTY
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Jóhanna Reykjalín Ragnarsdóttir
vinnur að BA-ritgerð sinni þar sem
hún ber saman uppeldisaðferðir
foreldra og þjálfunaraðferðir
hunda en hún stundar nám sem
tengist hvort tveggja.
Jóhanna Reykjalín Ragnarsdóttir vinnur að BA-ritgerð í uppeldis- og
menntunarfræðum við Háskóla Íslands. Hún ber saman uppeldis-
aðferðir foreldra og þjálfunaraðferðir hundaeigenda. Niðurstöður
benda til að margt sé sammerkt með uppeldi barna og þjálfun hunda.
Við elskum hundana okkar og þess vegna gerum við allt til að
halda þeim sterkum, heilbrigðum og ánægðum. Heimsenda-
meistararnir* fá góða og holla næringu og ekki síður glansandi
fallegan feld. Við gefum hundunum okkar Pedigree.
Meistararnir okkar
vilja Pedigree
Fyrir hundinn þinn
Björn Ólafsson – BIPDT
Lára Björk E. Birgisdóttir
* Íslenskir og alþjóðlegir
meistarar á sýningum HRFÍ
PI
PA
PI
PA
PI
PA
PI
PA
PI
PA
PI
PAPA
PI
PA
PI
PI
RRRRRR
\\\
TB
W
A
TB
W
A
TB
W
A
TB
W
TB
WWWW
TB
WBBWT
••••••••
SÍ
A
S
ÍA
S
ÍA
S
ÍA
SÍ
A
A
SÍ
A
••••
10
07
9
10
07
99
1
0
07
0
07
1
0
07
0
07
0
07
0
0707
0
07
0
07
0
07
0
0707000
0
00
00000000000000000000000001
55555
Pedigree:
eflir náttúrulegar varnir
styrkir liði og vöðva
styrkir tennur og tannhold
gefur feldi hundsins aukinn glans