Fréttablaðið - 13.04.2010, Page 43
ÞRIÐJUDAGUR 13. apríl 2010 35
HANDBOLTI Dagur Sigurðsson, þjálf-
ari landsliðs Austurríkis, telur
Ísland hafa verið heppið með drátt
í undankeppni Evrópumótsins.
Dregið var í riðla í Serbíu í gær en
þar mun lokakeppnin verða haldin
2012.
Tvö efstu liðin munu komast í
úrslitakeppnina en Ísland er í riðli
með Austurríki, Þýskalandi og svo
sigurvegaranum úr undanriðli B.
Í þeim riðli keppa Lettland, Ítalía,
Finnland og Georgía.
„Þetta er fínn dráttur fyrir
Ísland. Ég tel það nokkuð skýrt að
Þýskaland og Ísland fara áfram upp
úr þessum riðli. Ég tel að hin liðin
eigi ekki að geta staðið í vegi fyrir
því,“ segir Dagur sem vill meina
að leikur Íslands og Austurrík-
is á síðasta Evrópumóti hafi verið
einsdæmi. Liðin gerðu þá jafntefli
í dramatískum leik. „Í tíu leikj-
um gegn Íslandi nær Austurríki
kannski einum svona leik. Allir sem
sáu þennan leik á EM vita að það
var ansi mikill heppnisstimpill á
honum fyrir Austurríki.“
Dagur metur Ísland sem
sigurstranglegasta lið riðils-
ins. „Þetta er fínn dráttur fyrir
Ísland. Ég tel það nokkuð skýrt að
Þýskaland og Ísland fara áfram upp
úr þessum riðli. Ég held að hin liðin
eigi ekki að geta staðið í vegi fyrir
því. Ég tel Ísland með betra lið en
Þýskaland. Síðustu tvö ár hafa Þjóð-
verjar ekki verið sannfærandi og
það eru brotalamir í landsliðsmálun-
um hjá þeim. Það þarf heilmikið að
gerast hjá þeim svo þeir geti talist
ein af þessum toppþjóðum. Ísland er
þó í þeim flokki í dag að mínu mati,“
segir Dagur.
Undankeppnin fer af stað í októ-
ber en Dagur reiknar ekki með
því að vera við stjórnvölinn þá.
„Minn samningur er bara fram
á sumar svo ég spái ekkert í
þetta. Að öllu óbreyttu hætti
ég með austurríska liðið
eftir leikina í sumar. Það er
náttúrulega freistandi að
mæta Þýskalandi og Íslandi
en maður verður að horfa á
þetta með þeim augum að ég
er með fangið fullt í Berlín. Það
gengur ekki til lengdar að vera með
tvö lið að mínu mati,“ segir Dagur
sem er einnig þjálfari þýska liðsins
Fuchse Berlin.
Hann mun stýra Austurríki gegn
Hollandi í sumar í leikjum um að
komast á heimsmeistaramótið á
næsta ári og líklegt að það verði
hans síðustu leikir með liðið. - egm
sport@frettabladid.is
Dagur Sigurðsson segir að íslenska handboltalandsliðið hafi fengið flottan drátt í undankeppni EM:
Nokkuð skýrt að Ísland mun fara áfram
LÍKLEGA
AÐ HÆTTA
Dagur Sig-
urðsson,
þjálfari
Austurríks.
MYND/DIENER
FÓTBOLTI Hólmfríður Magnús-
dóttir var nálægt því að skora í
sínum fyrsta leik með Philadelp-
hia Independence þegar banda-
ríska kvennadeildin fór af stað í
fyrrinótt.
Philadelphia-liðið gerði þá
markalaust jafntefli á heima-
velli á móti Atlanta Beat en það
lið þjálfar Gareth O’Sullivan,
fyrrverandi þjálfari KR og
Aftureldingar.
Hólmfríður lék allan leikinn
í stöðu vinstri bakvarðar í leik-
kerfinu 4-3-3. Hólmfríður komst
tvisvar nálægt því að skora á
lokamínútum leiksins. Hún átti
þrumuskot af um 30 metra færi
í slána á 82. mínútu og sex mín-
útum síðar náði markvörður Atl-
anta að verja frá henni auka-
spyrnu. - óój
Hólmfríður Magnúsdóttir:
Með sláarskot í
fyrsta leiknum
ÓGNANDI Hólmfríður Magnúsdóttir lék
sem vinstri bakvörður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
> Njarðvík hefur ekki unnið heimaleik í
úrslitakeppni í þrjú ár
Njarðvíkingar halda áfram að berjast fyrir lífi sínu í
úrslitakeppni Iceland Express-deild karla þegar þeir
taka á móti nágrönnum sínum úr Njarðvík í Ljónagryfj-
unni klukkan 19.15 í kvöld. Keflavíkurliðið vantar áfram
aðeins einn sigur enn til þess að komast í lokaúrslitin
en Njarðvík tryggir sér oddaleik á fimmtu-
dagskvöld með sigri í kvöld. Njarðvíkingar
reyna í kvöld að enda fimm leikja taphrinu
liðsins í Ljónagryfjunni í úrslitakeppninni.
Njarðvík hefur ekki unnið heimaleik í
úrslitakeppni síðan í fyrsta leik í loka-
úrslitum 2007.
Skúli Jón Friðgeirsson sýndi á sér nýja hlið á Spáni um helgina
þegar hann tók upp flautuna og dæmdi æfingaleik milli kvenna-
liða Vals og Grindavíkur. Fjöldi íslenskra liða er í heitari löndum
um þessar mundir til að undirbúa sig fyrir komandi sumar. KR-
ingar komu heim í gær eftir að hafa dvalið í viku á Spáni.
„Þetta hefur verið virkilega fínt. Veðrið er fínt og vell-
irnir sem við höfum æft á góðir. Það eru fleiri
íslensk lið hérna og skemmtileg
stemning verið á hótelinu,“
sagði Skúli við Fréttablaðið í
gær.
Þegar dómara vantaði í leik Vals og Grindavíkur voru
góð ráð dýr. „Það kom upp umræða á sundlaugarbakk-
anum hver væri best til þess fallinn að taka að sér dóm-
arastarf. Ég var ráðinn í verkið. Freyr [Alexandersson]
kom að mér og spurði hvort ég gæti tekið þetta að
mér. Ég gerði það með miklum sóma,“ sagði Skúli
sem var að dæma sinn fyrsta fótboltaleik.
„Ég er ekki einu sinni með dómararéttindi en þetta er
frekar einfalt hlutverk og ég var með góða menn með
mér og þetta gekk vel.
Stelpurnar voru líka þægar,
voru ekki mikið að æsa sig.
Þau vafaatriði sem komu upp
tækluðum við rétt. Þetta var virkilega
gott samstarf,“ sagði Skúli en aðstoðardómar-
ar hans í leiknum voru tveir aðrir leikmenn KR, Gunnar
Kristjánsson og Eggert Rafn Einarsson. Valskonur unnu
sannfærandi 5-0 sigur.
KR-ingum hefur gengið vel á undirbúningstímabilinu og
unnu Reykjavíkurmeistaratitilinn á dögunum. Skúli er bjart-
sýnn fyrir komandi tímabil. „Við vonum bara að þetta haldi
svona áfram fram að móti. Þá ættum við að koma sterkir til
leiks,“ sagði Skúli Jón.
KR-INGURINN SKÚLI JÓN FRIÐGEIRSSON: DÆMDI ÆFINGALEIK MILLI KVENNALIÐA VALS OG GRINDAVÍKUR
Stelpurnar voru þægar og æstu sig ekki mikið
FÓTBOLTI Jóhannes Karl Guðjóns-
son hefur verið gerður útlægur
frá enska liðinu Burnley næstu
tvær vikurnar eftir að hafa tjáð
sig um stjóra liðsins, Brian Laws,
sem hefur ekki gefið íslenska
miðjumanninum nein tækifæri
með liðinu.
„Hann er löngu búinn að tapa
klefanum,“ sagði Jóhannes Karl
í viðtali við vefsíðuna fotbolti.
net fyrir helgi. „Ég held að allir
leikmenn séu búnir að missa trú
á honum. Gengi liðsins segir sig
sjálft og mér sýnist allt stefna
niður á við.“
Enskir fjölmiðlar tóku síðan
ummælin upp og Laws var ekki
hrifinn. Jóhannes Karl hefur
verið úti í kuldanum og ekki spil-
að fyrir Burnley síðan Laws tók
við en liðið er í fallsæti. Burn-
ley vann hins vegar 4-1 sigur á
Hull um helgina og Laws svaraði
þá ganrýni Jóhannesar á eftir-
farandi hátt: „Við tökum á þessu
máli á fagmannlegan hátt, annað
en leikmaðurinn sjálfur,“ sagði
Laws. - óój
Jóhannes Karl settur í bann:
Gagnrýndi
Laws á íslensku
JÓHANNES KARL GUÐJÓNSSON Enskir
miðlar vakandi. MYND/AFP
KÖRFUBOLTI KR-ingar unnu sinn
þriðja sigur í Stykkishólmi á fjór-
um vikum eftir ótrúlega stöðu- og
varnarbaráttu tveggja öflugra liða
í Stykkishólmi í gærkvöldi. KR
vann leikinn 76-72 eftir að hafa
unnið síðustu sex mínútur leiks-
ins 18-10. Leikurinn einkenndist af
sterkri vörn, lélegri hittni og bar-
áttu um hvert einasta smáatriði
sem gat ráðið úrslitum.
Morgan Lewis var greinilega
staðráðinn í því að bæta fyrir skot-
in tvö sem klikkuðu á úrslitastund
í leik þrjú því hann hélt KR-lið-
inu á floti í fyrri hálfleik (17 af 30
stigum) og kláraði síðan leikinn í
lokin.
Morgan Lewis kórónaði frábær-
an leik sinn með því að verja skot
Sean Burtons á glæsilegan hátt 9
sekúndum fyrir leikslok og hitti
síðan úr tveimur vítum sem hann
fékk í kjölfarið. Morgan klikkaði
reyndar á öðrum tveimur vítum
en Fannar Ólafsson tryggði sínum
mönnum sigurinn.
Morgan var með 31 stig og 10
fráköst í leiknum en fékk mikla
hjálp frá Pavel Ermolinskij sem
tók yfir leikinn í seinni hálfleikn-
um þar sem hann var með 15 af 16
stigum sínum.
„Við kláruðum þennan leik en
við vorum ekki að gera það um
daginn. Þá vorum við ekki að setja
niður mikilvæg skot í lokin en þeir
gerðu það. Við gerðum það í kvöld
og stjórnuðum þessum leik meira
eða minna í seinni hálfleik. Þetta
var ekki fallegur körfubolti því
þetta er bara blóðug barátta. Menn
eru að kljást frá upphafi til enda,“
sagði Páll Kolbeinsson, þjálfari
KR, í viðtali á Stöð 2 Sport eftir
leikinn í gær.
„Morgan Lewis er búinn að
vinna á og hann er búinn að standa
sig mjög vel í þessari seríu. Ég er
alltaf að reyna að koma Tommy
Johnson inn í þetta og ég er að
reyna að koma Brynjari inn í þetta.
Það hefur gengið hægt en Brynj-
ar steig upp hérna í lokin og setti
niður mikilvæga körfu,“ sagði Páll
en umrædd þriggja stiga karfa
kom KR í 67-64 og liðið var með
frumkvæðið í leiknum það sem
eftir var.
„Ég er gríðarlega svekktur út
í okkar lið og fyrst og fremst út
í sjálfan mig. Það var mjög lélegt
hjá okkur að tapa þessu. Mér
fannst hvorugt liðið geta skorað
lengi framan af en mér fannst þeir
hitta meira af þessum stóru skot-
um. Það var svo lágt skor í þessu að
það skipti allt svo rosalega miklu
máli. Einn eða tveir þristar voru
miklu stærri en í flestum leikjum.
Mér fannst þeir eiga allar svoleiðis
körfur í þessum leik,“ sagði Hlyn-
ur Bæringsson, fyrirliði Snæfells,
í viðtali á Stöð 2 Sport.
KR komst í 7-0 og 14-5 en eftir
að Snæfellsliðið náði tökum á
leiknum stefndi lengi vel í heima-
sigur. Snæfell var 33-30 yfir í hálf-
eik og náði mest átta stiga forskoti
í þriðja leikhluta.
KR-ingar gáfust hins vegar ekki
upp þótt lítið gengi og tókst að
tryggja sér oddaleik sem fer fram
í DHL-höllinni á fimmtudaginn og
er skylduáhorf fyrir alla alvöru
körfuboltaáhugamenn.
ooj@frettabladid.is
Oddaleikur á fimmtudag
KR-ingar tryggðu sér oddaleik á fimmtudaginn með 76-72 sigri á Snæfelli í
miklum baráttuleik í Hólminum í gær. Morgan Lewis bætti fyrir skotin sem
misfórust í lok leiks þrjú með því að eiga frábæran leik og skora 31 stig í gær.
FRÁBÆR Í GÆR Morgan Lewis bætti fyrir klúðrið í lokin á þriðja leiknum og á stóran
þátt í því að KR-ingum tókst að tryggja sér oddaleik í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI Landsliðsmaðurinn
Logi Geirsson er á heimleið
en hann skrifaði í gærkvöldi
undir tveggja ára samning við
uppeldisfélag sitt, FH.
Logi hefur leikið með þýska
félaginu Lemgo undanfarin ár en
samningur hans við félagið renn-
ur út í sumar. Hann hefur lítið
leikið í vetur vegna meiðsla en er
á batavegi og leikur væntanlega
með íslenska landsliðinu gegn
Frökkum á föstudag og laugar-
dag.
Það þarf ekkert að fjölyrða
um hversu gríðarlegur liðsstyrk-
ur þetta er fyrir hið unga FH-lið
sem var afar óstöðugt í vetur og
missti að lokum af sæti í úrslita-
keppninni. Þetta eru einnig
ánægjuleg tíðindi fyrir íslensk-
an handknattleik enda mun
hinn litríki Logi vafalítið draga
fólk á völlinn. FH mun kynna
þennan nýja liðsmann sinn á
blaðamannafundi í Kaplakrika
klukkan 13.00 í dag. - hbg
FH fær mikinn liðsstyrk:
Logi samdi við
FH í gær
Á HEIMLEIÐ Logi Geirsson í leik með
íslenska landsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Stig Snæfells: Hlynur Bæringsson 20, Martins
Berkis 18, Sean Burton 15 (6 stoðs.), Sigurður
Þorvaldsson 12 (13 frák.), Pálmi Freyr Sigurgeirs
son 5, Emil Þór Jóhannsson 2
Stig KR: Morgan Lewis 31 (10 fráköst), Pavel
Ermolinskij 16 (10 frák., 5 stoðs.), Brynjar
Þór Björnsson 9, Fannar Ólafsson 8, Jón Orri
Kristjánsson 4, Finnur Atli Magnússon 4, Tommy
Johnson 2, Darri Hilmarsson 2.
SNÆFELL-KR 72-76