Fréttablaðið - 17.04.2010, Page 16
16 17. apríl 2010 LAUGARDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Xxxxxxx
Þrátt fyrir skyldleika
Werners Rasmussonar við
Karl og Steingrím Werners-
syni skilgreindi lánanefnd
Glitnis þá ekki sem slíka.
Þegar félag bræðranna rauf
skilmála við erlenda kröfu-
hafa veitti Glitnir tuttugu
milljarða fyrirgreiðslu.
Starfsmenn Glitnis virðast hafa
hagað lánveitingum til Milestone og
félaga tengdum bræðrunum Stein-
grími og Karli Wernerssona með
það fyrir augum að hylja háa skulda-
stöðu félaganna við bankann. Þetta
er á meðal þess sem fram kemur í
skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis
um bankahrunið. Nefndin tekur það
fram, að félag þeirra bræðra hafi
verið í sífelldri fjárþörf á árabilinu
2007 til 2008 og hafi þeir sífellt leit-
að til Glitnis um fjárhagslega fyrir-
greiðslu.
Bræðurnir áttu 95 prósenta hlut í
Milestone, sem var umsvifamikið í
tryggingum, fjármálum, lyfjafram-
leiðslu og fasteignarekstri. Mile-
stone átti fimmtungshlut í Glitni
en seldi í kringum tvo þriðju hluta
hans í mars 2007. Söluandvirðið nam
á milli fimmtíu til sextíu milljörð-
um króna. Milestone átti sömuleið-
is 5,9 prósenta hlut í lyfjafyrirtæk-
inu Actavis, sem það seldi um svipað
leyti og fékk fyrir hann um fimmt-
án milljarða króna. Fyrir féð keypti
Milestone sænska bankann Invik &
Co fyrir rúmar átta hundruð millj-
ónir evra, jafnvirði sjötíu milljarða
króna. Bandaríski fjárfestingar-
bankinn Morgan Stanley veitti lán til
kaupa á þriðjungi bankans. Nokkrar
tilfærslur urðu á félögum tengdum
þeim Wernersbræðrum í tengslum
við kaupin, svo sem í gegnum trygg-
ingafélagið Sjóvá, sem heyrði undir
Milestone-samstæðuna.
Í skýrslu rannsóknarnefndar-
innar kemur fram, að í stað þess
að lána Milestone-samstæðunni
beint til reksturs og annarra hluta
hafi lánanefnd Glitnis veitt þau til
nýstofnaðra einkahlutafélaga í eigu
aðila sem tengdust þeim bræðrum
með óbeinum hætti. Eitt þeirra var
einkahlutafélagið Svartháfur, sem
var í eigu föður þeirra, Werners
Rasmussonar. Svartháfur var einn
af stærstu lántakendum Glitnis en
ekki skilgreindur sem aðili tengd-
ur Milestone-samstæðunni þrátt
fyrir augljósan skyldleika. Einka-
hlutafélögin voru jafnframt notuð
til að greiða upp skuldir Milestone
erlendis.
Í rannsóknarskýrslunni er skýrt
tekið fram að þessi háttur hafi verið
viðhafður til að halda lánveitingum
utan samstæðu Milestone og lána-
nefnd Glitnis vitað af tengslunum.
Lánveitingar til Milestone og
tengdra aðila jukust verulega þegar
harðna fór í ári á alþjóðlegum fjár-
málamörkuðum árið 2008. Strax í
febrúar 2008 sagði Morgan Stanley
upp lánasamningi við félagið og
komst reksturinn því í uppnám.
Lánanefnd Glitnis ákvað því að auka
lánveitingar verulega til félagsins. Í
upphafi mánaðarins runnu 102 millj-
ónir evra til félagsins en 180 í enda
hans. Þetta jafngildir því að 282
milljónir evra, jafnvirði 21,6 millj-
arða króna á þávirði, hafi runnið úr
sjóðum bankans til félaga þeirra
Werners-bræðra á einum mánuði.
jonab@frettabladid.is
KARL WERNERSSON Stjórnarformaður Milestone var umsvifamikill í íslensku efna-
hagslífi fram að hruni. Tryggingafélagið Sjóvá var í fjárhagslegri rúst eftir aðkomu
Karls og tengdra aðila að því. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Glitnir horfði fram
hjá feðgatengslum
Fjárfestingarfélag þeirra Karls og Steingríms Wernerssona var stofnað fyrir
rétt rúmum 22 árum og hét í fyrstu Áman-Deiglan. Ingunn systir þeirra átti
jafnframt hlut í félaginu á þessum árum. Sex árum síðar eignaðist fyrirtækið
Apótek Austurbæjar, Vesturbæjarapótek og fleiri félög og tók þá upp nafnið
Milestone. Á vordögum 2005 keypti félagið tæpan sjötíu prósenta hlut í trygg-
ingafélaginu Sjóvá og hlut í Íslandsbanka í ágúst sama ár. Kaupverð hlutarins
nam 7,9 milljörðum króna. Félagið átti jafnframt hlut í Actavis. Í maí 2006
keypti Milestone svo afganginn af Sjóvá sem verið hafði í eigu Glitnis.
Á sama tíma og salan á Sjóvá fór í gegn átti Milestone 20 prósenta hlut í
bankanum. Milestone stofnaði síðar fjárfestingarbankann Askar Capital, sem
var stórtækur í fasteignatengdum verkefnum á Indlandi og í Asíu. Undir hann
heyrði meðal annars fjármögnunarfyrirtækið Avant. Ofan á allt saman keypti
Milestone sænska bankann Invik, endurskipulagði rekstur hans og setti undir
fjármálafyrirtækið Moderna Finance. Undir það voru settar eignir Milestone,
svo sem Sjóvá og Askar Capital.
Skilanefnd Glitnis tók yfir flestar eigur Milestone í mars í fyrra og hefur selt
helstu erlendar eigur þess. Í júlí 2009 gerði embætti sérstaks saksóknara
húsleit í höfuðstöðvum Milestone og Sjóvár. Rannsóknin sneri að meintu
fjármálamisferli sem tengdist fjárfestingarstarfsemi Sjóvár, meðal annars
sem sneri að misnotkun á bótasjóði tryggingafélagsins. Í sjóðinn vantaði tíu
milljarða króna svo eiginfjárhlutfall hans gæti talist jákvætt. Í kjölfarið hætti
Þór Sigfússon störfum sem forstjóri.
Milestone í hnotskurn
Banki Janúar 2007 Október 2008 Breyting
Landsbankinn 17,5 14,7 -16%
Kaupþing 0,0 0,0 0%
Glitnir 28,9 65,9 128%
Straumur 14,3 5,2 -63%
Spron 0,0 0,0 0%
Sparisjóðabankinn 0,6 5,7 896%
Samtals 61,2 91,5 49%
(Samtals í milljónum evra) 647,3 628,7 -3%
Tengd félög: Amarel, Askar Capital, Avant, Áman - Deiglan, Crawley, DAC, Ecchinswell, Faxar,
Fjárfestingarfélagið Máttur, FS6 ehf, Gleraugnaverslunin í Mjódd, auglýsingastofan Gott
fólk, Hljóðfærahúsið, Karl Emil Wernersson, Kcaj, L&H Optik, Legacy Holding, Lyf og heilsa,
Milestone, Moderna Finance, Nordic Pharma Inv., Randolph International Ltd, 34 ehf, SJ-
Fasteignir, Sjóvá-Almennar tryggingar, Unisport A/S, Þáttur International ehf.
* Upphæðir í milljörðum króna.
Áhættuskuldbindingar Milestone og tengdra félaga*
Milestone
Avant
Sjóvá-
Almennar
tryggingar
Fjárfest-
ingafélagið
Máttur
Rákungur
Földungur
Önnur
félög
Svartháfur
600
500
400
300
200
100
0
Heildarútlán stóru bankanna þriggja til tengdra aðila
M. evra