Fréttablaðið - 20.05.2010, Qupperneq 4
4 20. maí 2010 FIMMTUDAGUR
DÓMSMÁL Hæstiréttur vísaði í gær frá dómi kröfu Sig-
urðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns
Kaupþings, um að alþjóðleg handtökuskipun á
hendur honum yrði afturkölluð. Dómurinn komst
að þeirri niðurstöðu að ekki væri heimild fyrir
því í lögum að kæra úrskurði af þessu tagi.
Sigurður, sem býr í Lundúnum, hefur neitað
að verða við beiðni sérstaks saksóknara
um að koma til Íslands í skýrslutöku.
Saksóknari fékk því dómsúrskurð í hér-
aði fyrir því að gefa út alþjóðlega hand-
tökuskipun á hendur honum og hefur
hann síðan verið eftirlýstur á vef Int-
erpol.
Þessu vildi Sigurður ekki una og
kærði úrskurðinn til Hæstaréttar.
Í ljósi frávísunar Hæstaréttar stendur því hand-
tökuskipunin og Sigurður er enn eftirlýstur. Hins
vegar liggur fyrir að bresk lögregluyfirvöld
hyggjast ekki handtaka Sigurð fyrr en þegar og
ef hann verður ákærður. Hann verður þó hand-
tekinn ef hann yfirgefur Bretland.
Hæstiréttur staðfesti í gær farbannsúrskurð
yfir Hreiðari Má Sigurðssyni til 28. maí.
Í fyrradag staðfesti Hæstiréttur far-
bannsúrskurð yfir Magnúsi Guðmunds-
syni, fyrrverandi bankastjóra Kaup-
þings í Lúxemborg, til 28. maí. Þá var
farbann yfir Steingrími Kárasyni,
fyrrverandi yfirmanni áhættustýr-
ingar bankans, framlengt í héraði í
gær til sama dags. - sh
Hæstiréttur telur úrskurði um handtökuskipanir ekki kæranlega:
Kæru Sigurðar vísað frá dómi
SIGURÐUR
EINARSSON
BERLÍN, AP „Það er okkar sögulega
verkefni. Ef evran bregst þá bregst
Evrópa,“ sagði Angela Merkel,
kanslari Þýska-
lands, þegar
hún í gær hvatti
neðri deild
þingsins til að
samþykkja hlut
Þýskalands í eitt
þúsund millj-
arða evra björg-
unarpakka í
Evrópu.
„Evran er í
hættu. Ef við náum ekki að bægja
henni frá þá verða afleiðingarn-
ar óútreiknanlegar fyrir Evrópu
og afleiðingarnar utan Evrópu
eru óútreiknanlegar,“ sagði Merk-
el sem lét viðvörunar orð sín falla
í kjölfar þess að Þjóðverjar settu
nýjar reglur sem banna skortsölu á
skuldabréfum stórra fjármálafyr-
irtækja og á hlutabréfum í þeim.
- gar
Kanslari brýnir þýska þingið:
Evrópa bregst
ef evran fellur
ANGELA MERKEL
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
21°
24°
19°
17°
16°
13°
18°
18°
22°
21°
22°
25°
34°
21°
22°
16°
17°Á MORGUN
Hæg breytileg átt eða
hafgola.
LAUGARDAGUR
Hæg breytileg átt eða
hafgola.
11
12 14
16
14
12 12
12
1212
8
9
8
9
15
6
7
5
5
6
6
5
5
4
6
3
7
4
4
5
5
4
HÆGUR VINDUR
Það verður hægur
vindur víðast hvar
á landinu næstu
daga. Lítið sést
til sólar í dag en
þó léttir heldur til
norðvestanlands.
Á morgun verður
nokkuð bjart norð-
an- og austanlands
og á laugardag lítur
út fyrir bjart eða
nokkuð bjart veður
víða um land.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
EFNAHAGSMÁL Forsendur skapast
til að draga úr gjaldeyrishöft-
um og lækka stýrivexti frekar í
kjölfar samkomulags Seðlabanka
Íslands og Lúxemborgar um
kaup á íslenskum skuldabréfa-
pakka sem setið hefur fastur
ytra frá falli gamla Landsbank-
ans í októ ber 2008. Már Guð-
mundsson seðlabankastjóri und-
irritaði samninginn ásamt Yves
Mersch, kollega sínum í Lúxem-
borg, í gær.
Pakkinn gengur undir nafninu
Avens og samanstendur af íslensk-
um íbúðabréfum og innstæðum og
jafngildir fjórðungi af krónueign-
um erlendra aðila og hefur Seðla-
bankinn í Lúxemborg verið fram
til þessa stærsti einstaki erlendi
eigandi íslenskra króna. Til að
gefa einhverja mynd af umfangi
viðskiptanna jafngilda kaupin tíu
prósentum af öllum innstæðum í
íslenska bankakerfinu.
Kaupverð nemur rúmum 120
milljörðum íslenskra króna. Greitt
er með 402 milljóna evra skulda-
bréfi til fimmtán ára. Skuldabréf-
ið ber breytilega millibankavexti
(Euribor), sem eru um 0,6 prósent
um þessar mundir, að viðbættu
2,75 prósenta álagi. Það er sama
álag og á lánum Norðurlandanna
til Íslands. Að viðbættu skulda-
bréfinu greiðir Seðlabankinn 35
milljónir evra í reiðufé og sex
milljarða í íslenskum krónum.
Már Guðmundsson seðlabanka-
stjóri reiknar með því að gengi
krónunnar styrkist hraðar en
ella vegna samningsins. Gengið
styrkist um 1,7 prósent í gær,
endaði í 217 stigum, og hefur það
ekki verið sterkara síðan í byrjun
apríl í fyrra.
Már segir samninginn marka
mikilvægan áfanga hjá Seðla-
bankanum eftir efnahagshrun-
ið: „Við erum að byrja að þróa
aftur alvöru sambönd við erlenda
seðlabanka og komast inn í klúbb-
inn aftur. Það eykur traustið
almennt,“ segir hann og leggur
áherslu á að Seðlabanki Lúxem-
borgar hafi sýnt ákveðinn vel-
vilja, enda sé samningurinn hag-
stæður fyrir báða aðila.
Þegar viðskiptin ganga í gegn
færist skuldabréfapakkinn að
öllum líkindum inn í umsýslu-
félagið Eignasafn Seðlabank-
ans. Engin ákvörðun hefur verið
tekin um ráðstöfun hans. Það
verður gert í gagnsæju og opnu
ferli, samkvæmt upplýsingum frá
bankanum. jonab@frettabladid.is
SEÐLABANKASTJÓRAR SKIPTAST Á GJÖFUM Már Guðmundsson seðlabankastjóri
færði kollega sínum í gær tvær bækur um Ísland auk tveggja krukkna með ösku úr
Eyjafjallajökli sem Magnús Tumi, bróðir hans, útvegaði. Á móti gaf Yves Mersch Má
öskju með sérsleginni evrumynt með mynd af hauki. MYND/SEÐLABANKINN
Seðlabankinn stígur ný
skref eftir efnahagshrunið
Seðlabanki Íslands hefur samið um kaup á fjórðungi af krónueignum erlendra aðila. Samningarnir hafa
staðið yfir í tæpt eitt og hálft ár. Már Guðmundsson seðlabankastjóri telur líklegt að gengi krónunnar
styrkist fyrr en áður var talið. Forsendur skapist til að lækka vexti frekar og draga úr gjaldeyrishöftum.
Keyptu undir
aflandsgengi
„Það má reikna eitthvert gengi á
skuldabréfið. Það er um 250 til
rúmlega 280 krónur á evruna, allt
eftir því hvernig núvirðið er reiknað.
Þetta er birtingarmynd á því hversu
samningurinn er hagstæður fyrir
okkur,“ segir Már Guðmundsson
seðlabankastjóri. Ein evra kostaði
275 krónur á af landsmörkuðum
í gær, samkvæmt upplýsingum
netmiðilsins Keldan.
Avens-pakkinn
Skuldabréfapakkinn sem Seðlabanki Íslands hefur nú keypt var settur
saman af gamla Landsbankanum í Lúxemborg síðla árs 2008 þegar veru-
lega hafði harðnað á dalnum á alþjóðlegum fjármagnsmörkuðum. Lands-
bankinn keypti mikið magn ríkisskuldabréfa hér á landi og lagði pakkann
inn í Seðlabanka Lúxemborgar í skiptum fyrir lausafé. Þegar Landsbankinn
féll í október 2008 sat Seðlabanki Lúxemborgar uppi með trygginguna.
Skuldabréfastabbinn er fjórðungur af krónum í eigu erlendra aðila. Hefði
hann verið settur á markað var lengi vel óttast að hann gæti komið niður
á íslenskum skuldabréfa- og krónumarkaði. Viðræður um lausn mála hafa
staðið yfir frá því um áramótin 2009.
Þetta er annar skuldabréfapakkinn af tveimur sem gamli Landsbankinn
lagði inn í Seðlabanka Lúxemborgar í endurhverfum viðskiptum sínum við
hann. Hinn nefnist Betula og samanstendur af veði í erlendum eignum.
Ranghermt var að séreignarsjóður
Kaupþings hafi verið í umsjón Frjálsa
lífeyrissjóðsins í Fréttablaðinu í gær.
Séreignarsjóðurinn var í umsjón gamla
Kaupþings og hafði Frjálsi lífeyrissjóð-
urinn enga aðkomu að fjárfestingar-
stefnu, rekstri og fjárfestingum hans.
Þá var sjóðsfélögum heimilt að flytja
inneign sína í annan séreignarsjóð.
Beðist er velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTTING
Fimm á slysadeild
Flytja þurfti fimm manns á slysadeild
eftir fjögurra bíla árekstur á gatna-
mótum Stekkjarbakka um kvöldmat-
arleytið í gær. Áreksturinn var heldur
harkalegur en tildrög slyssins voru
óljós í gær. Fólkið mun ekki hafa
slasast alvarlega.
LÖGREGLUFRÉTTIR
DÓMSMÁL Steinþór Gunnarsson,
sem var forstöðumaður á verð-
bréfasviði Landsbankans, hefur
vísað til dóms kröfu um að fá 490
milljónir króna sem hann telur
sig eiga í ógreiddan bónus frá
árinu 2007.
Slitastjórn Landsbankans hafn-
aði kröfunni. Í fréttum Stöðvar 2
kom fram að árið 2007 fékk Stein-
þór greiddar rúmlega 200 millj-
ónir í bónus. Jafnframt kom fram
að bónusar hefðu á tilteknum
tímabilum verið hærri en tekjur
verðbréfasviðsins. - bþs
Vísar bónuskröfu til dóms:
Krefst 490 millj-
óna í bónus
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 19.05.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
206,1585
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
131,48 132,1
187,42 188,34
160,1 161
21,515 21,641
20,504 20,624
16,625 16,723
1,4404 1,4488
192,09 193,23
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Smellugas
Skiptu yfir í nýtt
og einfaldara kerfi
Fáðu nýja þrýstijafnarann
– þér að kostnaðarlausu!
smellugas.is
25%
afslá
ttur
af in
niha
ldi