Fréttablaðið - 20.05.2010, Page 8
8 20. maí 2010 FIMMTUDAGUR
KÖNNUN Í-listinn, sameiginlegt
framboð Samfylkingar, Vinstri
grænna, Frjálslyndra og óháðra,
fær hreinan meirihluta bæjarfull-
trúa á Ísafirði samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Fréttablaðsins
og Stöðvar 2 sem gerð var í gær-
kvöldi.
Framboðið nýtur stuðnings 48,4
prósenta þeirra sem afstöðu tóku í
könnuninni. Verði það niðurstaða
kosninga fengi framboðið fimm
bæjarfulltrúa af níu. Framboðið
fékk 40 prósent atkvæða í sveitar-
stjórnarkosningunum 2006 og fjóra
menn kjörna í bæjarstjórn sveitar-
félagsins.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks er samkvæmt
könnuninni fallinn. Sjálfstæðis-
flokkurinn tapar verulegu fylgi
samkvæmt könnuninni. Flokkur-
inn fengi 29,1 prósent atkvæða,
en naut stuðnings 42,4 prósenta
Ísfirðinga í síðustu kosningum.
Flokkurinn fengi miðað við þetta
fylgi þrjá bæjarfulltrúa, en er með
fjóra í dag.
Framsóknarflokkurinn fengi
16,2 prósent atkvæða ef kosið yrði
nú samkvæmt könnun Fréttablaðs-
ins og Stöðvar 2. Það er lítils hátt-
ar aukning frá kosningunum 2006,
þegar flokkurinn fékk 15,6 pró-
sent. Niðurstaðan hefur ekki áhrif
á fjölda bæjarfulltrúa Framsókn-
arflokksins. Flokkurinn myndi
halda sínum eina fulltrúa yrðu
þetta niðurstöður kosninga.
Alls sagðist 8,1 prósent þeirra
sem afstöðu tóku í könnuninni ætla
að kjósa Kammónistalistann yrði
gengið til sveitarstjórnarkosninga
nú. Verði það niðurstaðan í kom-
andi kosningum nær listinn ekki
inn bæjarfulltrúa.
Kammónistalistinn er nýtt fram-
boð skipað nemendum úr Mennta-
skólanum á Ísafirði. Menntskæl-
ingar hafa áður boðið fram, og
náðu tveimur mönnum í bæjar-
stjórn árið 1996 undir merkjum
Fönklistans. Þeir virðast langt frá
þeim árangri samkvæmt könnun
gærkvöldsins.
Hringt var í 600 manns miðviku-
daginn 19. maí. Þátttakendur voru
valdir með slembiúrtaki úr þjóð-
skrá. Svarendur skiptust jafnt eftir
kyni og hlutfallslega eftir aldri.
Spurt var: Hvaða lista myndir
þú kjósa ef gengið yrði til sveit-
arstjórnarkosninga í dag? Ef ekki
fékkst svar var spurt: Hvaða flokk
er líklegast að þú myndir kjósa?
Ef ekki fékkst svar var að lokum
spurt: Er líklegra að þú myndir
kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða ein-
hvern annan flokk? Alls tóku 65,8
prósent afstöðu til spurningarinnar.
brjann@frettabladid.is
KOSNINGAR Kosið verður á milli
tveggja eða fleiri lista í 54 af 76
sveitarfélögum í kosningunum 29.
maí. Alls eru 185 listar í framboði
og sitja á þeim 2.846 manns.
Flestir listar eru í Reykjavík,
átta, sjö í Kópavogi og sex á
Akureyri.
Sjálfkjörið er í fjórum sveitar-
félögum þar sem aðeins einn listi
kom fram. Á það við um Tálkna-
fjarðarhrepp, Skagaströnd, Breið-
dalshrepp og Djúpavogshrepp.
Í átján sveitarfélögum fara
fram svokallaðar óbundnar kosn-
ingar. Á það við þar sem enginn
listi kom fram. Eru allir kjósend-
ur í kjöri, nema þeir sem löglega
eru undanþegnir skyldu til að
taka kjöri og hafa fyrirfram
skorast undan því.
225.930 eru á kjörskrárstofni
vegna kosninganna í vor. 113.663
konur og 112.267 karlar. Eru það
næstum tíu þúsund fleiri en voru
á kjörskrá í sveitarstjórnarkosn-
ingunum fyrir fjórum árum.
Tæplega nítján þúsund manns fá
að kjósa nú í fyrsta sinn. Það eru
rúm átta prósent af heildarfjölda
kjósenda. - bþs
1. Hvaða þingkona sækist eftir
embætti varaformanns Sjálf-
stæðisflokksins?
2. Hvað vilja framsóknarmenn
að verði ókeypis í grunnskólum
Reykjavíkur?
3. Hver er leikmaður 2. umferð-
ar Pepsideildar karla að mati
Fréttablaðsins?
SJÁ SVÖR Á SÍÐU 50
Meira í leiðinniWWW.N1.IS / SÍMI 440 1000N1
ELDHEITT
EINTAK BROIL KING
39.998 KR.
GEM VNR. 076 53603IS
™
p™
S ™
V
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Njóttu
lífsins
í Varsjá
Nánari upplýsingar
á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Borgarferð
Verð á mann í tvíbýli:
89.900 kr.
Íslensk fararstjórn
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum,
gisting í 4 nætur á Hotel Mercure Warsawa
Fryderyc Chopin ásamt ríkulegum morgunverði,
íslensk fararstjórn og akstur til og frá flugvelli
10. – 14. júní
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
LÖGREGLUMÁL Rúmlega þrítugur
karlmaður, sem piltur um tvítugt
hefur kært til lögreglu fyrir að
hafa nauðgað sér, var yfirheyrður
hjá lögreglu í gær samkvæmt upp-
lýsingum Fréttablaðsins.
Eins og blaðið greindi frá í gær
bauð eldri karlmaðurinn hinum
yngri heim í gleðskap í húsnæði í
Hafnarfirði. Sá síðarnefndi reynd-
ist vera eini gesturinn þegar til
kom. Áfengis var neytt og líkur
taldar á að fíkniefni hafi einnig
verið höfð um hönd. Pilturinn sofn-
aði og kærir nú manninn fyrir að
hafa fært sér það í nyt. Sá síðar-
nefndi ber að atvikið hafi verið
með vilja þeirra beggja.
Umræddur maður hefur áður
sætt ásökunum um að leita á unga
menn. Í desember síðastliðnum
voru þrír karlmenn dæmdir í skil-
orðsbundið fangelsi í Héraðsdómi
Reykjaness fyrir líkamsárás á
hinn meinta kynferðisbrotamann
í Hafnarfirði árið 2007. Mennirn-
ir báru fyrir dómi að reiði þeirra
út í manninn hafi byggst á því að
hann hefði leitað á einn þremenn-
inganna, þá nítján ára gamlan,
sem hefði þá verið áfengisdauður.
Annar þremenninganna hefði lent í
svipuðu atviki af hendi hins meinta
nauðgara. Þessu neitaði maðurinn.
- jss
LÖGREGLAN Yfirheyrði meintan nauðg-
ara í gær.
Hefur áður sætt ásökunum um að leita á áfengisdauða pilta:
Meintur nauðgari yfirheyrður
11
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
ÍSAFJÖRÐUR
34 54 0
50
40
30
20
10
0
■ Kosningar 2006
SAMKVÆMT KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2 19. MAÍ
%
K
16,2 29,1 46,6 8,1
15,6
42,4
40,0
Í-listinn mælist með
hreinan meirihluta
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á Ísafirði fellur í komandi
kosningum ef marka má könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Sjálfstæðisflokk-
urinn tapar fylgi, en Í-listinn bætir við sig. Kammónistar ná ekki inn manni.
2.846 manns sitja á samtals 185 listum vegna sveitarstjórnarkosninganna:
Sjálfkjörið í fjórum sveitarfélögum
RÁÐHÚSIÐ Flest framboð eru í Reykjavík.
Óbundnar kosningar
Dalabyggð
Eyja- og Miklaholtshreppur
Helgafellssveit
Skorradalshreppur
Árneshreppur
Bæjarhreppur
Kaldrananeshreppur
Reykhólahreppur
Akrahreppur
Skagabyggð
Grýtubakkahreppur
Langanesbyggð
Svalbarðshreppur
Svalbarðsstrandarhreppur
Tjörneshreppur
Borgarfjarðarhreppur
Fljótsdalshreppur
Ásahreppur
SKIPULAGSMÁL Félag múslima á
Íslandi á í viðræðum við Reykja-
víkurborg um byggingarlóð fyrir
mosku. Í erindi til skipulagsfull-
trúa leggur félagið til þrjár mögu-
legar lóðir. Helst vilja múslimar
reisa moskuna á borgarlandi við
Bústaðaveg vestan við hús Lands-
virkjunar og Veðurstofunnar.
Einnig nefna þeir lóð sem ríkið
á við Sjómannaskólann og lóðina
sem SVR hafði á Kirkjusandi en
er nú í eigu Íslandsbanka. Félagið
hefur á liðnum árum oft sótt um
byggingarlóð án þess að málið hafi
verið leitt til lykta. - gar
Félag múslima á Íslandi:
Vilja mosku hjá
Veðurstofunni
VEISTU SVARIÐ?