Fréttablaðið - 20.05.2010, Side 25

Fréttablaðið - 20.05.2010, Side 25
FIMMTUDAGUR 20. maí 2010 25 Besti flokkurinn hefur dálít-ið mætt á pallborðsumræður. Það er ekki gaman. Þetta er eins og leiðinlegasta leikrit í heimi. Þar sitja frambjóðendur flokkanna við langt borð, og síðan er fólk sem situr úti í sal. Svo tala allir fram- bjóðendurnir. Þeir tala mest um hvað þeir eru sjálfir frábærir og stundum aðeins um hvað allir hinir eru ömurlegir og hallærislegir. Þeir lofa öllu fögru. Stundum missir maður hreinlega þráðinn og hættir að skilja hvað þeir eru að segja. Þeir tala skringilegt tungu- mál og nota orðasambönd og frasa sem hafa enga tilfinningalega til- vísun og eru yfirborðskenndir og innantómir. Sumir nota Power Point til að gera þetta enn þá kvalafyllra fyrir áhorfendur. Enginn notar Keynote. Svo fá þeir vini sína og stuðnings- fólk til að koma á fundina og hlæja að öllu sem þeir segja og klappa fyrir þeim, en vera fúlir við hina. Þetta er eins og sjoppuleg útgáfa af Morfís-keppninni. Þegar þeir eru loks búnir að tala er lítill tími fyrir spurningar, en þá fá þeir líka aftur tækifæri til að tala. Þetta er mjög leiðinlegt. Allir fá höfuðverk. Þetta verður gjarnan eins og leiðin- legasti húsfélagsfundur. Það sem er verst, er að enginn fær neitt út úr þessu og allir ganga fátækari frá borði, nema helst sá sem talaði mest og náði að sýna tíma annarra mesta lítilsvirðingu og drepa flesta úr leiðindum. Sér- staklega andstæðinga. Þeir virða engin tímamörk og halda áfram að blaðra. Jafnvel þó þeir séu komn- ir langt fram úr þeim tíma sem þeim var gefinn og fundarstjóri sé staðinn upp og orðinn pirraður. Þá hlær meðvirka stuðningsfólk- ið úti í sal taugaveiklunarhlátri og gefur í skyn að þetta sé eðlilegt og allt í lagi. En það er það ekki. Það er ekk- ert uppbyggilegt eða göfugt við þetta. Þetta er bara subbulegt málefnaklám að mestu leyti sem gengur út á að upphefja sjálfan sig á kostnað annarra. Besti flokkur- inn vill ekki taka þátt í svona leið- inlegum og óskilvirkum fundum. Okkur finnst þetta tímaeyðsla. Það er gaman í Besta flokknum. Þetta fyrirkomulag er gelt og úrelt og skilar engu uppbyggilegu. Það virðist gert til að drepa niður alla skapandi hugsun. Allir sem hafa gott hjartalag verða kjaftaðir í kaf. Þetta er bara ein tegund af frekjukeppni. Við göngum sorgmædd út af svona fundum og líður eins og við höfum setið með fyllibyttum á bar. Við höngum ekki á börum. Við viljum gera uppbyggilega hluti og hitta skemmtilegt fólk. Okkur finnst Power Point leiðinlegt for- rit. Keynote er aðeins skárra. Við vorum að hugsa um að gera ein- hverja stórfenglega, leiðinlega Power Point-kynningu, en við höfum ekki tíma til þess. Við viljum breyta þessu fyrir- komulagi og þeim reglum sem hafa verið settar. Við viljum hitta fólk, milliliðalaust, mæta á vinnustaði og hjá félagasamtök- um, sérstaklega ef frambjóðend- ur hinna flokkanna eru fjarver- andi á meðan. Við ætlum að halda þátttöku í pallborðsumræðum í algjöru lágmarki. Tími frekju, yfirgangs og leið- inda er liðinn. Það er ekkert uppbyggilegt eða göfugt við þetta. Þetta er bara subbulegt málefnaklám að mestu leyti sem gengur út á að upp- hefja sjálfan sig á kostnað annarra. Besti flokkurinn vill ekki taka þátt í svona leiðinlegum og óskilvirkum fundum. Möppumessur Íslenzka flokkakerfið ræður ekki lengur við hlutverk sitt. Það er ólýðræðislegt, selur sig hæstbjóð- anda og nýtur hvorki virðingar né velvildar þjóðarinnar. Einhver háværasta krafa búsáhaldabylt- ingarinnar var krafan um stjórn- lagaþing og nýja stjórnarskrá. Nú þarf að herða róðurinn að því að stjórnlagaþing verði kjörið hið allra fyrsta. Hér fer á eftir tillaga að nýrri stjórnskipan. 1. Forseti Íslands fer með fram- kvæmdavaldið. Hann skal kjör- inn í beinum kosningum og telst réttkjörinn hafi hann meirihluta greiddra atkvæða. Kjósa skal milli þeirra sem flest atkvæði fá ef eng- inn hefur tilskilinn meirihluta úr fyrri umferð. Allir atkvæðisbærir Íslendingar hafa kjörgengi en skylt er að frambjóðandi hafi stuðning minnst 5% en mest 10% kjósenda. Forseti Íslands skipar ríkisstjórn og skulu ráðherrar vera fjórir. 2. Alþingi fer með löggjafarvald- ið og skal kjörið úr einu kjördæmi og skal kjósa 30 þingmenn sem bjóða sig fram sem einstaklingar en hafa meðmælendur með fram- boði sínu – 1% kjósenda sem lág- mark og 2% sem hámark. 3. Dómarar skulu skipaðir til starfa – 4 ár í senn – af forseta Íslands með samþykki Alþingis. Dómstig verði þrjú. Með því að kjósa forsetann beint er verið að sameina núverandi embætti forsætisráðherra og for- seta. Mér finnst óþarfi að fara út í nánari skýringar á þörfinni fyrir þetta, en bendi fólki á að horfa um öxl til síðustu ára. Eitt af því sem einkennt hefur stjórnmálin á Íslandi undanfarin ár er oflæti, ofdramb og sýndarmennska. Lítil þjóð þarf að sníða sér stjórnkerfi eftir þörfum sínum en ekki eftir þörfum flokkanna til þess að koma klíkuvinum í óhófslifnað á kostn- að almennings. Fimm manna ríkisstjórn undir forystu forseta er fullfær um að stjórna þessari smáþjóð. Sama máli gegnir um Alþingi. Það er engin þörf fyrir 63 þing- menn. Má jafnvel færa prýðileg rök fyrir því að 10-15 þingmenn dygðu ágætlega. Hins vegar er talan 30 hugsuð þannig að flest sjónarmið komi mönnum að. Gera má ráð fyrir því að þingmenn greiddu miklu fremur atkvæði samkvæmt hugsjónum eða þeim viðhorfum sem þeir hafa áður kynnt kjósendum ef þeir væru ekki bundnir á klafa klíkuveldis flokkanna. Setja þarf inn í stjórnarskrá ákvæði um að tiltekinn fjöldi kjósenda – t.d. 10% – geti krafizt atkvæðagreiðslu hvort heldur er í sveitarfélögum eða á landsvísu. Það er orðið miklu minna mál en áður var að hafa atkvæðagreiðslur. Þessum hugmyndum er hér varpað fram til umræðu. Nýtt lýðveldi – nýtt stjórnkerfi Íslenskt stjórnkerfi Bárður G. Halldórsson framhaldsskólakennari Borgarmál Jón Gnarr oddviti Besta flokksins Opnunartími: Mán-Fös. kl: 10-18 Laug. kl: 12-16 Fossháls 5-7 110 Reykjavík Sími 551 5600 Fax 551 5601 utilegumadurinn.is Eximo 2010 hjólhýsi á einstöku verði ! • Létt og meðfærileg hús, auðveld í drætti. • Mjög gott verð. • Sterklega smíðuð hús. • Falleg hönnun. • 91 Lítra ísskápur. • Gasmiðstöð m/ Ultra heat ( rafm. hitun ) • Litaðar rúður • 12 og 220 Volta rafkerfi. Eximo 520L Hjólhýsi Eximo 460 Hjólhýsi Verð: 2.848.000krVerð: 2.998.000krVerð: 2.998.000kr Lengd: 5,03 m Breidd: 2,30 m Þyngd: 1050 kg Svefnpláss fyrir 5 (kojuhús) Lengd: 5,03 m Breidd: 2,30 m Þyngd: 1050 kg Svefnpláss fyrir 4 Lengd: 4,57 m Breidd: 2,30 m Þyngd: 1000 kg Svefnpláss fyrir 4 Frábær kaup Eximo 520B Hjólhýsi – Bólgueyðandi og verkjastillandi H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - A c ta v is 0 1 4 0 5 1 Íbúfen® Göngum frá verknum Notkunarsvið: Íbúfen inniheldur íbúprófen sem er bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Íbúfen er notað við liðagigt, slitgigt, tíðaverkjum, tannpínu og höfuðverk. Einnig eftir minniháttar aðgerðir, t.d. tanndrátt. Varúðarreglur: Fólk sem hefur ofnæmi fyrir íbúprófeni eða öðrum skyldum lyfjum (NSAID), með skerta lifrarstarfsemi eða alvarlegan hjarta- eða nýrnasjúkdóm á ekki að nota lyfið. Fólk sem fengið hefur astma, nefslímubólgu eða ofsakláða eftir töku acetýlsalicýlsýru eða annarra bólgueyðandi lyfja á ekki að nota lyfið. Gæta þarf varúðar við gjöf lyfsins hjá fólki með tilhneigingu til magasárs eða með sögu um slík sár, aukna blæðingartilhneigingu eða helluroða (SLE). Einnig hjá sjúklingum með veilt hjarta, nýrna- eða lifrarsjúkdóm, sérstaklega ef meðhöndlað er með þvagræsilyfi samtímis, þá þarf að fylgjast með mögulegri minnkaðri nýrnastarfsemi og vökvasöfnun. Lyfið er ekki ætlað barnshafandi konum. Aukaverkanir: Íbúfen getur valdið aukaverkunum eins og t.d. meltingar- óþægindum, niðurgangi, ógleði, útbrotum, þreytu og höfuðverk. Skammtastærðir: Fullorðnir: Venjulegir skammtar eru 600-2000 mg á dag í 3-4 jöfnum skömmtum. Ekki er mælt með stærri dagskammti en 2400 mg. Börn: Venjulegir skammtar eru 20 mg/kg líkamsþunga á dag í 3-4 jöfnum skömmtum. Börnum <30 kg skal eigi gefa meira en 500 mg á dag. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Lyfið skal geymt þar sem börn hvorki ná til né sjá. Janúar 2009

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.