Fréttablaðið - 20.05.2010, Page 27
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
LADY GAGA er þekkt fyrir sérstæðan stíl. Hún sækist nú eftir að
gerast lærlingur Philips Treacy, sem er hattagerðarmeistari. Hún hitti
Treacy á Brit-verðlaunahátíðinni og innti hann eftir því hvort hann
gæti kennt henni listina við að búa til stór og furðuleg höfuðföt.
Saga Garðarsdóttir leiklistarnemi
hefur sinn sérstaka stíl. Henni
þykir gaman að vera búningaleg
og þverröndótt þykir henni fal-
legt. „Svo klæðist ég öllu því sem
vinkonur mínar prjóna á mig eða
gefa mér,“ segir hún en tískuversl-
anir forðast hún út af verðlaginu.
Heldur kýs hún Tiger og Rúmfata-
lagerinn.
Uppáhaldsflíkin um þessar
mundir er til dæmis bleikur hjóla-
hjálmur sem elskulegur kærasti
Sögu gaf henni á dögunum. „Hann
veitir mér öryggistilfinningu því
án hans er ég stöðugt hrædd um
að reka mig upp undir eitthvað eða
fá hamar í hausinn. Ég læri líka í
svo óöruggu vinnuumhverfi af því
leiklistarskólinn er að hruni kom-
inn og hjálmur í raun bara hluti
af grunnöryggisbúnaði nemenda.
Þannig verjum við leiklistarnem-
arnir okkur gegn tónlistarnemum
sem stundum falla bjargarlausir
ofan af annarri hæðinni,“ segir
Saga glettin og bætir við: „Svo
hefur Hjálmar rektor líka lýst því
yfir að þeir nemendur sem haldi
nafni hans á lofti með því að ganga
með hjálm dags daglega fái meira
konfekt á útskrift en aðrir. Þetta
fyrirkomulag hentar mér ágætlega
því ég tek allri gagnrýni betur með
hjálm því hann er nokkurs konar
brynja sálarlífs míns,“ segir hún
og hlær.
Reyndar er Saga að grínast og
gengur ekki með hjálminn dags
daglega þótt hún noti hann mikið
við hjólreiðar. Henni þykir enda
gaman að segja ýkjusögur líkt
og hún mun gera í kvöld klukkan
21.30 á Prikinu. Þar verður hún
með gamansamt uppistand ásamt
vinkonu sinni Uglu Egilsdóttur og
Halldóri Halldórssyni.
solveig@frettabladid.is
Ver sig gegn fljúgandi
tónlistarnemendum
Bleiki hjólahjálmur Sögu Garðarsdóttur leiklistarnema er í miklu uppáhaldi. Hann veitir henni öryggistil-
finningu og er kveikja að ýkjusögum sem Saga hefur gaman af og mun segja gestum á Prikinu í kvöld.
Saga verður með uppistand á Prikinu í kvöld klukkan 21.30 ásamt Uglu Egilsdóttur og Halldóri Halldórssyni. Þar mun hún halda
uppi gleðinni með því að segja ýkjusögur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fjölþrepa
bakbrettið
• Eykur sveigjanleika
• Linar bakverki
• Bætir líkamsstöðu
• Auðvelt í notkun
• Má nota hvar sem er
Opið virka daga frá kl. 9 -18
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Verð: 7.950 kr.
Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is
Sérverslun með
Listh
STILLANLEG RÚM
HEILSUDÝNUR
OG
HEILSUKODDAR
Queen rúm með botni
kr. 179.900
SAGA, ÞÓR
OG VALHÖLL
Heilsudýnur
á frábæru verði.
Queen rúm með botni
frá kr. 99.900
Gleðilegt sumar!
www.svefn.is
2x90 cm – Verð frá 349.900