Fréttablaðið - 20.05.2010, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 20.05.2010, Blaðsíða 27
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 LADY GAGA er þekkt fyrir sérstæðan stíl. Hún sækist nú eftir að gerast lærlingur Philips Treacy, sem er hattagerðarmeistari. Hún hitti Treacy á Brit-verðlaunahátíðinni og innti hann eftir því hvort hann gæti kennt henni listina við að búa til stór og furðuleg höfuðföt. Saga Garðarsdóttir leiklistarnemi hefur sinn sérstaka stíl. Henni þykir gaman að vera búningaleg og þverröndótt þykir henni fal- legt. „Svo klæðist ég öllu því sem vinkonur mínar prjóna á mig eða gefa mér,“ segir hún en tískuversl- anir forðast hún út af verðlaginu. Heldur kýs hún Tiger og Rúmfata- lagerinn. Uppáhaldsflíkin um þessar mundir er til dæmis bleikur hjóla- hjálmur sem elskulegur kærasti Sögu gaf henni á dögunum. „Hann veitir mér öryggistilfinningu því án hans er ég stöðugt hrædd um að reka mig upp undir eitthvað eða fá hamar í hausinn. Ég læri líka í svo óöruggu vinnuumhverfi af því leiklistarskólinn er að hruni kom- inn og hjálmur í raun bara hluti af grunnöryggisbúnaði nemenda. Þannig verjum við leiklistarnem- arnir okkur gegn tónlistarnemum sem stundum falla bjargarlausir ofan af annarri hæðinni,“ segir Saga glettin og bætir við: „Svo hefur Hjálmar rektor líka lýst því yfir að þeir nemendur sem haldi nafni hans á lofti með því að ganga með hjálm dags daglega fái meira konfekt á útskrift en aðrir. Þetta fyrirkomulag hentar mér ágætlega því ég tek allri gagnrýni betur með hjálm því hann er nokkurs konar brynja sálarlífs míns,“ segir hún og hlær. Reyndar er Saga að grínast og gengur ekki með hjálminn dags daglega þótt hún noti hann mikið við hjólreiðar. Henni þykir enda gaman að segja ýkjusögur líkt og hún mun gera í kvöld klukkan 21.30 á Prikinu. Þar verður hún með gamansamt uppistand ásamt vinkonu sinni Uglu Egilsdóttur og Halldóri Halldórssyni. solveig@frettabladid.is Ver sig gegn fljúgandi tónlistarnemendum Bleiki hjólahjálmur Sögu Garðarsdóttur leiklistarnema er í miklu uppáhaldi. Hann veitir henni öryggistil- finningu og er kveikja að ýkjusögum sem Saga hefur gaman af og mun segja gestum á Prikinu í kvöld. Saga verður með uppistand á Prikinu í kvöld klukkan 21.30 ásamt Uglu Egilsdóttur og Halldóri Halldórssyni. Þar mun hún halda uppi gleðinni með því að segja ýkjusögur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fjölþrepa bakbrettið • Eykur sveigjanleika • Linar bakverki • Bætir líkamsstöðu • Auðvelt í notkun • Má nota hvar sem er Opið virka daga frá kl. 9 -18 www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Verð: 7.950 kr. Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Sérverslun með Listh STILLANLEG RÚM HEILSUDÝNUR OG HEILSUKODDAR Queen rúm með botni kr. 179.900 SAGA, ÞÓR OG VALHÖLL Heilsudýnur á frábæru verði. Queen rúm með botni frá kr. 99.900 Gleðilegt sumar! www.svefn.is 2x90 cm – Verð frá 349.900
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.