Fréttablaðið - 20.05.2010, Side 32
20. maí 2010 FIMMTUDAGUR6
Í nýjasta hefti þýska brúðkaupstímaritsins
Hochzeit er að finna sextán síðna umfjöllun
um hárgreiðslumeistarann Írisi Sveinsdótt-
ur og greiðslurnar hennar en hún hefur getið
sér gott orð í Þýskalandi.
„Ég fór upphaflega til Þýskalands til að
taka þátt í hárgreiðslukeppnum árið 1986
og hlaut leiðsögn þýska landsliðsþjálfarans
í hárskurði,“ segir Íris sem vann til fjölda
verðlauna og státar meðal annars af lands-
meistaratitli. „Í kjölfarið ákvað ég að opna
mína eigin stofu sem heitir Iris Hair Art og
er í Mainz.“
Árið 1991 fór Íris að vinna fyrir amer-
íska fyrirtækið Paul Mitchell og hefur ferð-
ast víða til að halda sýningar á vegum þess.
„Undanfarin átta ár hef ég svo verið með
tvær stórar brúðarsýningar í Þýskalandi
og síðustu fimm árin hef ég gert brúðarlínu
fyrir Hochzeit. Í ár gáfu þeir út sérblað um
brúðargreiðslur og þar fengu greiðslurnar
mínar sextán síðna umfjöllun. Þar af voru
tvær síður lagðar undir viðtal við mig,“ segir
Íris. Hún vinnur náið með ljósmyndaranum
Bernd Siegel sem myndar greiðslurn-
ar skref fyrir skref en þannig getur
fólk séð hvernig þær verða til
auk þess sem þær eru stund-
um notaðar sem kennslu-
myndir fyrir hárgreiðslu-
fólk. Íris segir umfjöllunina
mikla viðurkenningu enda hafi
enginn annar hárgreiðslu-
maður verið tekinn fyrir
með sams konar hætti.
Íris flutti heim fyrir
þremur árum og tók við rak-
arastofunni Hárbæ að Lauga-
vegi 168 af föður sínum
Sveini Árnasyni. „Bæði
pabbi og afi voru rakar-
ar svo þetta er í ætt-
inni. Ég byrjaði sem
rakari en fór svo
yfir í síðara hár og
þó ég klippi, liti og raki þá finnst mér æðis-
lega gaman að gera uppsetningar og greiðsl-
ur, ekki síst brúðargreiðslur enda frábært að
fá að taka þátt í stóra deginum með fólki.“
Íris er enn með annan fótinn í Þýskalandi
og rekur áfram stofuna í Mainz. Spurð um
þýsku hártískuna segir hún hana aðeins stíf-
ari en hér heima enda hægt að setja hárið
meira upp án þess að eiga það á hættu að
það fari út um allt í næstu vindhviðu. Þá
segir hún hártískuna kven-
legri nú en oft áður. „Það ger-
ist alltaf í kreppu. Línurnar
verða kvenlegri, konur mála
sig meira og það er meira
um blúndur og annað fín-
erí. Í brúðargreiðslun-
um hef ég því meðal
annars verið að horfa
til gamalla Hollywood-
stjarna eins og Grace
Kelly og fleiri en auk
þess finnst mér gefast vel
að vera með annan fót-
inn í Þýskalandi og
nota áhrif frá báðum
löndum.“
vera@frettabladid.is
Nýjar vörur
Kjóll svartur
3.990 kr.
one sizes
Þessi er komin a ur!
Kjóll svartur
með blómum
6.990 kr.
stærðir s/m og m/l
Kjóll með pífum svartur
og einnig l í dröppuðu
8.490 kr.
stærðir s,m,l
Opið frá 11-18.00 í Smáralind
Rauður kjóll
l einnig í bláu og gráu
6.490 kr.
stærðir 8–14
Með átta opnur í þýsku brúðkaupstímariti
Hárgreiðslumeistarinn Íris Sveinsdóttir rekur hárgreiðslustofu í Þýskalandi og hefur gert það gott þar í landi um árabil. Á dögunum birtust sextán síður með brúðargreiðslum
hennar í nýjasta hefti brúðkaupstímaritsins Hochzeit. Í brúðargreiðslum horfir hún meðal annars til gamalla Hollywood-stjarna á borð við Grace Kelly.
Greiðslurnar voru myndaðar skref fyrir skref.
Íris hefur sérstaklega gaman
af því að gera brúðargreiðslur
enda fær hún þannig að taka
þátt í stóra deginum með
fólki. Hún rekur hárgreiðslu-
stofu á Laugaveginum og í
Mainz í Þýskalandi.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N