Fréttablaðið - 20.05.2010, Side 40
28 20. maí 2010 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
SÖNG- OG LEIKKONAN CHER ER 64 ÁRA
„Konur geta vissulega beðið eftir
þeim eina rétta, en í millitíðinni
ættu þær að eiga sem dásamleg-
astan tíma með öllum þeim röngu.
Karlmenn eru heldur ekki nauð-
syn heldur lúxus, og ættu ávallt að
vera eins og Kleenex-þerripappír:
mjúkir, sterkir og einnota.“
Bandaríska söng- og leikkonan Cher
er þekkt fyrir ævarandi unglegt útlit.
Hún er margverðlaunuð stjarna í tón-
list, sjónvarpi og kvikmyndum.
AFMÆLI
ÞÓRARINN
TYRFINGS-
SON læknir
er 63 ára.
ÓLAFUR H.
KRISTJ-
ÁNSSON
fótbolta-
þjálfari er
42 ára.
MERKISATBURÐIR
1818 Siglufjörður verður lög-
giltur verslunarstaður.
1840 Kristján VIII. heitir því að
fulltrúaþing skuli endur-
reist á Íslandi.
1922 Vinna við Flóaáveitu hefst
og eru mestu áveitufram-
kvæmdir hérlendis.
1944 Þjóðaratkvæðagreiðsla
um lýðveldisstofnun
hefst.
1979 Íslenskt mál, þáttur Gísla
Jónssonar, birtist í fyrsta
sinn í Morgunblaðinu.
1994 Þórólfur Jónsson útskrif-
ast úr Verslunarskóla Ís-
lands með hæstu ein-
kunn sem gefin hefur
verið á stúdentsprófi hér
á landi, 9,76.
Gengið var í fyrsta sinn á land á Jólni
við Surtsey. Eyjan var þá 35 metra
há, en hún hvarf næsta vetur, árið
1967.
Jólnir myndaðist við neðansjávar-
gos 0,9 kílómetra suðvestur af Surts-
ey á jólum 1965 og dregur þaðan
nafn sitt. Jólnir náði hæst um 70
metra hæð og varð allt að 0,3 km²
að stærð. Síðast sást gos í Jólni 10.
ágúst 1966 en eyjan var horfin sjón-
um í lok október sama ár.
Surtseyjareldar eru með lengstu
eldgosum hér á landi síðan sögur hófust. Gossins
varð fyrst vart að morgni 14. nóvember 1963, um
átján kílómetrum suðvestur af Heimaey í Vestmanna-
eyjum, þar sem sjávardýpi er um 130 metrar. Eyja
hafði myndast strax daginn eftir og í lok janúar 1964
var hæð hennar orðin 174 metrar.
Þann 1. febrúar 1964 færði gosið sig
um set þar sem Surtur yngri gaus
gjósku fram í apríl. Frá 28. desember
til 6. janúar 1964 varð vart við neð-
ansjávargos 2,5 kílómetrum aust-
norðaustur af Surtsey. Þar hlóðst upp
af hafsbotni 100 metra hár hryggur,
kallaður Surtla.
Í lok maí 1965 varð svo vart við
gos á hafsbotni 0,6 km austnorð-
austur af Surtsey og sást í litla eyju
þann 28. maí sem hlaut nafnið Syrtl-
ingur og gaus sprengigosum fram í október sama ár.
Jólni svipaði mjög til Syrtlings sem mældist mest
yfir 70 metrar á hæð og um 0,15 km² að flatarmáli, en
eyjan brotnaði fljótt niður af völdum sjávargangs og
var horfin með öllu 24. október 1965.
ÞETTA GERÐIST: 20. MAÍ 1966
Gengið á land á Jólni við Surtsey
ELDGOS Í SURTSEY ÁRIÐ 1964.
„Ég þurfti sem betur fer ekki að
smakka þá alla, en alls dæmdi ég
bjórtegundir í níu af níutíu flokkum,“
segir Guðmundur Mar Magnússon,
efnafræðingur og bruggmeistari hjá
Ölgerð Egils Skallagrímssonar.
Guðmundur er fyrstur Íslendinga
kallaður til dómarastarfa á World
Beer Cup, eða heimsmeistaramóti
bjóra, sem nýlega var haldið í Chi-
cago. Að þessu sinni voru metnir
3.330 bjórar frá 44 löndum, en keppt
var í 90 flokkum.
Aðeins þeim allra bestu sem öðl-
ast hafa virðingu í faginu hlotnast sá
heiður að taka sæti í dómnefndinni.
„Ölgerðin hefur reglulega tekið þátt
í heimsmeistaramótinu og unnið þar
til verðlauna. Eftir síðustu keppni
var leitað til mín um að dæma bestu
bjóra veraldar, en áður þurfti ég að
leggja fram meðmælendur og efn-
ismat,“ segir Guðmundur sem sjálf-
ur er margverðlaunaður bruggari.
Hans þekktasta afurð er vafalaust
Egils Gull sem hlaut silfurverðlaun á
heimsmeistaramótinu 2008 og Egils
Lite sem fékk gullverðlaun 2006. Nýj-
ustu veigar hans, Polar Beer, hrepptu
að þessu sinni bronsverðlaun í flokkn-
um International Style Lager þar sem
valið stóð á milli 58 bjórtegunda.
„Bjór er endalaus flóra og mögu-
leikarnir ótakmarkaðir. Í grunninn
eru tvær tegundir sem fara eftir því
hvort gerið flýtur upp í topp tanks-
ins eða sest á botninn eftir gerjun.
Þannig er öl með toppgeri en gerið
sest til botns í lageröli. Undir þess-
um tveimur tegundum eru svo ótal
undirflokkar og hægt að búa til enda-
lausar útfærslur af bjór,“ segir Guð-
mundur og játar að starf bruggmeist-
arans sé bæði margþætt og flókið, en
bruggmeistaramenntun sína hlaut
hann í Danaveldi þar sem krafist er
háskólaprófs í efnafræði eða efna-
verkfræði.
„Það felst mikil hugsun í því að
brugga bjór og aðferðirnar geysiflókn-
ar. Velja þarf saman hráefni sem kall-
ar fram lit og bragð og þar sem enginn
sykur finnst í bjór, annar en sá sem
kemur úr maltkorni, þarf að vinna það
á afar nákvæman hátt svo sykurinn
nýtist til gerjunar,“ segir Guðmundur
sem valdi sér efnafræði á háskólaár-
unum vegna áhuga á viðfangsefninu
en sóttist síðar eftir bruggmeistara-
námi eftir að hafa sinnt gæðaeftirliti
hjá Ölgerðinni um tíma.
„En ég hafði engan sérstakan áhuga
á bjór fyrr en ég kom hingað og er nú
orðinn mikill bjóráhugamaður sem
að sjálfsögðu skemmir ekki fyrir. Í
keppninni fer smökkunin þannig fram
að við fáum ómerkt bjórsýni úr hverj-
um flokki og drekkum þau, en aldrei
svo mikið að menn verði drukknir,
þótt maður finni örlítið fyrir áhrifum.
Galdurinn er að fara ekki yfir strikið,
en bjór er dæmdur í þremur lotum þar
til einn stendur eftir sem sigurvegari.
Því er ekki hægt að benda á einhvern
einn ákveðinn bjór sem besta bjór í
heimi því sigurvegararnir koma úr
öllum flokkum.“
Að sögn Guðmundar stendur
íslenski bjórinn sig vel á heimsvísu
en Íslendingar eru með þeim yngstu
í faginu.
„Fremstir í heiminum eru þó senni-
lega Þjóðverjar og svo Bandaríkja-
menn, en þeir eru í fararbroddi í svo-
kölluðu „micro brewery“ sem nú fer
sem bylgja um heiminn. Það eru í raun
lítil brugghús og algeng á veitinga-
stöðum sem vilja brugga sínar eigin
bjórtegundir og afbrigði. Ölgerðin er
þar enginn eftirbátur og í smábrugg-
húsinu Borg hafa bruggmeistarar nú
einstaka aðstöðu til að vinna við frek-
ari þróunar- og tilraunastarfsemi í
bjórgerðinni.“ thordis@frettabladid.is
GUÐMUNDUR MAR MAGNÚSSON BRUGGMEISTARI: DÆMDI Á WORLD BEER CUP
Yfir 3.000 bjórar dæmdir
GAMAN Í VINNUNNI Guðmundur Mar Magnússon er margverðlaunaður bruggmeistari Ölgerð-
arinnar en hefur nú staðið vakt dómara á heimsmeistaramóti bjórs í Chicago. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Íþróttakennarinn Sigurður Guðmunds-
son, fyrrverandi skólastjóri Heiðaskóla
í Borgarfirði, afhenti Grensásdeild
nýlega fjórtán pör af göngustöfum. Inn-
flytjendur stafanna styrktu famtakið.
„Ég hafði lent á Grensásdeildinni
sem sjúklingur tímabundið og var að
staulast þar um með grind en fannst
það ekki ganga nógu vel og bað kon-
una að færa mér stafina mína,“ segir
Sigurður sem hefur stundað stafgöngu
frá því hún barst til Íslands. „Fólkið
skildi ekkert í þessum náunga sem var
á ferð um gangana með stafi. En mér
fannst ómögulegt að Grensás ætti ekki
svona göngustafi því þeir henta vel til
þjálfunar. Þegar ég útskrifaðist fór
ég til þeirra sem flytja þá inn og þeir
tóku mér afskaplega vel svo ég náði í
fjórtán pör af stöfum og værðarvoðir
líka sem fólkið á Grensás getur breitt
ofan á sig fyrir hádegisblundinn,“ lýsir
hann.
Vöðvaþjálfun í efri hluta búksins er
um 40 prósentum meiri þegar geng-
ið er með stafi en staflaus og um leið
léttir á öklum, hnjám og mjöðmum, að
sögn Sigurðar. Hann ætlar að veita
þjálfurunum á Grensási tilsögn um
meðferð stafanna. - gun
Vildi að Grensás ætti göngustafi
ÁNÆGJA Fremstur er Sigurður og eiginkonan
Laufey Kristjánsdóttir lengst til hægri.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Innilegar þakkir fyrir samúð og vin-
arhug vegna fráfalls systur okkar og
frænku,
Eydísar Eyþórsdóttur.
Guðmundur Pétursson
Ingibjörg Eyþórsdóttir
Sigríður Eyþórsdóttir
Þórður Eyþórsson
Guðríður Lillý Guðbjörnsdóttir
og systkinabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og dóttir,
Heiðrún Sverrisdóttir
leikskólakennari, frá Skógum í
Hörgárdal, Fjallalind 7, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans þann 14. maí. Útförin
verður auglýst síðar.
Þorsteinn Berg
Þröstur Berg
Sverrir Ágúst Berg Eva Gunnlaugdóttir
Gunnlaugur Berg Sverrisson Heiðrún Berg Sverrisdóttir
Álfheiður Ármannsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jóhanna Lúvísa
Þorsteinsdóttir,
Víkurbraut 30, Hornafirði,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði 17. maí, verð-
ur jarðsungin frá Hafnarkirkju laugardaginn 22. maí
kl. 14. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en
þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningar-
sjóð Skjólgarðs, sími 470-8000/478-2321, eða minning-
arsjóð Ingibjargar Guðmundsdóttur til styrktar slysa-
varnardeildum á Hornafirði, sími 470-8700/692-2936.
Óskar Unnsteinn Guðmundsson Laufey Óskarsdóttir
Erlingur Kristinn Guðmundsson Kristín Auður
Gunnarsdóttir
Þorgrímur Guðmundsson Auður G. Sigurðardóttir
Sædís Guðmundsdóttir Andrés Ágúst Guðmundsson
Reynir Guðmundsson Sigríður Lárusdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.