Fréttablaðið - 20.05.2010, Page 44

Fréttablaðið - 20.05.2010, Page 44
32 20. maí 2010 FIMMTUDAGUR menning@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Fimmtudagur 20. maí 2010 ➜ Opnanir 17.00 Í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu verður opnuð sýning á verk- um Unnars Arnar J. Auðarsonar og einnig verður opnuð sýning á verkum 11 listamanna þar sem leikið er með hug- takið kyrralífsverk. 18.00 Í Nýlistasafninu við Skúlagötu 28 verður opnuð sýning á verkum þýska listamannatvíeykisins Nikolai von Rosen og Florian Wojnar. Opið þri.-lau. kl. 12-17. Nánari upplýsingar á www. nylo.is. 18.30 Opnun verður í Ásmundarsafni við Sigtún þegar sýnd verður innsetning Ráðhildar Ingadóttur. Opið alla daga kl. 10-16. 20.00 Í Hafnarborg við Strandgötu í Hafnarfirði opnar Erling T.V. Kling- enberg sýningu. Nánari upplýsingar á www.hafnarborg.is. Opið alla daga nema þriðjudaga kl. 12-17, fimmtudaga til kl. 21. ➜ Tónleikar 20.00 Systurnar Rannveig Sif og Hólmfríður Sigurðardóttir flytja róman- tísk sönglög frá Frakklandi, Þýskalandi og Spáni á tónleikum í Salnum við Hamraborg í Kópavogi. 20.00 Sönghópurinn Norðurljós held- ur tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík. Fjölbreytt efnisskrá með bæði erlendum og íslenskum lögum. 21.00 Matthew Collings og Mikael Lind halda tónleika á Sódómu Reykja- vík við Tryggvagötu. Aðgangur er ókeypis. 21.30 Matti Sax and the Icesavers flytja hressandi tónlist að hætti New Orleans-búa á tónleikum á Rósenberg við Klapparstíg. Gestasöngkona er Áslaug Helga. ➜ Námskeið 19.15 Kristinn R. Ólafsson útvarps- maður fjallar um borgina Madríd á námskeiði sem Endurmenntun HÍ stend- ur fyrir að Dunhaga 7. Námskeiðið er öllum opið. Skráning og frekari upplýsingar á www. endurmenntun.is ➜ Leikrit 20.00 Leikfélag Seyðisfjarðar sýnir verkið Blúndur og blásýra eftir Joseph Kesselring í félagsheimilinu Herðubreið við Hafnargötu á Seyðisfirði. ➜ Fjölskyldumorgnar 10.30 Aðalsafn Borgarbókasafns Reykjavíkur við Tryggvagötu stendur fyrir dagskrá alla fimmtudagsmorgna ætlaðri fjölskyldum með börn á aldrinum 0-6 ára. Í dag mun Fríða B. Jónsdóttir vera með umfjöllun um tvítyngi. Nánari upp- lýsingar á www.borgarbokasafn.is. ➜ Sýningar Í Kling & Bang galleríi að Hverfisgötu 42, hefur verið opnuð samsýning lista- mannanna Mariu Dembek og Robin McAulay. Opið fim.-sun. kl. 14-18. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Sýning á verkum Erlings T. V. Klingenberg verður opnuð í Hafnarborg í kvöld. Yfirskrift sýningarinnar er: Það er erfitt að vera listamaður í líkama rokk- stjörnu. Yfirskrift sýningarinnar vísar til umfjöllunarefnis sem Erling hefur talsvert fengist við en það er spurn- ingin um það hvað það er að vera listamaður. „Þessi setning er búin að fylgja mér svolítið lengi. Þetta byrjaði í Kanada þegar ég var að tala við listamann þar. Við vorum að velta því fyrir okkur hvort það væri erfitt að vera listamaður í lík- ama rokkstjörnu eða rokkstjarna í líkama listamans,“ segir Erling, sem síðast hélt sýningar í Berlín og Danmörku. Sýningin í Hafnarborg verður opnuð með gjörningi eða virkjun eins og Erling vill kalla uppátækið. Þar beinir hann athyglinni að eigin persónu, líkama og tilvist og undir- strikar þessa þætti einnig í sýning- unni með málverki og skúlptúr sem varpa fram spurningum um frum- mynd og eftirmynd, tilbúning og upprunaleika. Þátttakendur í virkj- uninni eru The Stimulators, eða þau Helgi Svavar Helgason, Valdi- mar Kolbeinn Sigurjónsson, Ómar Guðjónsson, Heiða Eiríks, Bóas Hallgrímsson og Óttarr Proppé. Auk þeirra tekur Kvennakór Öldu- túns þátt og Karl Jóhann Jónsson og Klingenberg-klúbburinn sem er skipaður ungu fólki. „Þau eru í raun og veru að drífa listamann- inn áfram. Ég verð svolítið mynd- listarmaðurinn og þau verða tón- listarmaðurinn eða -mennirnir. Svo er einhver víxlverkun á milli og þau drífa listamanninn áfram í að skapa,“ segir Erling. „Ætli það séu ekki um 46 manns sem eru með mér í þessu. Við ætlum að reyna að byrja á slaginu átta.“ Erling T. V. Klingenberg hefur verið atkvæðamikill í íslensku lista- lífi á undanförnum árum en hann hefur um árabil rekið sýningarrým- ið Kling og Bang ásamt öðrum lista- mönnum. Erling lauk prófi í mynd- list frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1994. Á meðan hann stundaði nám þar var hann skipti- nemi við skólann Fachhochschule für Bildende Kunst í Kiel í Þýska- landi. Hann stundaði síðan fram- haldsnám bæði í Þýskalandi og Kanada og lauk MFA-gráðu við Nova Scotia College of Art & Design í Halifax. Erling hefur tekið þátt í fjölda sýninga á Íslandi og erlendis. freyr@frettabladid.is Fastur í líkama rokkstjörnu OPNUN Í KVÖLD Sýning á verkum Erlings T. V. Klinbergberg verður opnuð í Hafnar- borg í kvöld með virkjun þar sem fjöldi listamanna kemur fram. Kl. 20 í Norðurpólnum Dansverkið Kyrrja eftir Ragnheiði S. Bjarnarson verður frumsýnt í leik- húsinu Norðurpólnum á Seltjarnar- nesi í kvöld. Ragnheiður S. Bjarnar- son er meðlimur í danshópnum Íslenska hreyfiþróunarsamsteypan, sem var tilnefndur til Grímunnar í fyrra. Kyrrja er fyrsta sólóverk Ragnheiðar eftir útskrift. Aðrar sýn- ingar verða haldnar dagana 21., 27. og 28. maí og 3. og 4. júní. Hin tvöfalda safnplata Gamli góði vinur með hljómsveitinni Mannakorn er komin út hjá Senu. Hún inniheldur 42 af vinsælustu lögum sveitarinn- ar frá upphafi og til dagsins í dag. Á meðal þeirra eru Reyndu aftur, Braggablús, Ó þú og Blús í G. Þessi glæsilegi pakki inniheldur bækling þar sem má finna alla texta við lögin á plötunni sem og nokkrar ljósmyndir frá ferlin- um. Fjögur ár eru liðin síðan tónleikaplatan Ekki dauðir enn kom út þar sem Mannakorn spilaði mörg af sínum bestu lögum í Salnum í tilefni af 30 ára afmæli sínu. Söngvarinn og bassaleikarinn Pálmi Gunnars- son er mjög ánægður með nýju safnplötuna. „Þeir höfðu veg og vanda af því að velja þessi lög strákarnir hjá Senu en þetta var allt gert með okkar blessun,“ segir Pálmi. Mannakorn hélt um síðustu helgi tvenna tónleika í Háskólabíói og seldust miðarnar upp á örskömmum tíma. „Það var ægilega vel staðið að þeim tónleikum og þetta var ofboðslega gaman,“ segir hann og býst við því að tónleik- arnir verði endurteknir í haust. Mannakorn spilar á nokkrum stöðum í sumar, þar á meðal á Akureyri og í Grindavík. Einnig er fyrirhuguð spilamennska um verslunarmannahelgina. - fb Tvöfalt safn frá Mannakornum MANNAKORN Hljómsveitin Mannakorn hefur sent frá sér safnplötuna Gamli góði vinur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI > Ekki missa af … Ljósmyndaserían Nekt í Lista- safni Reykjavíkur hefur vakið athygli fyrir áleitnar og ögrandi myndir af nöktum líkömum í fullri stærð. Verkin eru eftir hinn kunna listamann og New York-búa Gary Schneider. Þrjá- tíu líkamsmyndir af körlum og konum þekja tvo sali Hafnar- hússins en það tekur lista- manninn um klukkustund að taka hverja þeirra. Ljósmynd- arinn Einar Falur Ingólfsson er vel kunnur verkum og ferli Schneiders og mun á laugar- dag reifa feril hans og útskýra myndaseríuna Nekt. 1 3 5 7 9 2 4 6 8 10 Rannsóknarskýrsla Alþingis Rannsóknarnefnd Alþingis Fyrirsætumorðin James Patterson Skúli skelfi r fer í frí Francesca Simon Hálendishandbókin 2010 Páll Ásgeir Ásgeirsson Missir Guðbergur Bergsson Hrunadans og horfi ð fé Styrmir Gunnarsson Góða nótt, yndið mitt Dorothy Koomson Hafmeyjan Camilla Läckberg Tími hnyttninnar er liðinn Bergur Ebbi Benediktsson Sítrónur og saffran Kajsa Ingemarsson METSÖLULISTI EYMUNDSSON SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT 12.05.10 – 18.05.10

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.