Fréttablaðið - 20.05.2010, Síða 54
42 20. maí 2010 FIMMTUDAGUR
SÍMI 564 0000
16
16
12
L
12
L
L
SÍMI 462 3500
12
L
L
ROBIN HOOD kl. 6 - 9
THE SPY NEXT DOOR kl. 6
THE BACKUP PLAN kl. 8 - 10
SÍMI 530 1919
10
12
16
14
DATE NIGHT kl. 6 - 8 - 10
IMAGINARIUM OF DR. P.... kl. 9 íslenskur texti
UN PROPHÉTE kl. 6 enskur texti
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 6 - 9
SÍMI 551 9000
16
12
L
L
12
14
SNABBA CASH kl. 5.30 - 8 - 10.30
SNABBA CASH LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
ROBIN HOOD kl. 8 - 11
THE BACKUP PLAN kl. 5.40 - 8 - 10.20
IRON MAN 2 kl. 5.20 - 8 - 10.40
THE SPY NEXT DOOR kl. 3.40
NANNY MCPHEE kl. 3.40
NÝTT Í BÍÓ!
SNABBA CASH kl. 5.30 - 8 - 10.30
ROBIN HOOD kl. 6 - 9
CRAZY HEART kl. 5.30 - 8
THE BACKUP PLAN kl. 5.40 - 10.20
I LOVE YOU PHILLIP MORRIS kl. 10.30
ROMEO + JULIET kl. 8
Fullt af stórleikurum í fyrstu
STÓRMYND SUMARSINS!
ÁLFABAKKA KRINGLUNNI
AKUREYRI
SELFOSSI
12
12
12
12
12
14
14
14
10
10
10
10
L
L
L
PRINCE OF PERSIA kl. 5:30D -8D - 8:30 - 10:30D - 11
PRINCE OF PERSIA kl. 5:30 - 8 - 10:30
ROBIN HOOD kl. 8 - 10:50
IRON MAN 2 kl. 5:20 - 8 - 10:40
COPS OUT kl. 10:30
OFURSTRÁKURINN M/ ísl. Tali kl. 5:50
KICK ASS kl. 5:50 - 8
AÐ TEMJA DREKANN SINN M/ ísl. Tali kl. 6
PRINCE OF PERSIA 5:30D - 8D - 9 - 10:30D - 11:30
IRON MAN 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30
TEMJA DREKANN SINN 3D ísl. Tali Sýnd Fimmt. kl. 6(3D)
PRINCE OF PERSIA : SANDS OF TIME kl. 8 - 10:30
ROBIN HOOD kl. 8 - 10:50
IRON MAN 2 kl. 10:30
PRINCE OF PERSIA kl 5:30 - 8 - 10:30
COPS OUT kl 5:30 - 8
BIÐIN ER Á ENDA HEIMSFRUMSÝND Á ÍSLANDI VIKU Á UNDAN USA
Gísli Örn Garðarsson er mættur í sinni fyrstu Hollywood mynd
Frá framleiðanda
Pirates of the
Caribbean
þríleiksins
Jerry Bruckheimer
kemur ein
stærsta
bíóupplifun
ársins
- bara lúxus
Sími: 553 2075
ROBIN HOOD 4, 7 og 10 (POWER) 12
IRON MAN 2 5, 7.30 og 10 12
SHÉS OUT OF MY LEAGUE 8 og 10.10 12
NANNY MCPHEE & THE BIG BANG 5.40 L
Þ.Þ. -FBL
S.V. -MBL POWERSÝ
NING
KL. 10
Leikarinn John Travolta og
eiginkona hans, Kelly Prest-
on, eiga von á barni. Á ýmsu
hefur gengið í lífi þeirra
upp á síðkastið og hljóta
þessi tíðindi því að vera
afar kærkomin fyrir þau.
„Það er vonlaust að þegja yfir
leyndarmáli … sérstaklega þegar
það er eins yndislegt og þetta,“
skrifaði Travolta á heimasíðu sína.
„Við viljum vera fyrst til að deila
með ykkur þessum frábæru frétt-
um um að við eigum von á nýjum
meðlimi í fjölskylduna.“
Travolta, sem er 56 ára, og Prest-
on, sem er 47 ára, eiga fyrir hina
tíu ára dóttur, Ellu. Sonur þeirra,
Jett, lést á Bahama-eyjum á síð-
asta ári, aðeins sextán ára, eftir að
hafa fengið flog og gekk fjölskyld-
an í gegnum mikið sorgarferli í
framhaldinu. Einu máli tengdu
dauða Jetts er enn ekki lokið því
þessa dagana fara fram réttarhöld
yfir tveimur manneskjum sem eru
sökuð um að hafa reynt að kúga fé
út úr Travolta eftir dauða hans.
Það er skammt stórra högga á
milli hjá Travolta-fjölskyldunni því
stutt er síðan ekið var á tvo hunda
hennar á flugvelli í Maine. Atvik-
ið átti sér stað á meðan verið var
að dæla bensíni á þotu Travolta,
sem leikarinn er þekktur fyrir að
fljúga sjálfur hvert á land sem er.
„Einhver, sem er ekki í fjölskyldu
þeirra, fór í göngutúr með tvo litla
hunda í ólum. Þjónustubíll flug-
vallarins nálgaðist flugvélina og sá
ekki hundana. Því miður var ekið
á þá og þeir létust,“ sagði talsmað-
ur flugvallarins, miður sín yfir
atvikinu.
Travolta er enn í góðum gír í
leiklistinni. Framhaldsmyndin
Wild Hogs 2: Bachelor Ride er
væntanleg í bíó á næsta ári en
sú fyrra hlaut góða aðsókn. Þar
fer hann á nýjan leik með hlut-
verk Woody Stevens og sem fyrr
verða þeir Martin Lawrence, Tim
Allen og William H. Macy einnig í
stórum hlutverkum.
John Travolta afhjúpaði
yndislegt leyndarmál
BARN Á LEIÐINNI John Travolta og eiginkona hans, Kelly Preston, eiga von á barni,
samkvæmt yfirlýsingu á heimasíðu þeirra. NORDICPHOTOS/GETTY
Kvikmyndir ★★★
Snabba Cash
Leikstjóri: Daniel Espinosa
Aðalhlutverk: Joel Kinnaman,
Matias Padin Varela, Dragomir
Mrsic, Lisa Henni
Norrænar glæpasögur eru funheit-
ar þessi misserin og þar eru Svíar
heldur betur frekir til fjörsins.
Henning Mankell er búinn að vera
á fleygiferð lengi, vinsældir Stiegs
heitins Larsson og Millenium-þrí-
leiks hans eru yfirgengilegar og
lögfræðingurinn Jens Lapidus er
að koma sterkur inn og glæpasaga
hans Snabba Cash (Fundið fé) sló
í gegn í heimalandinu og rétt eins
og með verk Larssons er búið að
snara henni á hvíta tjaldið og hróð-
ur hennar hefur borist til Holly-
wood þar sem farið er að huga að
endurgerð myndarinnar.
Snabba Cash er hörkufínn
krimmi sem siglir nú í íslensk
kvikmyndahús á vinsældabylgju
Millenium-bíómyndanna og renn-
ir stoðum undir þá staðreynd
að Svíar eru að verða stórveldi í
glæpamyndagerð.
Saga Lapidusar er margslungin
og nokkuð flókin og hefur eðlilega
verið einfölduð töluvert í kvik-
myndahandritinu. Þrátt fyrir það
er myndin nokkuð löng og snúin
enda segir hér af býsna mörg-
um persónum sem lýstur saman í
undirheimum Stokkhólms þar sem
allir hlutaðeigendur deila sameig-
inlegum draumi um skjótfenginn
gróða. Og svífast einskis til þess
að ná markmiðum sínum.
Johan Westlund er fátækur
dreifbýlisstrákur sem stundar
nám í viðskiptafræði í Stokkhólmi.
Hann er ansi klár og hangir með
auðstrákum og reynir að falla í
hópinn með því að klæða sig smart
og spila sig kúl. Hann vinnur fyrir
sér sem leigubílstjóri hjá vafa-
sömum gaurum og er skyndilega
kominn á kaf í eiturlyfjaviðskipti
þeirra þar sem þekking hans á
viðskiptum nýtist öllum vel. Hann
kynnist strokufanganum Jorge
í gegnum glæpaklíkuna og með
þeim tekst nokkuð náinn vinskap-
ur sem síðar á eftir að reyna mikið
á þegar serbneskir krimmar fara í
stríð við leigubílabófana um risa-
stóra dópsendingu.
JW áttar sig smám saman á því
að í þessum leik er enginn ann-
ars bróðir þegar hinn öflugi serb-
neski handrukkari Mrado bend-
ir honum á að félagar hans eigi
eftir að svíkja hann. JW stendur
því taugaveiklaður á milli tveggja
elda og fer eðlilega að efast um það
hvort glæpir borgi sig yfirleitt.
Þrátt fyrir hressilegar ofbeldis-
gusur og spennu sem magnast
jafnt og þétt finnur maður óneit-
anlega aðeins fyrir lengd mynd-
arinnar en á móti kemur að tím-
inn er notaður ágætlega til þess
að kynna helstu persónur þannig
að manni er einhvern veginn ekki
sama um neina þeirra þótt allt séu
þetta bölvuð úrþvætti og skepn-
ur. En í það heila er Snabba Cash
virkilega vel gerð og áhugaverð
glæpamynd.
Þórarinn Þórarinsson
Niðurstaða: Virkilega smart krimmi
þar sem kynt er hægt og rólega undir
áhugaverðum persónum þangað til
allt sýður upp úr.
Skjótfenginn gróði
SNABBA CASH Vel gerð og áhugaverð glæpamynd frá Svíþjóð.