Fréttablaðið - 20.05.2010, Síða 55
FIMMTUDAGUR 20. maí 2010 43
og góður leikari sem gerir prins-
inn Dastan ósköp heillandi. Ben
Kingsley er svo auðvitað mikill
meistari og Gemma Arterton voða
flott og kúl gella. Þau fá svo dygg-
an stuðning frá prýðilegum aukal-
eikurum þar sem hinn óborgan-
legi Alfred Molina fer á kostum
í dæmigerðu hlutverki trúðsins
sem sér um að halda gríninu uppi
á milli slagsmála.
Söguþráður myndarinnar er
sóttur mjög markvisst í tölvuleik-
inn um Prinsinn af Persíu og sand
tímans og greinir frá kapphlaupi
Dastans og illra afla um rýting
nokkurn sem getur stöðvað tím-
ann og snúið honum til baka.
Myndin er veisla fyrir augað,
brellurnar flottar og prinsinn
hleypur upp veggi og stekkur á
milli húsþaka alveg eins og í tölvu-
leiknum án þess þó að það verði
hallærislegt. Allt til fyrirmyndar
sem sagt, innan þess ramma sem
Jerry Bruckheimer setur froðunni
sem hann framleiðir.
Eins og alþjóð hefur ekki komist
hjá að frétta fer Gísli Örn Garðars-
son með hlutverk illmennis í mynd-
inni. Íslenskir fjölmiðlar hafa eins
og við var að búast gert hlutverk
Gísla í myndinni miklu stærra en
það í raun og veru er. Það er þó
engin ástæða til þess að gera lítið
úr þætti Gísla í myndinni. Hann
er fyrirtaks illmenni sem hefur
ekkert of mikið að segja en lætur
verkin tala. Hlutverkið reynir
ekki mikið á óumdeilda leikhæfi-
leika Gísla sem er synd þótt þetta
sé vissulega enn ein rós í hnappa-
gat hans.
Þórarinn Þórarinsson
Niðurstaða: Fagmannlega unnin, vel
leikin, skemmtileg og innihaldslaus
sumarfroða sem stendur fullkomlega
fyrir sínu.
Kvikmyndir ★★★★
Prince of Persia: The Sands of
Time
Leikstjóri: Mike Newell
Aðalhlutverk: Jake Gyllenhaal,
Gemma Arterton, Ben Kingsley,
Alfred Molina
Bitur reynslan hefur kennt okkur
að það kann sjaldan góðri lukku að
stýra að byggja bíómyndir á tölvu-
leikjum. Stundum gengur þetta þó
upp og í þessu tilfelli rennur tölvu-
leikurinn um hinn vopnfima Per-
síuprins áreynslulaust og skemmti-
lega á hvíta tjaldið. Söguþráðurinn
er auðvitað óttaleg þvæla, svona
eins og gengur og gerist í risa-
stórum sumarmyndum frá Banda-
ríkjunum, en í myndum af þessu
tagi kemur það ekki endilega að
sök. Prince of Persia er ekki gerð
til þess að fá dynjandi lófaklapp
á Sundance-hátíðinni og enda á
Íslandi á vegum Græna ljóssins.
Þetta er þvottekta sumarsmell-
ur sem er aðeins ætlað að fá fólk
til þess að gleyma sér í ævintýra-
heimi í tvær og hálfa klukkustund
og að sjálfsögðu að græða helling
af peningum í leiðinni. Að þessu
leyti stendur Prince of Persia full-
komlega fyrir sínu. Hún er ekki
að þykjast vera neitt annað en hún
er; tölvugerð flugeldasýning sem
byggir á innihaldslausum hasar
og fjöri.
Myndin er meira að segja betri
en gengur og gerist með myndir í
þessum geira og munar þar ekki
síst um hversu vel mönnuð hún er.
Jake Gyllenhaal er skemmtilegur
Sallafín sumarfroða
OKKAR MAÐUR Gísli Örn Garðarsson
leikur illmenni í myndinni.
PRINCE OF PERSIA Ben Kingsley, Jake Gyllenhaal og Richard Coyle í hlutverkum
sínum.
Söngvarinn Páll Rósinkrans syngur nýtt Reykjavíkur-
lag á væntanlegri plötu umhverfisfrömuðarins Steins
Kárasonar. Lagið nefnist Ég heilsa þér Reykjavík
og er undir áhrifum frá tónlist sjöunda áratugarins.
„Þetta er óður til konunnar sem maðurinn elskar og
óður til borgarinnar sem er Reykjavík,“ segir Steinn,
sem er ánægður með framlag Páls. „Þetta er alveg
frábært. Hann gerir þetta listavel.“
Steinn segir plötuna mjög persónulega. „Þeir textar
sem ég geri koma djúpt úr mínu sálarlífi. Á
köflum gæti maður sagt að þetta væri eins
og að skrifta hjá kaþólskum presti.“
Upptökur á plötunni hafa staðið yfir
undanfarna mánuði. Steinn hefur áður
sent frá sér lögin Kominn aftur og Helga
himneska stjarna en þetta er fyrsta plat-
an hans. „Þetta hefur alltaf blundað í
mér en rétta stundin kom ekki fyrr en
núna. Í haust stóð ég uppi atvinnu-
laus og í staðinn fyrir að leggja
árar í bát fór ég í þetta.“
Platan er mjög fjölbreytt því
á henni hljómar popp, rokk, þungarokk,
ballöður og daður við djass og klassík.
Auk Páls Rósinkrans syngja á plötunni
Haukur Hauksson, Íris Guðmundsdóttir,
Hreindís Ylva, Guðmundur Benediktsson
og Steinn sjálfur. - fb
Páll syngur óð til Reykjavíkur
STEINN KÁRASON Fyrsta plata umhverfisfrömuðarins
Steins Kára er væntanleg í búðir á næstu misserum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
PÁLL RÓSINKRANS Páll syngur óð til
Reykjavíkur á plötunni.