Fréttablaðið - 20.05.2010, Síða 56
44 20. maí 2010 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Það vakti eðlilega athygli í gær
að Ólafur Jóhannesson lands-
liðsþjálfari skyldi ekki velja Eið
Smára Guðjohnsen í landsliðið
fyrir vináttulandsleikinn gegn
Andorra. Það sem vekur kannski
enn meiri athygli er ástæðan sem
Ólafur gefur fyrir fjarveru Eiðs.
Hann segir að Eiður sé ekki í
formi.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Eiður missir af vináttulandsleik.
Hingað til hefur ástæðan verið
meiðsli eða Ólafur hefur einfald-
lega gefið honum frí sem er mun-
aður sem aðrir leikmenn búa ekki
við.
Síðast nýtti Eiður fríið sitt
meðal annars til þess að koma
til Íslands þar sem hann lyfti sér
upp.
Ég verð að segja fyrir minn
smekk að mér finnst þessi ástæða
sem Ólafur gefur fyrir fjarveru
Eiðs vera afar veik. Eiður er ekki
meiddur og æfir með einu besta
knattspyrnuliði Englands. Ég veit
ekki betur en að menn sem hafa
það að atvinnu að æfa með slíku
toppliði séu í góðu formi.
Eiður var þess utan að æfa viku
lengur en þrír leikmenn hópsins
sem koma úr ensku 1. deildinni.
Ef eitthvað er þá ættu þeir að vera
í lélegra formi en hann þar sem
þeir fóru fyrr í frí. Það er eitthvað
bogið við þetta. Þessi afsökun
gengur ekki upp því Ólafur hefur
áður valið Eið í landsliðshóp þó svo
hann hafi ekki verið í toppformi.
Svo er Arnór Smárason í hópn-
um en hann er tiltölulega nýstiginn
upp úr erfiðum meiðslum og hefur
lítið sem ekkert spilað í allan vetur.
Er hann í betra formi en Eiður? Ég
stórefa það.
Það sem ég er að segja er að
ég kaupi ekki þessa afsökun
Ólafs sem er afar ódýr. Hún
er reyndar meira en
ódýr, hún er léleg.
Ég skrifaði pistil
um daginn þar
sem ég hélt
því fram að
Eiður hefði
landsliðs-
þjálfarann í vasan-
um. Ég get ekki séð
að það hafi neitt
breyst.
Ólafur refsar
honum ekki fyrir
að hafa farið frjáls-
lega með síðasta
frí. Hann velur
Eið síðan ekki
núna og er því raun að gefa honum
frí. Það frá landsleik sem ég gef
mér að Eiður hafi ekki verið allt
of spenntur fyrir að spila ef við
tökum mið af því hversu mörgum
vináttuleikjum hann hefur misst
af. Eiður er því eflaust himinlif-
andi með að fá gott sumarfrí.
Leikmaðurinn hefur enn yfir-
höndina gagnvart þjálfaranum sem
mér finnst vera áhyggjuefni þar
sem þjálfarinn á að ráða.
Landsliðsþjálfar-
inn er á hrakhólum
með málstað sinn
sem versnar með
hverri afsökun.
Þessi er sú
lélegasta.
22 DAGAR Í HM
Er Eiður Smári virkilega
ekki í nógu góðu formi?
UTAN VALLAR
Henry Birgir Gunnarsson
segir sína skoðun
Fimmtudaginn 20.maí
Valur – Breiðablik kl. 19:15
Vodafonevöllurinn
Selfoss – Haukar kl. 19:15
Selfossvöllur
Fram – Grindavík kl. 19:15
Laugardalsvöllur
FH – ÍBV kl. 19:15
Kaplakrikavöllur
Kefl avík – Fylkir kl. 19:15
Njarðtaksvöllurinn
Stjarnan – KR kl. 20:00
Stjörnuvöllur
SANYL
ÞAKRENNUR
• RYÐGA EKKI
• PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN
• STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR
• AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU
• ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR
FÓTBOLTI Portsmouth tilkynnti
í gær á heimasíðu sinni að það
hefði boðið íslenska landsliðs-
manninum, Hermanni Hreiðars-
syni, nýjan samning.
Núverandi samningur Her-
manns við félagið rennur út í
sumar. Hann verður frá vegna
meiðsla eitthvað fram á næsta
vetur eftir að hafa slitið hásin.
Félagið vill samt ekki missa hann
og hefur því boðið honum nýjan
samning.
Tíu leikmenn félagsins fengu
nýtt samningstilboð í gær og á
meðal þeirra voru David James,
Nwankwo Kanu og Ricardo
Rocha.Nokkrir af efnilegustu
leikmönnum félagsins fengu einn-
ig samning í hendurnar í gær.
Portsmouth féll úr ensku
úrvalsdeildinni í vetur. - hbg
Hermann Hreiðarsson:
Boðinn nýr
samningur
FRJÁLSAR Ármenningar standa
vel á bak við afrekskonur sínar,
Helgu Margréti Þorsteinsdóttur
og Ásdísi Hjálmsdóttur, og hafa
fyrir nokkru stofnað Ólympíu-
hóp frjálsíþróttadeildar Ármanns
sem er ætlað að sjá til þess að þær
stöllur hafi allt til alls til að ná sem
bestum árangri á Ólympíuleikun-
um í London árið 2012.
Þær eru báðar í fremstu röð í
heiminum. Ásdís endaði í fyrra í
22. sæti heimslistans í spjótkasti
fyrir árið 2009 og Helga Margrét
var í 1. sæti heimslista unglinga
í sjöþraut í fyrra og 50. sæti yfir
bestan árangur fullorðinna.
Stefán Jóhannsson er þjálfari
stelpnanna og einn þeirra sem
hefur unnið hörðum höndum við
að bæta þær og aðstæður þeirra
innan sem utan vallar.
„Við fengum nýjan formann í
deildina fyrir tveimur árum síðan.
Ég fór að ræða um það við hann að
það væri gaman að gera það sem
þyrfti fyrir þessar stelpur þar sem
við værum með svona mikil efni
í höndunum. Ég sagði við hann að
það væri leiðinlegt að vera búinn
að þjálfa í öll þessi ár og búinn að
vera með marga frábæra íþrótta-
menn sem ekki var allt gert fyrir
til þess að ná árangri,“ segir Stef-
án. „Við vorum sammála um það
að sumir þeirra íþróttamanna
hefðu alveg getað þess vegna náð á
pall á stórmótum ef allt hefði verið
gert fyrir þá sem þurfti. Hann fór
af stað, er feikiduglegur og við
unnum þetta upp,“ segir Stefán.
Í síðustu viku undirrituðu stelp-
urnar styrktarsamning við aðal-
styrktaraðila verkefnisins sem
er Valitor, VISA á Íslandi. Höfuð-
markmið samningsins er að gera
stelpunum kleift að æfa við bestu
mögulegu aðstæður fram að leik-
unum en Stefán segir að þó að fjár-
mögnun verkefnisins eigi aðeins
eftir í land. Stefán leggur mikla
áherslu á jákvæðnina. „Við erum
eiginlega bara með jákvætt fólk í
kringum okkur og við erum búin
að henda þeim neikvæðu út,“ segir
Stefán.
Hann sér mun á stelpunum og
hann nefnir til að hluti af verkefn-
inu hafi verið að setja saman ráð-
gjafarráð en í því eru Einar Vil-
hjálmsson, Guðrún Arnardóttir,
Kristján Harðarson, Ólafur Stef-
ánsson og Sigurður Einarsson.
Allt eru þetta Ólympíufarar með
mikla reynslu en auk þess hafa
stelpurnar aðgengi að sálfræð-
ingi, sjúkraþjálfara, kíroprakt-
or en allir þessir leggja sína sér-
þekkingu til þannig að hægt sé að
ná eins miklu út úr þessum miklu
afrekskonun og hægt er fram að
leikunum í London eftir tvö ár.
Stefán er bjartsýnn á frammi-
stöðu stelpnanna í sumar og sér
fram á bætingar hjá þeim báðum.
„Ásdís er í mjög góðu formi og
það er engin ástæða til annars en
að hún bæti sig vel í sumar. Evr-
ópumeistaramótið er stærsta mótið
hjá henni í sumar og hugsanagang-
urinn er að komast í úrslit. Ég veit
að hún getur það og ég er alveg
bjartsýnn á að hún geri það,“ segir
Stefán.
„Ég er mjög bjartsýnn á Helgu
því hún er alveg í hörkuformi,“
segir Stefán en leggur áherslu á
að Helga sé aðeins 18 ára gömul
og að hann sé enn að byggja upp
rétta tækni hjá henni í nokkrum
greinum. Helga tekur samt ekki
þátt í heimsfræga tugþrautarmót-
inu í Götzis. „Helga er það góð að
þeir munu heimta að fá hana eftir
tvö til þrjú ár,“ segir Stefán.
Stefán leggur áherslu á að þó að
það sé verið að hugsa til framtíðar
þá verði stelpurnar að einbeita sér
að nútímanun. Hann sér þó fleiri
Ólympíuleika í spilunum.
„Við byggjum verkefnið á því að
stefna á Ólympíuleikana í London
en báðar þessar stelpur eru mjög
ákveðnar í því að halda áfram og
vera líka með á þarnæstu Ólymp-
íuleikum. Báðar vita það að þær
verða ekki á toppi ferils síns á
næstu Ólympíuleikum og þá sér-
staklega Helga sem er bara 18 ára
og verður 21 árs á næstu Ólympíu-
leikum,“ segir Stefán að lokum.
ooj@frettabladid.is
Búin að henda þeim neikvæðu út
Ármenningar ætla að passa upp á það að þær Ásdís Hjálmsdóttir og Helga Margrét Þorsteinsdóttir fái allt
til alls til að ná sem bestum árangri á Ólympíuleikunum í London eftir tvö ár. Stefán Jóhannsson, þjálfari
stelpnanna, hefur lagt gríðarlega vinnu í verkefnið enda með mikil efni í höndunum.
SAMINGURINN Í HÖFN Kristján Þór Harðarson, fulltrúi Valitor á Íslandi, tekur í höndina á Ásdísi Hjálmsdóttur við góðar undirtektir
þeirra Helgu Margrétar Þorsteinsdóttur og Freys Ólafssonar, formanns frjálsíþróttadeildar Ármanns. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Englendingar hafa tapað öllum þremur vítaspyrnukeppn-
unum sem landslið þjóðarinnar hefur lent í í úrslitakeppni
HM. Enska landsliðið tapaði 1-3 á móti Portúgölum í víta-
keppni í átta liða úrslitum á HM 2006, tapaði
3-4 á móti Argentínu í vítakeppni í 16 liða
úrslitum á HM 1998 og tapaði 3-4 á móti
Vestur-Þýskalandi í undanúrslitum á
HM 1990. Enskir leikmenn hafa
aðeins nýtt 7 af 14 vítum sínum í
vítakeppni á HM.
Körfuboltamaðurinn Hreggviður Magnússon hefur ekki ákveðið
hvar hann muni spila á næsta tímabili en mörg félög hafa
áhuga á að fá þennan öfluga framherja til sín. Hreggviður
hefur leikið með ÍR-ingum alla tíð fyrir utan þann tíma sem
hann var í skóla í Bandaríkjunum. Hreggviður glímdi við
meiðsli á þessu tímabili og náði af þeim sökum ekki að
fylgja á eftir tveimur frábærum tímabilum þar á undan
þar sem hann skoraði yfir 18 stig að meðaltali í leik.
„Ég er staddur í Bandaríkjunum og maður er í smá
fríi í nokkra daga í viðbót. Ég get vottað
það að ég er í viðræðum við nokkur
lið og er að kanna mína möguleika.
Vonandi skýrist þetta á næstu dögum,“
segir Hreggviður sem verður erlendis í
eina og hálfa viku til viðbótar. Hreggviður
vill þó ekki gefa það út að hann spili ekki
með ÍR-ingum.
„Ég get ekkert gefið út hundrað prósent um það en það skýrist
bara vonandi á allra næstu dögum hvar ég verð. Það er ekkert í
hendi fyrr en það er skrifað undir. Það er óhætt að segja að þetta
sé allt á viðkvæmu stigi,“ segir Hreggviður.
Hreggviður hefur verið orðaður við KR en vill sjálfur ekkert
gefa upp um hvaða lið eru í viðræðum við hann.
„Ég hef gefið það út áður að ég er sennilega í fyrsta skiptið
á mínum ferli að íhuga það hvort ég eigi að færa mig um
set. Ég er að spjalla við nokkur lið og á bara eftir að taka
þessa ákvörðun miðað við mína möguleika og mínar
forsendur hvernig hlutirnir þróast. Það er í þessu ferli,“
sagði Hreggviður sem var með 14,9 stig og 5,1 frákast að
meðaltali í leik í Iceland Express-deildinni í vetur. ÍR-ingar
hafa verið að framlengja samninga við sína menn að
undanförnu og þar á meðal er Sveinbjörn Claessen sem
skoraði á Hreggvið að spila áfram sem aðalmaðurinn í ÍR
í staðinn fyrir að verða „hlutverka-leikmaður“ í öðru liði.
HREGGVIÐUR MAGNÚSSON: ÍHUGAR Í FYRSTA SINN AÐ FARA FRÁ ÍR OG HEFUR VERIÐ ORÐAÐUR VIÐ KR
Er í viðræðum við nokkur lið og kannar möguleikana