Fréttablaðið - 20.05.2010, Síða 58
46 20. maí 2010 FIMMTUDAGUR
Ný kynslóð í landsliðinu?
Ólafur Jóhannesson landsliðs-
þjálfari hefur valið ungt og óreynt
landslið fyrir leikinn gegn Andorra
annan laugardag. Hér er landsliðs-
hópurinn skoðaður út frá mögu-
legum kynslóðaskiptum sem eru
nú að eiga sér stað. Einnig eru
nöfn þeirra sem ekki hlutu náð
fyrir augum Ólafs að þessu sinni
en hafa helst verið viðloðandi
landsliðið undanfarin ár.
„Ný“ kynslóð:
Ólafur Ingi Skúlason 27 ára/11 leikir
Sölvi Geir Ottesen 26/10
Steinþór Freyr Þorsteinsson 25/3
Arnór Sveinn Aðalsteinsson 24/4
Skúli Jón Friðgeirsson 22/2
Rúrik Gíslason 22/5
Eggert Gunnþór Jónsson 22/4
Birkir Bjarnason 22/0
Arnór Smárason 22/7
Jón Guðni Fjóluson 21/2
Aron Einar Gunnarsson 21/17
Gylfi Þór Sigurðsson 21/0
Jóhann Berg Guðmundsson 20/5
Kolbeinn Sigþórsson 20/1
Meðalaldur/meðalfj. leikja: 22,5/5,1
Reyndir leikmenn:
Árni Gautur Arason 35 ára/70 leikir
Gunnleifur Gunnleifsson 35/16
Heiðar Helguson 33/47
Veigar Páll Gunnarsson 30/29
Kristján Örn Sigurðsson 30/44
Indriði Sigurðsson 29/52
Meðalaldur/meðalfjöldi leikja 32/43
Leikmenn „í kuldanum“:
Brynjar Björn Gunnarsson 35 ára
Eiður Smári Guðjohnsen 32
Bjarni Guðjónsson 31
Garðar Jóhannsson 30
Stefán Gíslason 30
Helgi Valur Daníelsson 29
Bjarni Ólafur Eiríksson 28
Kári Árnason 28
Pálmi Rafn Pálmason 26
Birkir Már Sævarsson 26
Ragnar Sigurðsson 24
Meiddir leikmenn: Hermann Hreiðars-
son, Grétar Rafn Steinsson, Emil Hallfreðs-
son og Bjarni Þór Viðarsson.
FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson til-
kynnti í gær val sitt á landsliðs-
hópi karla sem mætir Andorra í
vináttulandsleik um aðra helgi.
Helst vakti athygli að Eiður Smári
Guðjohnsen var ekki valinn í hóp-
inn að þessu sinni enda er hann
hvorki meiddur né upptekinn með
sínu félagsliði, Tottenham.
„Hann er ekki í formi til að spila
þennan leik. Leikmenn á Englandi
eru flestir farnir í frí og tók ég
stöðuna á þeim. Ég mat það þannig
að meðal annarra væri Eiður ekki
í formi til að spila þennan lands-
leik,“ segir Ólafur sem þó valdi
þrjá leikmenn í hópinn sem spila
í ensku B-deildinni en tímabil-
inu þar lauk viku fyrr en í ensku
úrvalsdeildinni.
Eiður Smári var síðast valinn
í landsliðið fyrir vináttulands-
leik gegn Kýpur í byrjun mars.
Hann fékk frí í þeim leik vegna
anna hjá félagsliði sínu, Totten-
ham. Eins og Fréttablaðið greindi
frá á sínum tíma kom Eiður hing-
að til lands sama dag og landsliðið
var á Kýpur. Hann flaug svo aftur
til Englands degi síðar og fór á
æfingu hjá Tottenham.
Ólafur lét þá hafa eftir sér í fjöl-
miðlum að hann vissi af þessu og
ætlaði að skoða þetta mál nánar.
Áttum gott spjall
„Við áttum gott spjall eins og mað-
urinn sagði,“ sagði Ólafur. „Það
var ekkert í því sem kom mér á
óvart.“
Spurður hvort Eiður hafi brugð-
ist trausti hans svaraði Ólafur ein-
faldlega neitandi. „Það er vegna
þess að hann fékk frí á þeim for-
sendum að hann væri að fara að
æfa með Tottenham. Hann mætti á
allar æfingar þar. Annað var ekki
hluti af samkomulagi okkar.“
Ólafur sagði einnig að Eiður
væri í sínum framtíðaráætlunum
með landsliðið. „Eiður Smári gefur
áfram kost á sér í landsliðið. Eiður
Smári er besti fótboltamaður sem
við eigum. Hann verður [aftur]
valinn í landsliðið hjá mér – pott-
þétt,“ sagði Ólafur.
Spurður hvort besti fótbolta-
maður landsins eigi ekki að spila
alla landsleiki sagði Ólafur að svo
þyrfti ekki að vera. „Ef hann er
ekki leikhæfur þá nota ég hann
ekki.“
Framtíðarlandsliðsmenn
Ólafur velur nú yngra og óreynd-
ara landslið en oft áður. Meðal-
aldur leikmanna hefur nú lækk-
að um tæp fjögur ár frá þeim hópi
sem var valinn fyrir leikinn gegn
Kýpur og meðalfjöldi þeirra leikja
sem leikmenn eiga að baki hefur
næstum helmingast – úr 30,2 leikj-
um í 16,5.
„Þetta er spennandi og ungur
hópur. Við eigum mikið af efni-
legum strákum sem hafa verið að
spjara sig vel með sínum liðum.
Það er því ekkert óeðlilegt að
áætla að það verði ákveðin kyn-
slóðaskipti í liðinu,” sagði Ólafur.
„En að sjálfsögðu mun það ekki
breytast að ég vel alltaf besta
landsliðið hverju sinni. En hluti
af því að gera þessa leikmenn til-
búna fyrir framtíðina er að þeir fái
að spila svona leiki og öðlist þar
með reynslu af því að spila með A-
landsliðinu. Ég tel að þessir ungu
strákar séu okkar framtíðarlands-
liðsmenn, hvort sem ég verð áfram
landsliðsþjálfari eða ekki.“
Leikur Íslands og Andorra fer
fram á Laugardalsvelli laugar-
daginn 29. maí. eirikur@frettabladid.is
Eiður Smári brást ekki trausti mínu
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari valdi ekki Eið Smára Guðjohnsen í íslenska landsliðshópinn sem mæt-
ir Andorra um aðra helgi. Hann þvertekur fyrir að það sé vegna trúnaðarbrests á milli hans og Eiðs Smára.
LANDSLIÐSÞJÁLFARINN Ólafur Jóhannesson á blaðamannafundi KSÍ í gær þar sem
hann kynnti landsliðshópinn sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Eiður Smári gefur
áfram kost á sér í
landsliðið. Eiður Smári er
besti fótboltamaður sem við
eigum. Hann verður valinn í
landsliðið hjá mér.
ÓLAFUR JÓHANNESSON
ÞJÁLFARI A-LANDSLIÐS KARLA
FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson
landsliðsþjálfari valdi Gylfa Þór
Sigurðsson, leikmann Reading, í
landsliðshópinn sem mætir And-
orra um aðra helgi. Er það í fyrsta
sinn sem Gylfi er valinn í A-lands-
liðið en Ólafur hefur verið gagn-
rýndur fyrir að velja hann ekki
fyrr, til að mynda þegar Ísland
mætti Kýpur í mars síðastliðnum.
„Þessi gagnrýni var út í hött. Ég
hef aldrei átt kost á því að velja
Gylfa í landsliðið. Fyrsti mögu-
leikinn til þess var á móti Kýpur
en þá var mikilvægur leikur hjá U-
21 landsliðinu á sama tíma,“ sagði
Ólafur. „Ég hef ekki valið þá í A-
landsliðið þegar þeir eru að spila
sjálfir með U-21 liðinu – ekki nema
ég viti að ég ætli að nota þá sjálf-
ur. Mér finnst ósanngjarnt gagn-
vart þeim að vera varamenn og
taka jafnvel ekkert þátt í leikn-
um ef það þýðir að þeir missa af
leik með U-21 landsliðinu í staðinn.
Þess vegna var Gylfi ekki valinn í
það skiptið.“
Ólafur segir að fram að þeim
tíma hafi hann átt möguleika á að
velja hann. „Hann fór ekki í gang
fyrr en eftir áramót en þá komst
hann í stuð. Fram að þeim tíma
var liðið hans meira að segja í fall-
baráttu í Englandi.“
Gylfi er einn margra
ungra leikmanna sem voru
valdir í landsliðið að þessu
sinni. Þeirra á meðal eru
Birkir Bjarnason sem
hefur farið á kostum með
Viking í Noregi að und-
anförnu sem og Kol-
beinn Sigþórsson sem
heillaði Ólaf mikið í
hans fyrstu landsleikjum.
„Ég valdi Kolbein fyrst
fyrir leikina gegn Færeyjum
og Mexíkó og sannaði fyrir
mér í þessum tveimur leikj-
um að hann er tilbúinn að
spila fyrir landsliðið. Ég
var afar ánægður með
hann í þessum leikjum
og hann er framtíðar-
leikmaður landsliðs-
ins.“ - esá
Ólafur Jóhannesson valdi Gylfa Þór Sigurðsson, leikmann Reading, í fyrsta sinn í A-landslið karla:
Gagnrýnin vegna Gylfa var út í hött
GYLFI ÞÓR
Nýliði í íslenska
landsliðinu.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Þau ummæli sem Stefán
Logi Magnússon hefur látið hafa
eftir sér í Noregi höfðu engin
áhrif á val Ólafs Jóhannessonar á
markvörðum landsliðsins.
„Ég er með tvo bestu mark-
verðina í hópnum,“ sagði Ólafur
en hann valdi þá Gunnleif Gunn-
leifsson og Árna Gaut Arason.
„Þar sem ég vel bara tvo mark-
verði er ekki pláss fyrir fleiri. Ég
veit að Stefán Logi hefur verið að
standa sig mjög vel í Noregi og er
það bara gott mál.“
Nú fyrir stuttu lét Stefán Logi
hafa eftir sér að hann ætti meiri
möguleika á að komast í landslið-
ið sem miðvörður en markvörður.
„Ég hlusta ekki á þetta,“ sagði
hann spurður um þessi ummæli.
„Svona lagað hefur heldur engin
áhrif á mitt val. Ég vel bara þá
tvo bestu markverði sem ég á
hverju sinni.“ - esá
Ólafur um Stefán Loga:
Ummæli höfðu
ekki áhrif á val
STEFÁN LOGI Ekki í náðinni hjá lands-
liðsþjálfaranum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MIKIÐ ÚRVAL
GOTT VERÐ
Allar gerðir d
ekkja
á frábærum
kjörum!
fyrir þá fjölmörgu sem þurfa að kaupa ný dekk fyrir sumarið.
GOTT VERÐ & FRÁBÆR GREIÐSLUKJÖR
Rauðhellu 11, Hfj.
( 568 2035
Hjallahrauni 4, Hfj.
( 565 2121
Dugguvogi 10
( 568 2020
VAXT
ALAU
ST
VISA & MAS
TE
RC
A
R
DGildir til 3
1. m
aí 20
10
VA
X
TA
LA
US
T Í
AL
LT AÐ 6 MÁNUÐI
www.pitstop.is
ÞRJÁR FULLKOMNAR ÞJÓNUSTUSTÖÐVAR
FÓTBOLTI Ísland spilar aðeins tvo
landsleiki í sumar, gegn Andorra
og Liechtenstein. Eftir þá taka
við þrír erfiðir leikir í undan-
keppni EM 2012.
„Auðvitað var það mín ósk að
fá að spila „alvöru“ landsleik
gegn sterkri þjóð,“ sagði Ólafur
Jóhannesson landsliðsþjálfari.
„En þessar þjóðir eru ekki í bið-
röðum eftir því að fá að spila við
okkur. Við erum bara ekki hærra
skrifaðir en það.“
KSÍ var þó nálægt því að fá
landsleik gegn Nígeríu sem spil-
ar á HM í sumar. „Það voru góðar
líkur á því en eins og margir vita
er oft erfitt að eiga við Nígeríu-
menn. Það gekk því miður ekki
upp,“ sagði Ólafur. - esá
Vildi einn landsleik til:
Okkar ekki
beðið í röðum
NÍGERÍUMENN Erfitt að eiga við þá segir
landsliðsþjálfarinn. NORDIC PHOTOS/GETTY