Fréttablaðið - 20.05.2010, Side 62
50 20. maí 2010 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT
2. Listastefna, 6. frá, 8. tugur, 9. fljót-
færni, 11. númer, 12. urga, 14. jarðrík-
is, 16. hvað, 17. form, 18. ennþá, 20.
tveir eins, 21. uppspretta.
LÓÐRÉTT
1. kvenklæðnaður, 3. bardagi, 4.
rafall, 5. for, 7. fuglategund, 10. ger-
ast, 13. pili, 15. dreifa, 16. gyðja, 19.
ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. dada, 6. af, 8. tíu, 9. ras,
11. nr, 12. ískra, 14. heims, 16. ha, 17.
mót, 18. enn, 20. rr, 21. lind.
LÓÐRÉTT: 1. sarí, 3. at, 4. dínamór,
5. aur, 7. fashani, 10. ske, 13. rim, 15.
strá, 16. hel, 19. nn.
„Það eru Kellogs kornflögur.
Auðvelt og fljótt. Gott þegar
maður er að drífa sig.“
Linda Ósk Guðmundsdóttir hönnuður.
Harka er hlaupin í íslenska prótín-
drykkjamarkaðinn eins og Fréttablaðið
greindi frá í gær. Íslensku prótíndrykk-
irnir Hámark og Hleðsla eru með yfir-
burðastöðu á markaðnum samkvæmt
tölum frá Capacent og eru báðir aug-
lýstir sem vinsælasti prótíndrykkur
landsins. Prótínmarkaðurinn stækkaði
um 433 prósent með tilkomu íslensku
drykkjanna.
Fréttablaðið hafði samband við Einar
Oddsson lækni sem staðfesti að neysla
á prótíndrykkjum sé mjög algeng
orsök vindgangs. Þegar tekið er tillit
til gríðarlegrar söluaukningar á slík-
um drykkjum má slá því föstu að vind-
gangur er vandamál í gríðarlegri sókn
á Íslandi. En er prótíndrykkjaneysla
algeng greining á vandamálum fólks?
„Það fer eftir sjúklingahópnum sem
þú ert að fást við,“ segir Einar. „Það er
algengt að yngra fólk sé að drekka prót-
índrykki – í sambandi við æfingapró-
gramm og þess háttar. Það er slatti
af fólki sem notar talsvert mikið
af þessu, í vaxtarrækt og lyft-
ingum og þess háttar. Þetta er
mishollt fyrir fólk.“
Og má búast við að þetta
fólk reki meira við en meðal-
maðurinn?
„Já (hlær). En við höfum
svo sem ekki mælingar á því.“
- afb
Prumpa meira eftir prótínþamb
LEYSUM VIND Rithöfundurinn Egill
Gillzenegger, fótboltakonan Katrín
Jónsdóttir og útvarpsmaður-
inn Ívar Guðmundsson hafa
öll auglýst prótíndrykki.
Sagan segir að
vöðvatröllið Gaz
Man hafi fengið
viðurnefni sitt
eftir mikla
neyslu
prótíns.
„Ég er bara að reyna að tengj-
ast konunni í sjálfum mér,“ segir
Ragnar Bragason leikstjóri.
Ragnar er um þessar mundir að
ganga frá handriti að fyrsta hluta
í því sem hann kallar kvennaþrí-
leik. Vinnutitill fyrstu myndar-
innar er Járnhaus og fjallar um
stúlku á sveitabæ úti á landi á
níunda áratugnum, sem dreymir
um að verða þungarokkstjarna.
Ragnar segir kvikmyndaheim-
inn karllægan þar sem flestir sem
gera kvikmyndir og skrifa handrit
séu karlmenn.
„Ef karlmaður skrifar hand-
rit, þá skrifar hann það oftast út
frá sinni eigin reynslu eða hugar-
heimi,“ segir Ragnar. „Stærstur
hluti kvikmynda er byggður á
reynsluheimi karla. Okkur vant-
ar allar hinar sögurnar. Það eru
óteljandi sögur af konum.“
Síðustu verkefni hefur Ragn-
ar unnið að miklu leyti í hópi
karla. Vaktaserían og kvikmynd-
in Bjarnfreðarson eru skrifaðar
af Ragnari ásamt fjórum karl-
mönnum og fjalla um karlmenn.
En réðst Ragnar í gerð kvennaþrí-
leiks vegna utanaðkomandi þrýst-
ings?
„Meinarðu frá femínistum?“
spyr Ragnar.
Tja, eða konum almennt?
„Nei, alls ekki. Fyrsta myndin
sem ég gerði var með kvenpersón-
ur í aðalhlutverkum,“ segir hann
og vísar í kvikmyndina Fíaskó frá
árinu 2000. „Maður er alltaf for-
vitinn um það sem maður þekk-
ir ekki – það sem maður er ekki
sjálfur. Konur þykja mér oft for-
vitnilegri en karlmenn.“
Ragnar segist eiga erfitt með að
hugsa um eina mynd í einu. Það
endurspeglast í verkefnum hans.
Kvikmyndin Foreldrar fylgdi á
eftir Börnum og Vaktaserían varð
þríleikur og kvikmynd. „Ég fékk
þrjár hugmyndir með skömmu
millibili sem hafa verið að þróast
og fjalla um konur. Hvort sem
þær verði á endanum tengdar eða
ekki,“ segir hann.
Ragnar stefnir á að hefja tökur
á næsta ári, en það veltur, eins
og svo margt annað, á fjármögn-
un. „Það er allt í biðstöðu í þess-
um bransa út frá óvissunni sem
við stöndum fyrir; úr hvaða fé er
að spila,“ segir hann. „Við urðum
fyrir gríðarlegum niðurskurði á
síðasta ári og það hefur verið bent
rækilega á síðustu mánuði hvað
er efnahagslega rangt að skera
kvikmyndagerð svona niður. Ef
stjórnvöld sjá að sér og sjá ljós-
ið þá verður þessi mynd vonandi
gerð á næsta ári.“
atlifannar@frettabladid.is
RAGNAR BRAGASON: SKRIFAR HANDRIT AÐ ÞREMUR KVIKMYNDUM
Kannar hugarheim kvenna
í væntanlegum þríleik
STÓRT VERKEFNI Í BÍGERÐ Ragnar er að leggja lokahönd á handrit kvikmyndar sem
verður sú fyrsta í þríleik um konur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Þetta er í raun stórviðburður að
Laurie Anderson sé að koma hing-
að,“ segir Ragnheiður Óladóttir,
forstöðumaður Vatnasafnsins og
Amtbókasafnsins í Stykkishólmi.
Bandaríski listamaðurinn Laurie
Anderson ætlar að flytja gjörning
og spila tónlist í Vatnasafninu í
Stykkishólmi á laugardaginn og
verður þetta í fyrsta sinn sem hún
kemur hingað til lands. Anderson
sló í gegn í listheiminum á níunda
áratugnum og er einnig þekkt fyrir
að vera eiginkona tónlistarmanns-
ins Lou Reed. „Hún er ein af þeim
fyrstu sem notuðu margmiðlun í
list sinni. Hún er mikil gjörninga-
manneskja og fjöllistakona. Hún er
líka mjög skemmtileg og fyndin,“
segir Ragnheiður. „Hún er mjög
þekkt á meðal listamanna og um
leið og það fréttist af þessum við-
burði varð strax uppselt.“
Aðeins um eitt hundrað manns
sjá gjörninginn, enda fer hann
fram í sérstöku rými Vatnasafns-
ins þar sem aðeins fjörutíu sæti
eru í boði. „Vatnasafnið er lista-
verk sem var komið fyrir í gamla
bókasafninu í Stykkishólmi,“ segir
Ragnheiður. „Hún verður þarna
innan um glersúlur sem eru fyllt-
ar með jöklavatni úr íslenskum
jöklum og mun flytja þar þennan
gjörning. - fb
Laurie Anderson treður upp í Stykkishólmi
LAURIE OG LOU Laurie Anderson ásamt
eiginmanni sínum, tónlistarmanninum
heimsfræga, Lou Reed. Laurie flytur
gjörning í Vatnasafninu á laugardaginn.
NORDICPHOTOS/GETTY
Eurovision-hópurinn
með Heru Björk í broddi
fylkingar hefur í nægu
að snúast úti í Noregi. Í
gær heimsótti hópurinn
grunnskóla en þar höfðu
krakkarnir fræðst um
Ísland og fluttu fyrirlestur
um landið fyrir hópinn. Hera tók svo
að sjálfsögðu lagið fyrir krakkana og
flutti Krummi svaf í Klettagjá og að
sjálfsögðu Je Ne Sais Quoi á meðan
bakraddasöngvarinn Pétur Örn lék
undir á gítar …
Pétur þykir afar fyndinn
maður og er hann
búinn að halda uppi
stemningunni í hópnum
í Noregi. Eftir heimsókn-
ina í grunnskólann tók
við æfing í söngskóla
Siggu Beinteins og
því næst lá leiðin til
Örnu Grétarsdóttur, prests Íslendinga
í Noregi. Nóg er um veisluhöld en
á þriðjudag var hópnum boðið í
grill hjá Íslendingafélaginu í Ósló. Í
gærkvöldi lét hópurinn svo sjá sig í
serbneska sendiráðsbústaðnum, en
þar hitti Hera keppinaut sinn úr fyrri
undanriðlinum.
Æfingar eru hafnar
á leikverkinu Enron
í Borgarleikhúsinu.
Þar á bæ ættu
menn að vera orðn-
ir vanir efnahags-
legum hörmungum
eftir að hafa
eytt nokkrum
sólarhringum í lestur rannsóknar-
skýrslunnar. Þeir sem hafa litið inn
á æfingar telja raunar að það sé
jafnvel nánast enginn munur á inni-
haldi skýrslunnar frægu og leikritsins
um Enron sem Stefán Jónsson
leikstýrir.
Töluverð tónlist er í verkinu en það
eru trommufélagarnir Helgi Svavar
Helgason úr Flís og Sigtryggur
Baldursson sem sjá um hana. Sig-
tryggur er auðvitað orðinn nokkuð
nátengdur fjármálahruninu því hann
stóð fyrir baraáttutónleikum fyrir
nímenningana frægu á laugardaginn
en tengdasonur trymb-
ilsins er einmitt einn
þeirra sem er kærður
fyrir árásina á
Alþingi. - afb, fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8
1 Ólöf Nordal sækist eftir
varaformannsembættinu.
2 Framsóknarmenn vilja að
grunnskólabörnum verði gefinn
hafragrautur og lýsi.
3 Ásgeir Börkur Ásgeirsson Fylki
er leikmaður annarrar umferðar.