Samtíðin - 01.11.1970, Page 19

Samtíðin - 01.11.1970, Page 19
SAMTÍÐIN 15 New York. Þaðan fór hann 15 ára gam- all og komst í sjóherinn, en var settur á land í San Diego í Kaliforníu, „þegar þeir komust að því, að ég var of ungur,“ segir hann. Síðan hvarf hann aftur til New York og komst þar í snjómokstur á götunum fyrir 8 dollara daglaun, en vann síðan hjá veðmálamanni. Áður en Robbins var orð- inn 21 árs, í kreppunni frægu, hafði hann grætt rúma eina milljón dollara á því að kaupa baunir úti á ökrunum og selja þær niðursuðuverksmið j um. „Ég fékk léða 800 dollara," segir hann, „og eyddi 200 af þeim í flugnám. Síðan leigði ég mér flugvél, flaug til Virginíu- ríkis og keypti þar baunaekrur. Bændurn- ir voru alveg stórhrifnir af að sjá mig fljúga í þessari vél.“ Seint á 4. tug aldarinnar, þegar stríðið var í aðsigi, keypti Robbins 4 skipsfarma af sykri, en tapaði 2 millj. dollara á þeim, þegar Franklin D. Roosevelt forseti setti verðlagsákvæði á sykur. Þetta var eitt af hinum alkunnu „pennastrikum" stjórn- málamannanna, sem gert hafa fjölda fólks öreiga. „Það gerði mig gjaldþrota," sagði Robbins. „Og af því að enginn vildi nú veita mér atvinnu, hóf ég lífsbaráttuna að nýju og gerðist skipamiðlari hjá Uni- versal“ Robbins kveðst hafa gerzt rithöfundur af einskærri tilviljun. Það orsakaðist þann- ig, að honum ofbauð gersamlega, þegar Universal keypti handrit eitt fyrir 850 000 dollara. Hann áleit það nefnilega alls ekki þess virði. „Þá sagði ég við sjálfan niig: Betur gæti ég skrifað en þetta.“ — Svo tók hann sig til og skrifaði „Never Love a Stranger“, sem varð undir eins metsölubók; hún kom út 1948. Aðspurður um ástæðurnar fyrir vel- megun sinni svaraði Robbins, sem núna hefur um 40 lögfræðinga og bókhaldara í þjónustu sinni: „Ég er hamingjusamur. Ég rek gífur- lega sölustarfsemi.“ Hann er glaðlyndur og opinskár og kær- ir sig bollóttan um frásagnarstílinn í bók- um sínum. „Það eina, sem skiptir mig máli, er að segja sögu,“ segir hann. Um mat komandi kynslóða á bókum sínum er honum öldungis sama. „Þegar ég er dauð- ur, varðar mig ekkert um, hvað sagt verð- ur um mig,“ segir hann. Ætla mætti, að Harcld Robbins væri lítið annað en lifandi reiknivél. En því fer fjarri. Hann er glaðlyndur gæfumaður. „Það, sem skiptir mig mestu máli í lífinu, er kona mín og dóttir. Ég veit, að það kann að hljóma hjákátlega eftir það, sem hér hefur verið sagt, en það er sannleik- ur,“ segir hann að lokum. mammmmmmmmmm^^mmmmmmmmmmmmmamma^m^mmmammmmm^^i^mmmmmmmmw^^mmmmw SAfiT | að vasaþjófar skoði tízkublöð einkum með tilliti til þess, hvar vasarnir verði næst. ♦ að gervitennur geri gömlu fólki unnt að naga sig í handarbökin. ♦ a'ð hrukkur ættu helzt að vera rákir eftir bros. ♦ að greindari mennirnir eigi hinum ó- greindari velgengni sína að þakka. ♦ að stam veiti forréttindi til að ganga bak orða sinna. Fátt gleður meira en góð mynd. IVÝJA HIYXDASTOFAIV Skólavörðustíg 12 . Sími 15-1-25

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.