Fréttablaðið - 28.06.2010, Blaðsíða 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Ég er á stað fyrir utan húsið mitt
þar sem ég hef verið rosalega oft
að sinna listinni í sumar,“ segir
Sunna María Schram sem er
nýútskrifuð frá myndlistardeild
Listaháskóla Íslands. „Þegar það
er gott veður þá er ég bara fyrir
utan húsið mitt. Þetta er ótrúlega
skjólsæll og góður staður.“
Húsið sem Sunna býr í var
byggt árið 1907 og hefur alla
tíð verið haldið vel við að sögn
Sunnu. Það er í dag friðað. Að
mati Sunnu er húsið, sem stend-
ur við Grettisgötu og hún býr í,
eitt reisulegasta hús miðbæjar-
ins. „Það er gott að vera þarna
fyrir utan og fá innblástur til að
skapa verkin mín,“ segir Sunna
og heldur áfram: „Við eru líka
með ræktun þarna. Við ræktum
jarðarber og svo eru tómatplönt-
ur í glugganum sem ég sit við. Við
erum reyndar með meiri rækt í
Skammadal í Mosfellsdal.“
Sunna flutti inn í húsið fyrir
um sex árum og hún segir stað-
inn hafa heillað sig frá upphafi.
„Þetta er algjörlega minn stað-
ur. Ég var með sýningu í Crymo
Gallerí í maí þar sem ég var að
sýna stóra skúlptúra og ég bjó þá
alla til þarna fyrir utan,“ segir
Sunna og bætir við að fólk stoppi
oft og spyrji hvað hún sé að búa
til. „Þetta er svolítill umræðu-
vettvangur. Það er mikið mann-
líf akkúrat þarna.“
Sunna rifjar upp skemmtilegt
samtal. „Ég á iðulega í ótrúlega
skemmtilegu spjalli við póstburð-
arkonuna. Hún fræðir mig um það
sem er að gerast í götunni og aðra
listamenn sem búa þarna nálægt
og þeirra hagi. Það er oft svolítið
gott spjall.“
Sunnu finnst þægilegt að vera
heima við og sinna list sinni.
„Ég ætti samt eiginlega að vera
á vinnustofu sem ég var að fá
úthlutað í útgerðinni sem Hug-
myndahús háskólanna var að
stofna. Þetta er vettvangur
fyrir ungt fólk sem vill vinna
við nýsköpun, sköpun og skapa
sín eigin tækifæri. Ég var að fá
úthlutað alveg frábæru rými
þar.“
Sunna fer að heiman í næstu
viku þegar hún heldur á listahá-
tíðina Æring í Salthúsinu á Stöðv-
arfirði sem hefst á laugardag.
martaf@frettabladid.is
Umræðuvettvangur
sem veitir innblástur
Sunna María Schram segir uppáhaldsstaðinn á heimilinu vera rétt utan við húsið sem er reisulegt og
grænt á Grettisgötu. Hún er myndlistarkona sem sinnir oft list sinni þar og spjallar við gesti og gangandi.
Sunna María Schram með hluta útskriftarverkefnis síns sem hún sýnir á Æringi um næstu helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GARÐSHLIÐIÐ getur verið gaman að hressa upp
á og mála í einhverjum glaðlegum lit. Ef liturinn er of
afgerandi til lengdar er ekkert mál að mála bara aftur í
einhverjum hlutlausum lit.
SUMAR ÚTSALA
Gerið gæða- og verðsamanburð
20-50%
AFSLÁTTUR
Lök, hlífðardýnur, sængurverasett,
heilsukoddar, viðhaldskoddar,
íslenskir PU leðurgaflar,
náttborð, útlitsgallaðar dýnur
og fleira.
6 mán
aða
vaxtal
ausar
greiðs
lur
SAGA Queen rúm, nú aðeins 129.900
ÞÓR Queen rúm, nú aðeins 149.900
Ný se
nding SAGA OG ÞÓR
Hágæða heilsudýnur
VALHÖLL/FREYJA
Góð rúm á frábæru verði
Ný sending
Queen rúm, nú aðeins kr. 99.900Queen rúm nú aðeins kr. 179.900
- Gefðu íslenska hönnun
Lín Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is
Sængurfatnaðurinn frá Lín Design er ofinn úr bómullardamask.
Yfir 30 tegundir af íslenskum sængurfatnaði til brúðargjafa.
Íslensk hönnun á góðu verði.
Dúnmjúkar brúðargjafir
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki