Fréttablaðið - 28.06.2010, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 28. júní 2010 15
Urð og grjót - Upp í mót ...
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Meindl Colorado Lady GTX
Vinsælir og góðir.
Nubuk leður.
Gore-Tex vatnsvörn
Multigriff sóli.
Þyngd: 750g (stærð 42)
Einnig til í herrastærðum.
Verð 42.990 kr.
Trezeta Tiwanacu Pro
Vatnsvarðir og vandaðir.
Hentugir í lengri göngur.
Góður ökklastuðningur.
Vibram sóli.
Þyngd: 710g (stærð 42)
Einnig fáanlegir í herraútfærslu.
Verð 28.990 kr.
Trezeta Maya
Vandaðir og léttir skór.
Góð vatnsvörn og öndun.
Vibram sóli.
Ökklastuðningur.
Þyngd: 620g (stærð 42)
Einnig fáanlegir í dömuútfærslu (ljósari litur).
Verð 22.990 kr.
Hver fær bréf
frá þér?
Sendu kveðju til þeirra sem þér þykir
hafa verið til fyrirmyndar.
Kynntu þér hvatningarátak tileinkað
frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku
þjóðinni á tilfyrirmyndar.is
Sumarið okkar er svo stutt að sektarkenndin er innbyggt í
það. „Jæja!“ heyrist kvakað úr
hverjum mó meðan fuglarnir
flögra um með dugnaðarfasi og
litlu blómin kalla með augun á
stilkum: „sjáið mig! sjáið mig!“
en milli þeirra skjögra dauða-
drukknar flugur eða lenda í
vefnum á djúpvitrum köngulón-
um sem starfa í hverju horni.
Sjórinn spegilsléttur, golan
gælandi við mjúkt hörund-
ið, iðandi kyrrðin, ilmurinn af
jörðinni þar sem lúpínan hefur
ekki fengið að tortíma hinu lág-
kynja lyngi og blóðbergi... sum-
arið logar frá einni stund til
annarrar, svo stutt, og manni
finnst maður eigi að lifa hverja
mínútu því það koma aldrei
kvöld, náttleysan ríkir, morg-
unninn nær til fimm á dag-
inn og dagarnir ná til fimm á
morgnana... og sumarið logar:
„Kom fyll þitt glas...“
Þetta er alveg satt: það er
mjög óeðlileg iðja að sitja alla
daga og horfa á knattspyrnu
algerlega óvandabundinna
manna.
Sagnabálkur
Það er svo passíft. Okkur er
ætlað að djöflast sjálfum, lík-
ami okkar er til þess gerður, og
sú iðja að horfa á aðra gera það
fyrir sig (og úða í sig snakki og
svolgra bjór á meðan) er í raun
og veru einhvers konar óeðli.
En... Að fylgjast með heims-
meistaramótinu í fótbolta er
dálítið eins og að detta í að
lesa þykkan og skemmtilegan
sagnaflokk á borð við Íslend-
ingasögurnar eða bækur
Simenons eða Rex Stout. Þetta
er einn sagnaheimur með ótal
sögum, en engu að síður vel
afmarkaður með takmörk-
uðu persónugalleríi. Allar eru
sögurnar byggðar nokkurn
veginn eins en þó er í þeim
akkúrat hæfilegur sveigjan-
leiki fyrir óvænta atburði.
Þetta eru sögur með upphafi,
miðju, dramatískum hápunkti
og endi. Í þeim eru skýr átök.
Þar eru hetjur og skúrk-
ar, ósýnilegir dugnaðarfork-
ar, ofsýnilegir dramaprinsar,
þar eru tragedíur og gleðileik-
ir, mannlegir lestir og ómæld
sæmd, klókindi, slóttugheit,
ráðvendni, staðfesta, óskráð-
ar reglur um drengskap. Þetta
eru dæmisögur um mannlegt
atferli og mannlegt samfélag.
Þessar sögur lúta sömu
grundvallarlögmálum, reglur
eru skýrar en þó hægt að velta
vöngum um túlkun þeirra,
atburðir ráðast af svipuðum
aðstæðum, svipaðir karakterar
leika lykilhlutverk frá sögu til
sögu – sömu náungarnir skjóta
jafnvel upp kollinum í ólíkum
sögum. Þótt sögð sé sífellt ný
og ný saga líkist hver þeirra
öllum hinum ósegjanlega.
Þetta er alltaf eins. Hlaup
í mönnum. Óðagotið. Auka-
spyrnurnar hátt yfir markið.
Vúvuselabuldrið. Tæklingarn-
ar. Feilsendingarnar. Þjálfarar
með ygglibrún. Athugasemd-
ir lýsendanna um að liðið verði
að fara að sækja upp kantana
ef það ætli að komast eitthvað
áleiðis gegn hinni sterku vörn
andstæðingsins. Þorsteinn J
með vitringana þrjá á eftir. Og
leikurinn á sextíu sekúndum.
Meira að segja mörkin sem
koma svo skyndilega og eins og
undantekningar frá reglunni
því þessi leikur virðist frem-
ur ganga út á að láta menn ekki
skora en að leyfa þúsund mörk-
um að blómstra.
Nautnin af því kunnuglega
Nautn neytandans felst einmitt
í þessu: þetta er alltaf eins.
Umberto Eco kenndi þessa
nautn við déjà vu í grein sem
hann skrifaði um sakamálasög-
ur og þá ráðgátu hvers vegna
við lesum slíkar sögur aftur
og aftur þótt þær séu alltaf
eins. Okkur finnst eftirsókn-
arverð lestrarreynsla að hitta
fyrir nákvæmlega eins fólk
við nákvæmlega eins kringum-
stæður og upplifa nákvæmlega
eins spennu; hið óvænta verð-
ur nákvæmlega eins alltaf. Hið
óvænta er þekkt stærð.
En til að hafa nautn af því
kunnuglega þarf að þekkja það.
Það þarf að vera læs á leikinn.
Þess vegna er það líka afmark-
aður hópur sem hefur ánægju
af því að fylgjast með þess-
um mótum. Það er lærð hegð-
un að horfa á fótbolta, svolít-
ið í ætt við að venja sig á að
hlusta á langar sinfóníur. Eins
og þær eru fótboltaleikir hægir
og lygnir á ytra borði og virð-
ast tíðindalausir en fyrir hið
þjálfaða eyra – eða auga – er
ótal margt sem gleður. Til þess
eru lýsendurnir og vitringarn-
ir þrír á eftir – að benda okkur
á þá snilld sem blasir alls ekki
við, útskýra fyrir okkur „verk-
ið“ og lögmál þess. Þeir eru
eins og tónlistargagnrýnendur.
Í þeim skilningi eru fótbolta-
leikir eins og sinfóníutónleik-
ar íþróttanna. Kannski að RÚV
ætti að fá Þorstein J til að búa
til þætti kringum sinfóníutón-
leikana næsta vetur?
Fótboltinn
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Í DAG
Að fylgjast með heimsmeistaramót-
inu í fótbolta er dálítið eins og að
detta í að lesa þykkan og skemmtileg-
an sagnaflokk á borð við Íslendinga-
sögurnar eða bækur Simenons eða
Rex Stout.