Fréttablaðið - 28.06.2010, Blaðsíða 46
30 28. júní 2010 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
SUMARFRÍIÐ
„Það er nú lítið sumarfrí hjá
mér en ég reyni að taka dag og
dag og kúpla mig út úr fótbolta.
Svo erum við að skipuleggja
haustfrí í október eftir að tíma-
bilinu er lokið.“
Gunnlaugur Jónsson, þjálfari meistara-
flokks Vals í fótbolta.
„Við reiknum með að fara í ágúst og vera
í tvær til þrjár vikur,“ segir Pálmi Ragn-
ar Ásgeirsson, meðlimur StopWaitGo.
Pálmi Ragnar, Ásgeir Orri, bróð-
ir hans, og Sæþór Kristjánsson, félagi
þeirra, skipa lagahöfunda- og upptöku-
teymið StopWaitGo. Þeir eru á leiðinni
til Los Angeles að hitta stúlkurnar í The
Charlies, áður Nylon, og reyna að koma
sér á framfæri í stjörnuborginni.
„Þetta hefur verið nokkurn veg-
inn samstarfsverkefni á milli okkar og
stelpn anna í The Charlies frá upphafi,“
segir Pálmi. „Við erum búnir að vera
að semja og taka upp lög fyrir þær og í
staðinn eru þær að koma okkur, lögunum
okkar og samstarfinu á framfæri úti.“
Strákarnir í StopWaitGo sömdu og
tóku upp lagið Geðveikt fínn gaur með
grínistanum Steinda Jr. og Ásgeir
úr teyminu syngur og leikur í mynd-
bandinu. Lagið hefur vakið mikla
athygli, en Pálmi segir strákana einn-
ig hafa fengið mikið lof að utan fyrir
lögin þeirra sem Charlies-stúlkurnar
tóku með sér til Los Angeles. Þegar út er
komið vonast strákarnir til að ná athygli
þeirra sem sjá um að dreifa lögum til
listamanna.
„Stelpurnar ætla að vera búnar að
bóka fundi með einhverjum af þeim
mögnuðu tengiliðum sem þær eru búnar
að kynnast síðan þær komu út,“ segir
Pálmi. „Þær eru búnar að hitta fólk sem
er með því frægasta í Bandaríkjunum.“
- ls
Á leiðinni til LA á fund The Charlies
REYNA VIÐ HOLLYWOOD StopWaitGo ætla nú að koma lögum sínum
á framfæri með aðstoð The Charlies.
Fyrstu helgina í júlí fer af stað
útimarkaður í portinu bak við
danska sendiráðið á Hverfis-
götunni. Markaðurinn ber nafn-
ið Reykjavik Creative Mark-
et og mun bjóða upp á alls kyns
íslenska hönnun. Markaðurinn
mun vera í gangi allar helgar
í júlí og ágúst, laugardaga og
sunnudaga.
„Markmiðið er að að gefa
íslenskum hönnuðum stað til að
selja sínar vörur og kynna sitt
starf. Draga saman það sem
er nýtt, ferskt og áhugavert í
íslenskri hönnun og vöruhönnun.
Svo skapast oft svo góð stemning
á útimörkuðum,“ segir Guðbjörg
Jakobsdóttir fatahönnuður, ein
af þeim sem stendur að þessu
verkefni, en hún tók einnig þátt í
að stofna PopUp-markaðina vin-
sælu.
„Það er svo mikið af hönnuð-
um sem eru með góðar vörur
og hugmyndir sem leggja ekki í
þá fjárfestingu að stofna fyrir-
tæki. Þeir fá nú tækifæri til að
komast að því hvernig vörunni
er tekið af kaupandanum,“ segir
Guðbjörg en á markaðnum verða
bæði hönnuðir að stíga sín fyrsta
skref í bland við sprotafyrirtæki
að stækka sinn kúnnahóp.
Guðbjörg segist vera viss um
að útimarkaðir geti gengið á
Íslandi þrátt fyrir óstöðugt veð-
urfar. „Við erum búin að vera
með svo gott veður hér og ef
það kemur rigning þá erum við
bara viðbúin því,“ segir Guð-
björg og bætir við að portið þar
sem markaðurinn verður haldinn
sé svo skjólsæll að þau losni að
minnsta kosti við íslenska rokið.
- áp
Íslensk hönnun á útimarkaði í sumar
SUMARSTEMNING Í þessu porti ætlar Guðbjörg Jakobsdóttir fatahönnuður að vera
með útimarkað hverja helgi í júlí og ágúst undir nafninu Reykjavik Creative Market.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
„Ég las Gauragang þegar ég var
yngri og hún eldist vel,“ segir
Hildur Berglind Arndal.
Hin 21 árs gamla Hildur Berg-
lind og hinn tvítugi Alexander
Briem fara með hlutverk Lindu
og Orms í væntanlegri kvikmynd
Gunnars Björns Guðmundssonar
byggða á Gauragangi eftir Ólaf
Hauk Símonarson.
Hildur er Hafnfirðingur og hóf
nýlega nám í leiklistardeild Lista-
háskóla Íslands. Hún segist ekki
vera lík Lindu, sem eins og flest-
ir vita var ekki gerð til að búa í
blokk, heldur færi betur í höll með
þjón. „Ég er svolítið grófari,“ segir
Linda og hlær.
Leiklistaráhugi Lindu kvikn-
aði í Fjölbrautaskólanum í Garða-
bæ, en þar tók hún meðal annars
þátt í uppfærslu nemendafélags-
ins á Chicago. Hún er ekki úr leik-
arafjölskyldu þannig að áhuginn
virðist að mestu sjálfsprottinn.
„Verkefnið leggst vel í mig. Þetta
er mjög spennandi,“ segir hún
og bætir við að hún hlakki til að
vinna með fólkinu á bakvið mynd-
ina – sérstaklega Gunnari leik-
stjóra. Hann leikstýrði Astróp-
íu, sem naut gríðarlega vinsælda
og leikstýrði einnig vel heppnuðu
áramótaskaupi síðasta árs.
Alexander Briem segir upp-
reisnarsegginn Orm Óðinsson
líkjast sér að einhverju leyti. „Ég
sá mig svolítið fyrir mér í Ormi
þegar ég las bókina á sínum tíma,“
segir hann. „Þannig að það er svo-
lítið skondið að vera að fara að
leika hann núna, tíu árum síðar.“
Ungur að árum tók Alexander
þátt í tveimur sýningum í Þjóð-
leikhúsinu. Hann útskrifaðist af
leiklistarbraut kvikmyndaskóla
Íslands vor og söng í hljómsveit-
inni Soundspell sem gaf út plöt-
una An Ode to the Umbrella fyrir
þremur árum. Hann þvertek-
ur fyrir að vera stressaður fyrir
hlutverkið og segist hlakka mikið
til. „Ég tók meðvitaða ákvörðun
um að fara ekki á leikritið,“ segir
Alexander, en Borgarleikhúsið
sýnir verkið um þessar mundir.
„Ég er algjörlega að vinna þetta
útfrá mínum eigin forsendum og
hugmyndum um hann.“
atlifannar@frettabladid.is
ALEXANDER BRIEM OG HILDUR ARNDAL: LEIKA ORM OG LINDU
Þreyta frumraun sína á
hvíta tjaldinu í Gauragangi
UNG OG EFNILEG Alexander og Hildur túlka stormasamt samband uppreisnarseggsins Orms og snobbpíunnar Lindu í kvikmynd-
inni Gauragangur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÁRÉTT
2. sigti, 6. fíngerð líkamshár, 8.
kvikmyndahús, 9. gerast, 11. verslun,
12. haldast, 14. súla, 16. innan, 17.
sægur, 18. fálm, 20. ekki heldur, 21.
íþróttafélag.
LÓÐRÉTT
1. fyrst fædd, 3. í röð, 4. land, 5. leik-
föng, 7. galli, 10. hnoðað, 13. hjör, 15.
felldi tár, 16. upphrópun, 19. skóli.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sáld, 6. ló, 8. bíó, 9. ske,
11. bt, 12. tolla, 14. stöng, 16. út, 17.
mor, 18. fum, 20. né, 21. fram.
LÓÐRÉTT: 1. elst, 3. áb, 4. líbanon, 5.
dót, 7 ókostur, 10. elt, 13. löm, 15.
grét, 16. úff, 19. ma.
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Ólöf Nordal.
2 Þjóðflokkurinn býr í Papua í
Indónesíu.
3 Hátíðin er nú haldin í 40. sinn.
Lítið hefur spurst til
hljómsveitarinnar Sigur
Rósar undanfarna mán-
uði, eða frá því að Jónsi
söngvari gaf út plötu
og hélt í tónleikaferð
um heiminn.
Strákarnir voru
reyndar heiðr-
aðir af tónlist-
artímaritinu
Mojo á dögunum, en aðdáendur
bíða vafalaust eftir nýrri tónlist.
Það vakti gleði gesta á Boston á
föstudagskvöld að sjá þá Kjartan
og Orra úr Sigur Rós saman í góðu
glensi. Georg og Jónsi voru reyndar
hvergi sjáanlegir, þannig að ein-
hverjir gestir urðu súrir yfir því að
þeir væru líklega ekki að fagna vel
heppnaðri hljómsveitaræfingu.
Eins og greint var frá í
þessum dálki í síðustu
viku vaknaði frétta-
konan Lára Ómars-
dóttir úr bloggdvala
í kjölfar gagnrýni
Jafnréttisstofu á vali
á sparkspekingum
í sjónvarpi. Lára
hamraði inn
hverja færsluna
á fætur annarri um keppnina og
stimplaði sig rækilega inn. Logi
Bergmann og Ragna Lóa í þættin-
um 4-4-2 létu ekki segja sér það
tvisvar og Lára var mætt í þáttinn
á föstudagskvöld þar sem hún lét
gamminn geisa.
Félagarnir Auðunn Blöndal, Sveppi,
Villi Naglbítur og Egill Gillz eru
nú staddir í Bandaríkjunum við
tökur á sjónvarpsþætti sem verður
sýndur í haust. Auðunn og Egill eru
í liði á móti Sveppa og Villa og þeir
keppast nú við að komast þvert
yfir Bandaríkin ásamt því að leysa
þrautir. Fáir hugsa jafn mikið um
útlitið og Egill, sem var
með strangt æfingar-
prógram fyrir brottför
og eins og það væri
ekki nóg; Egill ku líta
svo á að brúnkukremin
séu mikilvægari en
sjálft vegabréfið.
- afb
FRÉTTIR AF FÓLKI