Fréttablaðið - 28.06.2010, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 28.06.2010, Blaðsíða 34
18 28. júní 2010 MÁNUDAGUR timamot@frettabladid.is KATHY BATES ER 62 ÁRA Í DAG. „Ég reyni alltaf að verða ást- fangin af þeim persónum sem ég leik. Um leið reyni ég að gæða þær trúverðugleika, þannig að þær gætu verið raunverulegur partur af veröldinni.“ Kathleen Doyle Bates er bandarísk leikkona og leikstjóri. Á þessum degi árið 1985 voru tvær byltingarkenndar nýjungar kynntar í póstþjónustu hérlendis, Notk- un faxtækis annars vegar og svokallaður forgangspóstur hins vegar. Póstur og sími héldu blaðamannafund þennan dag og kynntu formlega „póstfax- tækin“, eins og þau kölluðust upphaflega, sem þá höfðu verið í takmarkaðri notkun hérlendis í eitt ár. Tækin gerðu fólki kleift að senda eina blaðsíðu af myndum, texta, eða öðru prentuðu efni, fyrir 218-630 krónur, eftir því hvers konar efni var sent, og þá hvert. Ekki þótti síst byltingarkennt að einungis tók efnið nokkrar mínútur að berast á milli landa. Faxtækin kostuðu þá um 300.000 krónur og samkvæmt talsmönnum Pósts og síma átti það verðlag að gera einstaklingum og stofnunum kleift að eignast eigið faxtæki. Forgangspóstþjónustan var hefðbundin póstþjónustuna, nema að pósti undir slíkri þjón- ustu átti að kappkosta við að koma á áfangastað á eins skömmum tíma og hugsanlegt var. Í byrjun var þjón- ustan einungis veitt í nýju pósthúsi við Ármúla, póstburðargjaldið fyrir forgangspóst var þá 2.500 krónur. Sendingarnar voru sóttar til sendenda og bornar til viðtakenda og í fyrstu var einungis hægt að senda hann til viðtakenda í Finnlandi, Frakklandi, Hollandi, Lúxemborg, Stóra-Bretlandi, Sviss, Svíþjóð og Þýska sambandslýðveldinu. ÞETTA GERÐIST: 28. JÚNÍ 1985 Faxtæki og forgangspóstur SagaMedica fagnar 10 ára afmæli en fyrirtækið var stofnað 27. júní árið 2000. Fyrirtækið stendur á fleiri tíma- mótum því fyrsta klíníska rannsókn- in á virkni heilsubótarvöru frá Saga- Medica er nýhafin og er hún fyrsta íslenska náttúruvaran sem fer í gegn- um rannsókn af því tagi. Doktor Sig- mundur Guðbjarnason, fyrrum rekt- or Háskóla Íslands, hefur rannsakað íslenskar lækningajurtir í áratugi og SagaMedica var stofnað í kjölfarið á því rannsóknarstarfi. „Ég hóf þessar rannsóknir í byrjun af hreinni forvitni. Fyrsta skrefið var að athuga þekkingararf liðinna kyn- slóða, hvaða jurtir voru notaðar hér- lendis og við hverju og síðan fórum við í að mæla lífvirkni í íslenskum lækningajurtum. Úr þessum 40 jurt- um völdum við fimm til frekari rann- sókna, meðal annars ætihvönn, því hún hafði breiðari og meiri virkni en aðrar jurtir og hráefnissöfnun var auðveld,“ segir Sigmundur. Rannsóknirnar voru í fyrstu unnar á Raunvísindastofnun Háskólans en fyr- irtækið var fóstrað þar í fyrstu sem og á læknadeild Háskóla Íslands þar sem aðstaða var veitt og styrkir til grunn- rannsókna komu frá Rannsóknarráði, Tæknisjóði og fleirum. Verkefnið var unnið af stúdentum og sérfræðingum Háskóla Íslands við þröngan fjárhag en ríkri hugsjón. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og í dag eru nokkrar náttúruvörur á markaði sem hafa verið þróaðar hjá SagaMedica. Í dag eru í framleiðslu Angeli- ca jurtaveig, Voxis hálsbrjóstsykur, Artic Angelica fyrir erlendan mark- að, SagaPro, Angelica töflur og Saga- Memo. „Áhrifin af vörunum voru meiri og fjölbreyttari en gert var ráð fyrir. Sem dæmi hefur ætihvönn reynst vel við síþreytu, kvíða, magakvillum, kvefi og flensu, ristruflunum, gleymsku og minnistapi. Við vildum því athuga hvort einhverjar rannsóknir gætu stutt þessa reynslu notenda. Í ljós kom að unnt er að styðja þessar fullyrðingar með vísan í rannsóknir sem hafa verið gerðar í fjölmörgum rannsóknastofn- unum og hafa verið birtar í ritrýndum vísindaritum. Jafnframt kom í ljós að mörg lífvirku efnin sýna samvirkni, hafa meiri virkni saman í blöndu en hvert fyrir sig.“ Fyrsta klíníska rannsóknin á virkni íslenskrar heilsubótarvöru er hafin en þessi vara er SagaPro. SagaPro er eink- um notuð við tíðum þvaglátum karla á nóttu og konum með ofvirka blöðru. Klíníska rannsóknin er mikilvæg fyrir markaðssókn erlendis þar sem menn vilja haldbær rök fyrir gagnsemi og virkni náttúruvörunnar. „Rík áhersla hefur alltaf verið lögð á öryggi vörunnar, meðal annars með dýratilraunum til að kanna hugsanleg skaðleg áhrif og í rannsóknum á virkni var samráð haft við lækna.“ Næstu skref að sögn Sigmundar eru meðal annars rannsóknir á fleiri jurt- um og stórsókn erlendis. „Í haust er stefnan sett á markað í Kanada og Flór- ída, þar sem mikið af eldra fólki er, en vörurnar hafa reynst þeim aldurshópi afar vel. Markmiðið er og hefur verið að stuðla að bættri líðan landsmanna og að styrkja heilsu þeirra. juliam@frettabladid.is SAGAMEDICA 10 ÁRA: FYRSTA KLÍNÍSKA RANNSÓKNIN Á HEILSUBÓTARVÖRU STÓRSÓKN ERLENDIS Í HAUST STÓRT SKREF FYRIR ÍSLENSKAN NÁTTÚRUVÖRUIÐNAÐ SagaPro er fyrsta íslenska náttúruvaran sem fer í gegnum klíníska rannsókn en SagaMedica hyggst markaðssetja vöruna vestanhafs í haust. Sigmundur Guðbjarnason hefur rannsakað mátt íslenskra lækningajurta í áratugi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR MERKISATBURÐIR 1867 Grímur Thomsen kaupir Bessastaði og sest þar að. 1908 Stjórnmálafundur er hald- inn við Lagarfljótsbrú út af sambandslaga-„upp- kastinu“. 1912 Fyrsti leikurinn í fyrsta Ís- landsmótinu í knatt- spyrnu fer fram á Mela- vellinum. KR gerir jafntefli við Fram. 1947 Landbúnaðarsýning er haldin í Reykjavík. Helm- ingur landsmanna þá, 60.000 manns, sér hana. 1959 María Andrésdóttir í Stykkishólmi neytir kosn- ingaréttar síns, þá 100 ára. Hún nær 106 ára aldri. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og vinur, Halldór Hjálmarsson, húsgagna- og innanhússarkitekt, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 29. júní kl. 13.00. Skafti Þ. Halldórsson Sigríður Hagalínsdóttir Örn Þór Halldórsson Anna Margrét Halldórsdóttir Ragnar Birgisson Erla Rúriksdóttir barnabörn og barnabarnabarn. MOSAIK Hérlendis verpa tvær teg- undir skarfa, toppskarfur og dílaskarfur. Skarfar eru skyldir súlum og pelíkönum, tilheyra svokölluðum árfætluættbálki. Skarfar eru dökkir, grannir og langir sjófuglar, sem eru mjög sérhæfðir í köfun og eru í laginu eins og brúsar (lómur og himbrimi) og fiskiendur. Toppskarfur er nokkru minni og grennri en dílaskarfur. Í varpbúningi er toppskarfur alsvartur með grænleitri slikju. Hann virðist hreistraður að ofan vegna dökkra fjaðrajaðra. Uppsveigður fjaðratoppur á höfði er einkenni fullorðinna fugla frá því í janúar fram á vor. Ungfugl er dökkbrúnn, með ljósan framháls, en ekki ljósleitur á bringu og kviði eins og ungir dílaskarfar. Eftir köfun þarf toppskarfur að þurrka vængina og situr þá oft og blakar þeim, „messar“. Hann er fremur klaufalegur þegar hann hefur sig á loft. Toppskarfurinn heldur sig við strendur og sést nær aldrei inn til landsins eins og dílaskarfur, sem sést oft á vötnum og ám fjarri sjó. Verpur í byggðum, er algengastur á lágum eyjum eða hólmum í Breiðafirði og Faxaflóa. Er einn- ig í lágum klettum, stundum í fuglabjörgum eða í stórgrýtis- urðum. Hreiðrið er hraukur úr þangi, fóðrað með fjöðrum og grasi. Toppskarfi hefur fækkað á síðustu árum, en hann er allnokkuð veiddur. FUGL VIKUNNAR: TOPPSKARFUR Skemmtilegur sjófugl TOPPSKARFUR Fullorðinn toppskarfur. MYND/JÓHANN ÓLI FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ingveldur Óskarsdóttir Thorsteinson, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ aðfaranótt sunnu- dagsins 20. júní. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 30. júní kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á hjúkrunarheimilið Skógarbæ. Margrét Fafin Thorsteinson Páll Svavarsson Steinunn Thorsteinson Jóhanna Thorsteinson Bergur Bergsson Anna Björg Thorsteinson Sigursteinn Sævar Einarsson Birgitta Thorsteinson Magnús G. Benediktsson Steingrímur Árni Thorsteinson Ásta Kristín Svavarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Kristján Hilmar Jónsson Bylgjubyggð 39b, Ólafsfirði, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar sunnudaginn 20. júní. Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju þriðjudaginn 29. júní kl. 14. Ásta Helgadóttir Freygerður Dana Kristjánsdóttir Ingibergur Þorkelsson Hilmar Kristjánsson Birna Óskarsdóttir Jóna Kristín Kristjánsdóttir Eiríkur Pálmason Sigurbjörg Kristjánsdóttir Árni Jón Straumberg Guðmundarson barnabörn og barnabarnabörn. Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.