Fréttablaðið - 28.06.2010, Blaðsíða 8
8 28. júní 2010 MÁNUDAGUR
VERSLUN Margir eigendur veitinga-
staða og kaffihúsa í kringum Aust-
urvöll og víðar í miðbænum eru á
móti staðsetningu ÁTVR við Aust-
urstræti. Eru þeir sammála um að
neysla Íslendinga á áfengi auk-
ist til muna þegar veður er gott
og sólin skín, en finna fyrir mik-
illi samkeppni við ÁTVR og segja
að það verði æ algengara að fólk
kaupi sér þar bjór eða léttvín og
setjist með það beint á grasið á
Austurvelli.
„Þetta er mjög mikil sam-
keppni,“ segir Tómas Kristjáns-
son, eigandi Íslenska barsins.
„Þegar sólin skín vilja allir vera á
Austurvelli með öl í bauk.“
Valdimar Hilmarsson, eigandi
Hressingarskálans, segir að stað-
setning ÁTVR dragi að sér ógæfu-
fólk og vill láta færa staðsetningu
búðarinnar.
„Það er ekki spennandi fyrir
ferðamenn sem sækja miðbæinn
að sjá svona mikið af ógæfufólki
í kringum sig,“ segir hann. „Fyrir
utan að vera mikil samkeppni við
veitingastaði á svæðinu.“
Einn eigenda Thorvaldsen bars,
Valdís Arnardóttir, og Óli Már
Ólason, annar eigandi Vegamóta
og Austur, taka í sama streng og
Valdimar og segjast finna fyrir
mikilli samkeppni við ÁTVR við
Austurstræti. Þau telja að stað-
setningin eigi að vera færð lengra
frá veitingahúsum. Þó finnst þeim
Íslendingar alla jafna vera dugleg-
ir við að setjast niður á veitinga-
staði og fá sér drykk þegar veðr-
ið er gott.
Arnór Bohic, einn af eigendum
Hvítu perlunnar og Café París við
Austurvöll, er sammála því að áfeng-
isneysla aukist þegar veður er gott.
„Íslendingum finnst ekki leiðinlegt
að drekka,“ segir hann. „Austurvöll-
ur er miðpunktur borgarinnar og það
er frábær stemning sem getur mynd-
ast þar þegar allt þetta fólk kemur
saman og getur skipt þúsundum.“
Arnór er ósammála því að flytja
eigi ÁTVR úr Austurstræti.
„Það ættu að vera fleiri búðir og
lengri afgreiðslutími,“ segir hann.
„Það er alveg nógu mikið að gera
hjá okkur og ÁTVR er þjónusta sem
er nauðsynleg á þessum stað.“ Varð-
andi umgang ógæfufólks í kringum
búðina segir Arnór að staðsetningin
sé ekki vandamálið. „Borgaryfirvöld
eru ekki að sinna þessu fólki eða eru
með nein sýnileg plön um það hvern-
ig á að meðhöndla það,“ segir Arnór.
sunna@frettabladid.is
Háskóli Íslands og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur
bjóða til fyrirlestrar til að minnast þess að 30 ár
eru nú liðin síðan Vigdís Finnbogadóttir var kjörin
forseti Íslands.
Þriðjudaginn 29. júní, kl. 12–13 í Öskju, salur 132
Laura Liswood,
formaður Council of Women World Leaders:
The Power of the Mirror
Fundarstjóri er Kristín Ingólfsdóttir,
rektor Háskóla Íslands.
Allir velkomnir.
Þjóðarátak um Alþjóðlega tungumálamiðstöð - vigdis.hi.is
Við völdum Vigdísi
Hvaða áhrif hafði það á umheiminn?
Laura Liswood
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur
í erlendum tungumálum
FÓLK Nýfallinn hæstaréttardóm-
ur um gengistryggð lán verður
umræðuefni borgarafundar sem
fer fram í Iðnó í kvöld.
Opnir borgarafundir standa
fyrir fundinum og meðal ræðu-
manna eru Lilja Mósesdóttir
þingmaður, Guðmundur Andri
Skúlason, talsmaður Samtaka
lánþega, og Ragnar Baldursson
hæstaréttarlögmaður. Alþingis-
mönnum og ráðherrum er boðið á
fundinn ásamt forstjórum banka
og fjármögnunarfyrirtækja.
Fundurinn er opinn öllum og
hefst klukkan 20. - ls
Borgarafundur í Iðnó í kvöld:
Dómur Hæsta-
réttar ræddur
BRETLAND Fóstur geta ekki fund-
ið fyrir sársauka fyrr en eftir 24.
viku meðgöngu. Þetta eru niður-
stöður breskrar rannsóknar sem
kynnt var fyrir helgi í Bretlandi.
Sérfræðingar sem stóðu að rann-
sókninni segja að því sé ekki
ástæða til að breyta lagaákvæði
um fóstureyðingar.
Niðurstöðurnar eru taldar geta
haft neikvæð áhrif á baráttu and-
stæðinga fósureyðinga sem hafa
krafist þess að leyfi til fóstureyð-
inga verði miðað við mun styttri
meðgöngu. - ls
Ný rannsókn á fóstrum:
Telja fóstur ekki
finna sársauka
Veitingamenn vilja áfengis-
verslun burt úr miðbænum
Margir eigendur veitingahúsa í miðbænum vilja verslun ÁTVR við Austurstræti burt. Segja að staðsetning
hennar dragi að sér ógæfufólk. Verslunin veiti stöðunum mikla samkeppni þegar veður er gott.
SÓL OG SUMAR Margir veitingahúsaeigendur í miðbænum kvarta undan samkeppni
við verslun ÁTVR sem er í Austurstræti. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þegar sólin skín vilja
allir vera á Austurvelli
með öl í bauk.
TÓMAS KRISTJÁNSSON
EIGANDI ÍSLENSKA BARSINS
1 Hver er nýkjörinn varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins?
2 Þrjú þúsund manna þjóð-
flokkur fannst í frumskógi
nýverið. Hvar?
3 Glastonbury-tónlistarhátíðin
fer fram þessa dagana. Hversu
oft hefur hátíðin verið haldin?
SVÖR Á SÍÐU 46
BRUNI Eldur kom upp í tónlistar-
húsinu Hörpu á sjötta tímanum
í gær. Allt tiltækt slökkvilið á
höfuðborgarsvæðinu var kallað
út og var Oddur Hallgrímsson
varðstjóri fyrstur á vettvang.
Eldurinn var mikill og breidd-
ist hratt út, en hann náði í plast-
klæðningu á austurhlið hússins.
Greiðlega gekk að ráða niðurlög-
um eldsins.
Harpa var mannlaus þegar
slökkvilið mætti á vettvang. Sam-
kvæmt Gesti Pálssyni aðstoðar-
varðstjóra bárust stöðinni nokk-
ur hundruð símtöl um brunann.
„Það var allt svart hérna í
kring,“ segir hann. „Þegar plast
af þessu tagi verður eldi að bráð
kemur mikill og svartur reykur.“
Eldurinn kom upp utan á bygg-
ingunni og segir Gestur að margt
bendi til þess að um íkveikju hafi
verið að ræða. „Eldsupptök voru
í bráðabirgðaanddyrinu og húsið
var mannlaust, þannig að það
kemur fátt annað til greina,“ segir
Gestur. Málið er í rannsókn. - sv
Mikill eldur í plastklæðingu á tónlistarhúsinu Hörpu:
Grunur um íkveikju
í tónlistarhúsinu
VIÐSKIPTI Hörður Arnarson, forstjóri Lands-
virkjunar, segir engar viðræður hafa átt sér
stað við kínversk fyrirtæki um aðkomu að
byggingu Búðarhálsvirkjunar. Undirrituð
hafi verið viljayfirlýsing við kínverska fyrir-
tækið CWE og EXIM Bank en hún feli ekki í
sér neinar skuldbindingar heldur það að fyr-
irtækinu sé velkomið að bjóða í verkhluta
Búðarhálsvirkjunar.
Samiðn sendi frá sér harðorða ályktun í
síðustu viku þar sem hugsanleg aðkoma kín-
verskra verktaka að virkjuninni er gagn-
rýnd. Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Samiðnar, telur að semji Landsvirkjun
við kínverskt fyrirtæki um byggingu virkj-
unarinnar muni það nýta eigið starfsfólk og
fáir ef nokkrir Íslendingar
muni fá vinnu við bygging-
una. Framkvæmdin hefði
því ekki þau áhrif á íslenskt
efnahagslíf sem kveðið sé
á um í stöðugleikasáttmál-
anum.
Hörður Arnarson segir
verkið boðið út í samræmi
við lög um útboð á Evr-
ópska efnahagssvæðinu og
lögum samkvæmt sé erlend-
um fyrirtækjum frjálst að bjóða í verkið.
„Landsvirkjun mun á engan hátt gera íslensk-
um verktökum erfitt fyrir að bjóða í verkið,“
segir Hörður. - jab
Forstjóri Landsvirkjunar segir viljayfirlýsingu við kínverskt fyrirtæki ekki fela í sér neinar skuldbindingar:
Íslenskum verktökum verður ekki gert erfitt fyrir
HÖRÐUR OG FJÁRMÁLARÁÐHERRA Norræn og þýsk
fyrirtæki hafa um árin ráðið íslenskt starfsfólk hér. Það
gera kínversk ekki, segir framkvæmdastjóri Samiðnar.
ÞORBJÖRN
GUÐMUNDSSON
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
SLÖKKVISTARF Greiðlega gekk að slökkva eldinn í Hörpu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEISTU SVARIÐ?