Fréttablaðið - 28.06.2010, Blaðsíða 20
28. JÚNÍ 2010 MÁNUDAGUR2 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald
Sjö arkitektar, sem hafa nýlega
lokið framhaldsnámi í bygg-
ingalist erlendis, opnuðu
sýningu á útskriftarverkefnum
sínum síðastliðinn föstudag.
Sjö manna hópur arkitekta opnaði
sýningu í gömlu Frónverksmiðj-
unni við Skúlagötu 28 síðastliðinn
föstudag. Arkitektarnir hafa allir
nýlega lokið framhaldsnámi í bygg-
ingarlist erlendis en eiga það jafn-
framt sameiginlegt að hafa stundað
grunnnám á sama tíma í arkitektúr
við Listaháskóla Íslands og útskrif-
uðust árið 2006. Arkitektarnir eru
Arnhildur Pálmadóttir og Brynhild-
ur Guðlaugsdóttir, báðar útskrifaðar
frá IaaC í Barcelona. Bergur Finn-
bogason og Garðar Snæbjörnsson,
sem kláruðu mastersnám frá Lond-
on Metropolitian University, Hlín
Finnsdóttir, útskrifuð frá Kingston
University í London, Jóhann Einar
Jónsson sem kláraði frá TKK í Hels-
inki og Sóley Lilja Brynjarsdóttir
sem hefur nýlokið námi frá EKA í
Tallinn. Sýningin er opin í dag og á
morgun frá klukkan 17-21. - jma
Heim úr framhaldsnámi
Arkitektarnir eru sjö talsins sem standa að sýningunni. Talið frá vinstri: Jóhann Einar Jónsson, Sóley Lilja Brynjarsdóttir, Brynhild-
ur Guðlaugsdóttir, Hlín Finnsdóttir, Bergur Finnbogason og Garðar Snæbjörnsson. Á myndina vantar Arnhildi Pálmadóttur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Dansmiðstöð í Croydon, einn af stóru miðbæjarkjörnum Lond-
on, var verkefni Hlínar Finnsdóttur. MYND/ÚR EINKASAFNI
Verkefni Sóleyjar Lilju snýst um íbúarhúsnæði og staðsetn-
ingu þess innan þéttbýlis. Sóley vann með blokkarhverfi frá
áttunda áratugnum í Tallinn, Eistlandi.
N
ú er kominn sá tími ársins að trjámaðkar herja í görðum lands-
manna og margir garðeigendur spyrja sig: Þarf ég að láta „eitra“
hjá mér? Hér eru nokkur atriði sem garðeigandinn getur haft til
hliðsjónar til þess að stuðla að því að sem minnst röskun verði
á lífríki garðsins og jafnframt að viðkvæmur gróður sé varinn fyrir
skemmdum.
Mikilvægt er að átta sig á því, að þegar úðað er með skordýraeitri, þá
drepast öll skordýr sem eitrið lendir á, hvort sem þau eru skaðleg eða gagn-
leg. Hin gagnlegu skordýr lifa oft á skaðvöldunum sjálfum og veita okkur
lið í baráttunni gegn þeim, en þau geta líka verið fæða fyrir önnur dýr. Þá er
trjámaðkurinn sjálfur fæða fyrir fugla þannig að þegar við úðum erum við
að draga úr fæðuframboði fyrir dýr sem við viljum hafa í kringum okkur.
Lífríki garðsins er samofið og með úðun erum við að grípa óþyrmilega inn
í gang náttúrunnar.
Barrtré, alaskaösp, gljávíðir, gullregn og sólber eru alveg laus við
trjá maðk og ætti þess vegna aldrei að úða. Allmargar tegundir sem verða
fyrir skemmdum ná sér aftur á strik þótt ekkert sé úðað vegna þess að ný
laufblöð vaxa fram og fela þau sem hafa skemmst. Víðitegundir, toppar,
kvistar og misplar geta orðið fyrir miklum skemmdum af völdum trjá maðks.
Mikilvægt er að úða einungis þessar tegundir til þess að raska sem minnst
vistkerfi garðsins.
Hvernig á að bregðast við þegar garðaúðarinn birtist og býður þjónustu
sína? Fyrst skal kanna hvort viðkomandi sé með leyfi til garðaúðunar og
geti framvísað leyfisskírteini frá Umhverfisstofnun. Þá skal ávallt meta þörf
fyrir úðun áður en hafist er handa og garðeigandinn ætti sjálfur að taka þátt
í því mati með því að fara út í garðinn og upplifa ástandið í eigin persónu.
Ef skoðun leiðir í ljós skemmdir á gróðri en lítið sem ekkert sést af
trjá maðki, þá er orðið of seint að úða og í raun og veru bara skaðlegt vegna
þess að þá er verið að drepa saklaus nytjadýr, auk þess sem blaðverk plantn-
anna skaðast alltaf eitthvað við úðun. Ef hvorki sjást skemmdir né maðkur
er heldur ekki gagn að úðun, þá hefur maðkurinn ekki klakist út, þannig að
virka efnið nær ekki til hans. Rétti tíminn til þess að bregðast við er mjög
stuttur og mikilvægt að fylgjast vel með og grípa til aðgerða á hárréttum
tíma.
Látum náttúruna njóta vafans og notum skordýraeitur bara þegar nauð-
syn ber til!
GARÐYRKJA & UMHVERFIÐ
BJÖRN GUNNLAUGSSON
Garðar Snæbjörnsson tók fyrir hvernig útfæra megi nýjar
byggingar í smábænum Brue í Englandi og færa hann nær
upphafi sínu og gefa honum skýr útmörk.
● NÁTTÚRUNA INN Í SVEFNHERBERGIÐ Sæng-
urföt skreytt trjám, íkornum, úlfum og öðru úr skandinavískri
náttúru eru tilvalin á rúmið í sumar. Þessi sængurföt koma
frá fyrirtækinu By Nord en
aðalhönnuðurinn á bak
við merkið er Hanne Berz-
ant. Hanne á langan feril að
baki sem kennari í grafískri
hönnun auk þess sem hún
starfaði um árabil sem
listrænn stjórnandi lífs-
stílstímarits. Hún hefur
einfaldleikann, sem
gjarnan einkenn-
ir skandinavíska
hönnun, til hlið-
sjónar og fær inn-
blástur úr náttúrunni og norðurljósunum.
Vörulína By Nord inniheldur einnig púða, kertastjaka
og fleira fyrir heimilið en nánar má forvitnast um vörur By
Nord á vefsíðunni www.bynord.dk.
Með úðun er gripið óþyrmilega inn í gang náttúrunnar að mati Björns.
Garðaúðun og
lífríkið í garðinum