Fréttablaðið - 28.06.2010, Síða 15

Fréttablaðið - 28.06.2010, Síða 15
MÁNUDAGUR 28. júní 2010 15 Urð og grjót - Upp í mót ... HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500 Meindl Colorado Lady GTX Vinsælir og góðir. Nubuk leður. Gore-Tex vatnsvörn Multigriff sóli. Þyngd: 750g (stærð 42) Einnig til í herrastærðum. Verð 42.990 kr. Trezeta Tiwanacu Pro Vatnsvarðir og vandaðir. Hentugir í lengri göngur. Góður ökklastuðningur. Vibram sóli. Þyngd: 710g (stærð 42) Einnig fáanlegir í herraútfærslu. Verð 28.990 kr. Trezeta Maya Vandaðir og léttir skór. Góð vatnsvörn og öndun. Vibram sóli. Ökklastuðningur. Þyngd: 620g (stærð 42) Einnig fáanlegir í dömuútfærslu (ljósari litur). Verð 22.990 kr. Hver fær bréf frá þér? Sendu kveðju til þeirra sem þér þykir hafa verið til fyrirmyndar. Kynntu þér hvatningarátak tileinkað frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni á tilfyrirmyndar.is Sumarið okkar er svo stutt að sektarkenndin er innbyggt í það. „Jæja!“ heyrist kvakað úr hverjum mó meðan fuglarnir flögra um með dugnaðarfasi og litlu blómin kalla með augun á stilkum: „sjáið mig! sjáið mig!“ en milli þeirra skjögra dauða- drukknar flugur eða lenda í vefnum á djúpvitrum köngulón- um sem starfa í hverju horni. Sjórinn spegilsléttur, golan gælandi við mjúkt hörund- ið, iðandi kyrrðin, ilmurinn af jörðinni þar sem lúpínan hefur ekki fengið að tortíma hinu lág- kynja lyngi og blóðbergi... sum- arið logar frá einni stund til annarrar, svo stutt, og manni finnst maður eigi að lifa hverja mínútu því það koma aldrei kvöld, náttleysan ríkir, morg- unninn nær til fimm á dag- inn og dagarnir ná til fimm á morgnana... og sumarið logar: „Kom fyll þitt glas...“ Þetta er alveg satt: það er mjög óeðlileg iðja að sitja alla daga og horfa á knattspyrnu algerlega óvandabundinna manna. Sagnabálkur Það er svo passíft. Okkur er ætlað að djöflast sjálfum, lík- ami okkar er til þess gerður, og sú iðja að horfa á aðra gera það fyrir sig (og úða í sig snakki og svolgra bjór á meðan) er í raun og veru einhvers konar óeðli. En... Að fylgjast með heims- meistaramótinu í fótbolta er dálítið eins og að detta í að lesa þykkan og skemmtilegan sagnaflokk á borð við Íslend- ingasögurnar eða bækur Simenons eða Rex Stout. Þetta er einn sagnaheimur með ótal sögum, en engu að síður vel afmarkaður með takmörk- uðu persónugalleríi. Allar eru sögurnar byggðar nokkurn veginn eins en þó er í þeim akkúrat hæfilegur sveigjan- leiki fyrir óvænta atburði. Þetta eru sögur með upphafi, miðju, dramatískum hápunkti og endi. Í þeim eru skýr átök. Þar eru hetjur og skúrk- ar, ósýnilegir dugnaðarfork- ar, ofsýnilegir dramaprinsar, þar eru tragedíur og gleðileik- ir, mannlegir lestir og ómæld sæmd, klókindi, slóttugheit, ráðvendni, staðfesta, óskráð- ar reglur um drengskap. Þetta eru dæmisögur um mannlegt atferli og mannlegt samfélag. Þessar sögur lúta sömu grundvallarlögmálum, reglur eru skýrar en þó hægt að velta vöngum um túlkun þeirra, atburðir ráðast af svipuðum aðstæðum, svipaðir karakterar leika lykilhlutverk frá sögu til sögu – sömu náungarnir skjóta jafnvel upp kollinum í ólíkum sögum. Þótt sögð sé sífellt ný og ný saga líkist hver þeirra öllum hinum ósegjanlega. Þetta er alltaf eins. Hlaup í mönnum. Óðagotið. Auka- spyrnurnar hátt yfir markið. Vúvuselabuldrið. Tæklingarn- ar. Feilsendingarnar. Þjálfarar með ygglibrún. Athugasemd- ir lýsendanna um að liðið verði að fara að sækja upp kantana ef það ætli að komast eitthvað áleiðis gegn hinni sterku vörn andstæðingsins. Þorsteinn J með vitringana þrjá á eftir. Og leikurinn á sextíu sekúndum. Meira að segja mörkin sem koma svo skyndilega og eins og undantekningar frá reglunni því þessi leikur virðist frem- ur ganga út á að láta menn ekki skora en að leyfa þúsund mörk- um að blómstra. Nautnin af því kunnuglega Nautn neytandans felst einmitt í þessu: þetta er alltaf eins. Umberto Eco kenndi þessa nautn við déjà vu í grein sem hann skrifaði um sakamálasög- ur og þá ráðgátu hvers vegna við lesum slíkar sögur aftur og aftur þótt þær séu alltaf eins. Okkur finnst eftirsókn- arverð lestrarreynsla að hitta fyrir nákvæmlega eins fólk við nákvæmlega eins kringum- stæður og upplifa nákvæmlega eins spennu; hið óvænta verð- ur nákvæmlega eins alltaf. Hið óvænta er þekkt stærð. En til að hafa nautn af því kunnuglega þarf að þekkja það. Það þarf að vera læs á leikinn. Þess vegna er það líka afmark- aður hópur sem hefur ánægju af því að fylgjast með þess- um mótum. Það er lærð hegð- un að horfa á fótbolta, svolít- ið í ætt við að venja sig á að hlusta á langar sinfóníur. Eins og þær eru fótboltaleikir hægir og lygnir á ytra borði og virð- ast tíðindalausir en fyrir hið þjálfaða eyra – eða auga – er ótal margt sem gleður. Til þess eru lýsendurnir og vitringarn- ir þrír á eftir – að benda okkur á þá snilld sem blasir alls ekki við, útskýra fyrir okkur „verk- ið“ og lögmál þess. Þeir eru eins og tónlistargagnrýnendur. Í þeim skilningi eru fótbolta- leikir eins og sinfóníutónleik- ar íþróttanna. Kannski að RÚV ætti að fá Þorstein J til að búa til þætti kringum sinfóníutón- leikana næsta vetur? Fótboltinn Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG Að fylgjast með heimsmeistaramót- inu í fótbolta er dálítið eins og að detta í að lesa þykkan og skemmtileg- an sagnaflokk á borð við Íslendinga- sögurnar eða bækur Simenons eða Rex Stout.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.