Fréttablaðið - 02.07.2010, Síða 10
2. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
Kaffitími er alþjóðlegt fyrirbæri sem
fólk í hverskonar verslun, þjónustu og
iðnaði nýtir sér til að taka stutta
hvíld frá störfum og hlaða rafhlöðurnar.
Talið er að allt frá 1951 hafi kaffitími
verið skráður í kjarasamninga.
Kaffitíminn er í dag nánast heilög
stund, líka utan vinnutíma.
Angan af
kaffi kemur
bragðlauk-
unum af stað
og ilmurinn
segir til um
ríkt bragðið
af BKI kaffi.
Helltu upp
á gott BKI
kaffi.
BKI Classic
Njóttu lausnar frá amstri hversdagsins
með góðu BKI kaffi. Finndu hvernig þú
hressist með rjúkandi bolla af BKI kaffi. Nýttu
tækifærið. Gefðu þér smá hvíld. Fáðu þér BKI
kaffi. Njóttu kaffiangans, hitans og bragðsins og
taktu svo daginn með trompi.
Það er kominn tími fyrir BKI kaffi.
Taktu þér kaffitíma núna
Fangaðu
kaffitímann
með BKI kaffi
Það er kaffitími núna
Kauptu BKI
fyrir kaffitímann
Sérvaldar baunir frá
þekktustu kaffisvæðum
heimsins tryggja hið
mjúka bragð, lokkandi
ilminn og fersklegt
eftirbragðið.
BKI Extra
Snöggristað við háan hita.
Þannig næst fram ríkara
kaffibragð við fyrsta sopa
en léttur og mjúkur keimur
fylgir á eftir.
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
Nú eru allar
Siemens
ryksugur á
tilboðsverði.
Líttu inn
og gerðu
góð kaup!
HJÁLPARSTARF Mæðrastyrksnefnd
mun hjálpa skjólstæðingum sem
eru í sárustu neyð, þótt hefðbund-
in sumarlokun standi nú yfir hjá
nefndinni, svo fremi sem það er
mögulegt. Þetta segir Ragnhild-
ur Guðmundsdóttir formaður
hennar.
Sumarlokanir eru hafnar hjá
hjálparstofnunum og eru þær
settar á sama tíma. Mæðrastyrks-
nefnd og Fjölskylduhjálp Íslands
úthluta næst 18. ágúst.
Spurð hvort ekki hefði komið til
greina að forráðamenn stofnan-
anna hefðu með sér samráð um að
dreifa lokununum, þannig að fólk
í brýnni þörf gæti leitað eitthvert
til að fá aðstoð segir Ragnhild-
ur að þótt nefndin hafi haft sam-
starf við Hjálparstarf kirkjunn-
ar og Rauða krossinn fyrir jólin,
hafi ekki verið haft samstarf um
lokanir. „Hjá okkur vinna allir í
sjálfboðavinnu. Málin hafa æxlast
þannig að það eru margar konur
sem ætla að fara í frí hjá okkur og
þá skellur það allt á sama tíma eins
og venjulega.“
Ragnhildur bætir við að þeir
sem fara ekki í frí noti þann tíma
þegar lokað er til þess að þrífa,
mála og ganga frá ýmsu sem
koma þurfi í lag innanhúss. „Svo
erum við svolítið að hugsa um
okkur sjálfar. Við þurfum að efla
okkur og styrkja fyrir veturinn til
að geta tekið á móti þeim verkefn-
um sem við vitum að bíða okkar
í vetur.“
Ragnhildur segir sjálfboða-
liða nefndarinnar vera farna að
þekkja skjólstæðinga sína og viti
hvar þörfin sé brýnust. Geti þeir
greitt götu þeirra sem í allra mest-
um erfiðleikum eigi þá verði það
gert.
„Ef hjálparstofnanirnar myndu
loka sitt í hvoru lagi yrði alveg
gríðarlegt álag. Ég sé ekki fyrir
mér hvernig við ættum að geta
sinnt því með hefðbundnum úthlut-
unum,“ segir Ásgerður Jóna Flosa-
dóttir framkvæmdastýra Fjöl-
skylduhjálparinnar. Hún segir
enn fremur að Fjölskylduhjálpin
þurfi einnig að huga að fjármögn-
un fyrir haustið og jólin, þegar
álagið verði fyrirsjáanlega mjög
mikið. Það sé þó engin spurning
í sínum huga að fengi stofnunin
fjárstyrk, til að mynda frá Reykja-
víkurborg, þá yrði reynt að rétta
þeim verst stöddu hjálparhönd þótt
sumarlokun standi yfir.
„Við reynum að gera sem mest
úr því fjármagni sem við höfum
úr að spila,“ segir hún og nefn-
ir að í vor hafi sjálfboðaliðarn-
ir sett niður kartöflur í 1.000 fer-
metra svæði sem leigt hafi verið
í Skammadal. Uppskerunni verði
svo úthlutað með haustinu.
jss@frettabladid.is
KARTÖFLUGARÐAR Í SKAMMADAL Sjálfboðaliðar Fjölskylduhjálpar Íslands við 1.000
fermetra kartöflugarða í Skammadal. Skjólstæðingar stofnunarinnar fá að njóta
uppskerunnar í haust. FRETTABLADID/VILHELM
Sinnir sárustu neyð
í sumarlokuninni
Sumarlokanir standa nú yfir hjá hjálparstofnunum. Mæðrastyrksnefnd mun
þrátt fyrir það reyna að rétta þeim hjálparhönd sem eru í sárustu neyð. Fjöl-
skylduhjálp Íslands setur niður kartöflur til að gera sem mest úr peningunum.
FANGELSISMÁL Bygging nýs gæslu-
varðhalds- og skammtímavistun-
arfangelsis verður boðin út fyrir
lok september næstkomandi. Þá
hefur dómsmála- og mannrétt-
indaráðherra skipað nefnd sem
ætlað er að gera tillögur að lang-
tímaáætlun á sviði fullnustumála,
að því er fram kemur í frétt frá
dómsmálaráðuneyti.
Í hinu nýja fangelsi er gert ráð
fyrir fimmtíu fangelsisrýmum
með deild fyrir kvenfanga. Undir-
búningur þessarar framkvæmd-
ar hefur staðið yfir í langan tíma
en á fundi ríkisstjórnarinnar
hinn 30. mars síðastliðinn var
samþykkt tillaga Rögnu Árna-
dóttur dómsmála- og mannrétt-
indaráðherra um að hefja þessa
framkvæmd í haust.
Ríkiskaup munu sjá um útboðið
fyrir hönd ríkissjóðs en miðað er
við að bjóðendur byggi húsið og
leigi ríkinu. Vinnu við forathug-
un hinnar nýju fangelsisbygging-
ar er að mestu lokið. Nú er hafin
vinna við gerð frumáætlunar og
uppdráttar að fangelsinu en því
er meðal annars ætlað að koma
í stað Hegningarhússins á Skóla-
vörðustíg og fangelsisins í Kópa-
vogi. Staðsetning fangelsisins
hefur ekki verið ákveðin.
-jss
RAGNA ÁRNADÓTTIR Alþingi samþykkti
tillögu hennar um útboðið í haust.
Alþingi hefur samþykkt tilllögu dóms- og mannréttindaráðherra:
Nýtt fangelsi boðið út í haust