Fréttablaðið - 02.07.2010, Side 16

Fréttablaðið - 02.07.2010, Side 16
16 2. júlí 2010 FÖSTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Besta ekki alltaf nóg Katrín Helga Hallgrímsdóttir sjálf- stæðiskona var ánægð með flokkinn sinn eftir samþykkt jafnréttisstefnu á landsfundi. „Að því er ég best veit erum við fyrsti flokkurinn, sennilega á Íslandi og ef ekki þá fyrsti hægri flokkurinn á Norð- urlöndunum til þess að setja sér jafnréttisstefnu.“ Nú hefur jafnréttisstefna verið hluti af stefnumálum flestra, ef ekki allra, stjórnmálaflokka hér á landi annarra en Sjálfstæðis- flokksins um nokkra hríð, að því að best er vitað. En það besta er ekki alltaf nóg. Sjálfbærar veiðar á hvölum Nú eru hvalveiðar hafnar á ný og margur hefur stigið fram fyrir skjöldu og lýst yfir ánægju sinni. Það er líka alveg sjálfsagt að nýta hvalastofninn eins og aðra stofna, séu menn þeirrar skoðunar að menn hafi rétt til að drepa dýr sér til matar. Sjálfbærar veiðar á lóum Þeir hinir sömu og hafna öllum tilfinningarökum gagnvart hval- veiðum verða hins vegar að vera samkvæmir sjálfum sér. Það er ekki hægt að hlæja að umhverfisverndarsinnum sem telja að það eigi ekki að drepa hvali vegna þess að þeir séu svo göfugar og gáfaðar skepnur og segja á sama tíma að ekki megi veiða lóuna vegna fegurðar hennar og kvæðis Jónasar. Því hlýtur að líða að því að stjórnin heimili lóu- veiðar, enda lóan herramannsmatur. kolbeinn@frettabladid.is HALLDÓR Dómsmál Jón Þór Ólafsson stjórnmála- fræðingur Meðan HM er í hámarki er stórleikur á Íslandi. Það færðist fjör í leikinn á dög- unum þegar Hæstiréttur gaf gengistrygg- ingu lána rauða spjaldið. En hvaða leikmenn eru í keppnisliðunum og hver er staðan í leiknum? Staðan er þannig að meðan réttaróvissa ríkir um hverjir vextir lánanna skulu vera segja 36. grein laga nr. 7/1936 og neytenda- verndartilskipun ESB að neytandinn skuli njóta vafans. Í þessu tilfelli eru neytendurnir í liði lántakenda.Lið fjármálafyrirtækja eiga að hámarka arð fjárfesta sinna. Þau klúðr- uðu sókn með ólöglegum lánum og reyna nú að bjarga því sem bjargað verður fyrir sig og sína liðseigendur. Fyrrum liðsmaður þeirra, Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra, keppist nú við að sannfæra almenning um að það sé almannahagur að verja fjárfesta í leiknum. Lið Seðlabanka og Fjármálaeftirlits eiga að standa vörð um stöðugleika fjármálakerfis- ins. Þeir hafa líka stillt sér í vörn fjárfesta og segja það almannahagsmuni að allir geri hið sama. Vörnin er samt veik því allur efna- hagsleikvöllurinn hvílir umfram allt á rétt- aröryggi. Þegar það tapast þá tapast stöðug- leiki fjármálakerfisins einnig. Ragna Árnadóttir ber sem dómsmálaráð- herra ábyrgð á að lögum sé framfylgt og að standa vörð um réttaröryggi landsmanna. Við umbjóðendur hennar höfum veitt henni vald til þessa. Til að verja réttaröryggi lands- ins þarf leikáætlun Rögnu að minnsta kosti að innihalda þrjár eftirfarandi leikfléttur. 1. Þegar Seðlabankinn og FME mæla með því að fjármálafyrirtæki rukki vexti sem réttaróvissa er um og brjóti því lög um að neytandinn skuli njóta vafans, þá á ráðherra að gefa út yfirlýsingu um að slíkt verði ekki liðið. 2. Ef lánafyrirtækin senda út innheimtu- seðla með vöxtum sem réttaróvissa er um er það ekki neytandans að fara í mál. Það er ráðherra að framfylgja lögum um að neyt- andinn skuli njóta vafans og benda fjármála- fyrirtækjum á að þau geti sótt rétt sinn fyrir dómstólum. En ef þau haldi vaxtakröfunni til streitu verði þau ákærð. 3. Ef sýslumenn, og aðrir starfsmenn dómsmálaráðherra, ætla að ganga erinda fjármálafyrirtækja við að ganga að eigum lántakenda án þess að sækja málið fyrir dómstólum, skal ráðherra samstundis stöðva þá og ávíta. Boltinn er hjá Rögnu. Sjáum hvort hún og hennar liðsmenn standa vörð um réttarör- yggi landsmanna eða hvort hún stendur á hliðarlínunni meðan hennar sýslumenn og lögregla hjálpa fjármálafyrirtækjunum að rúlla upp réttaröryggi landsins. Leikjafræði lánanna F lokksstjórn Samfylkingarinnar ályktaði á fundi sínum um síðustu helgi að ráðherrar flokksins ættu að segja sig tímabundið frá þingmennsku og gera það sem fyrst. „Með því sýna ráðherrar Samfylkingarinnar í verki þann ásetning flokksins að styrkja beri stöðu Alþing- is og skerpa á aðskilnaði þess gagnvart framkvæmdarvaldinu,“ sagði í ályktun flokksstjórnarinnar. Þetta er í grunninn góð tillaga, en sennilega hafa flokksstjórn- armenn ekki hugsað útfærsluna alveg til enda. Eins og kom fram í fréttaskýringu í Fréttablaðinu í gær, fylgir því bæði umstang og kostnaður að ráðherrar hverfi af þingi og teknir séu inn vara- menn í staðinn. Alþingi þyrfti til dæmis að leigja skrifstofu- húsnæði fyrir þá, sem þannig settust á þing og fjölga sætum í pínulitlum þingsal. Þá gera stjórnarskrá og lög ekki ráð fyrir að ráðherrar geti sagt af sér þingmennsku tíma- bundið og snúið aftur á þing ef flokkur þeirra hættir til dæmis stjórnarþátttöku. Aukinheldur væri eitthvað sérkennilegt að ráð- herrar annars stjórnarflokksins segðu af sér þingmennsku, en hins ekki. Hins vegar er full ástæða til að huga að því við almennar stjórnkerfisbreytingar í framtíðinni að skerpa á aðskilnaði lög- gjafar- og framkvæmdarvalds með því að ráðherrar gegni ekki jafnframt þingmennsku. Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur oftsinnis, allt frá árinu 1995, lagt fram á Alþingi frumvarp um slíkan aðskilnað, að norskri og sænskri fyrirmynd. Rök hennar hafa meðal annars verið þau að vegna þess að ráðherrar sitja ekki í þingnefndum, væri um sjötti hluti þingheims óvirkur í nefnda- starfinu. Þá myndi það efla aðhald Alþingis með framkvæmdar- valdinu að ráðherrar væru ekki jafnframt þingmenn. Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, nefnir önnur rök í Fréttablaðinu í gær. Þegar litlir flokkar eiga sæti í ríkisstjórn getur komið upp sú staða að hálfur þingflokkurinn sitji í ráðherraembættum og ríkisstjórnin hefur þegar af þeirri ástæðu yfirhöndina í þingflokknum. „Það er eðlilegra að ráðherr- ar þurfi að rökstyðja sín mál fyrir þingflokknum og vinna þeim fylgi,“ segir Árni Páll. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær myndi það kosta um 190 milljónir króna ef ráðherrar hættu á þingi og teknir yrðu inn varamenn í staðinn. Jafnframt væri sætaskipan í þingsalnum í nokkru uppnámi, því að ráðherrar þyrftu eftir sem áður að eiga sæti á Alþingi embættis síns vegna. Framhjá þessum vanda er þó auðvelt að komast með því að fækka þingmönnum um leið og sú regla yrði sett að ráðherrar gegndu ekki jafnframt þingmennsku. Þá þyrfti nýtt fyrirkomulag ekki að verða dýrara. Þessi hugmynd hlýtur að koma til umræðu á stjórnlagaþing- inu, sem haldið verður á næsta ári samkvæmt nýsettum lögum frá Alþingi. Eiga ráðherrar að hætta á þingi um leið og þeir setjast í ráðherrastól? Betri aðskilnaður Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Nýjar Kiljur! SkeifunNi 11 104 Reykjavík S. 533 1010 Taktu með þér góða bók í fríið 1990 kr

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.