Fréttablaðið - 02.07.2010, Side 24
4 föstudagur 2. júlí
Sálarsveitin Moses
Hightower kemur fram
á Funk í Reykjavík um
helgina og á mánudag-
inn kemur fyrsta plata
sveitarinnar, Búum til
börn, í verslanir. Andri
Ólafsson og Steingrímur
Karl Teague eru menn-
irnir á bak við rödd
sveitarinnar.
Viðtal: Hólmfríður H. Sigurðardóttir
Ljósmyndir: Valgarður Gíslason
S
álarfull tónlist mun
lita þessa helgi hjá
strákunum í hljóm-
s v e i t i n n i M o s e s
Hightower. Auk þess
að spila sjálfir annað kvöld á tón-
listarhátíðinni Funk í Reykjavík,
sem nú er í fullum gangi, koma
liðsmenn sveitarinnar þar fram
með mismunandi sveitum. Það
er í þeirra anda að leggja öðrum
hljómsveitum lið, enda fylgja þeim
sjálfum iðulega tvær söngkonur
og tveir blásarar, þegar þeir koma
fram.
Sveitina skipa að staðaldri þeir
Andri Ólafsson, sem syngur og
spilar á bassa, gítarleikarinn Dan-
íel Friðrik Böðvarsson, Magnús
Tryggvason Eliassen á trommur og
Steingrímur Karl Teague, sem syng-
ur og spilar á hljómborð. „Við erum
náttúrlega með alveg ógurlegt þrí-
eyki af söngkonum með okkur,“
segir Steini, og er þar ekkert að
ýkja. Söngkonurnar sem syngja
bakraddir með Moses Hightower
eru þær Bryndís Jakobsdóttir, Sig-
ríður Thorlacius og Ragnheiður
Gröndal. „Þetta er svolítið eins og
að fá Mike Tyson, Muhammad Ali
og Sugar Ray Robinson til að sjá
um handklæðin á áhugamanna-
boxmóti,“ heldur hann áfram.
Á TVEIMUR OG FJÓRUM
Þótt þeir séu hógværðin uppmáluð
hafa liðsmenn Moses Hightower
lifað og hrærst í tónlist undan-
farin ár og unnið með mörgum af
fremstu tónlistarmönnum lands-
ins. Þeir segja mikla stemningu
fyrir sálartónlist á Íslandi í dag.
Steini: „Það er eiginlega algjört
rugl hvað er mikill sviti í gangi,
miðað við Ísland.“
Andri: „Það er nefnilega fullt af
fólki hérna sem kann að klappa á
tveimur og fjórum. Funk í Reykja-
vík er heiðarleg tilraun til að ná
því öllu saman á einn stað á sama
tíma.“
En hvernig skilgreina þeir sjálf-
ir sína tónlist?
Steini: Bláeyg sálartónlist finnst
mér alltaf að ég eigi að segja.
Í sögulegu samhengi er þetta
kannski r&b. Eins og Marvin Gaye
er r&b.“
LIÐSMENN MOSES HIGH-
TOWER FEIKA ÞAÐ EKKI
Fullt nafn og gælunafn:
Andri Ólafsson. Auglýsi eftir gælunafni.
Aldur:
24.
Hverfið þitt:
861 Njáluslóðir, 105 Teigarnir og svo
1079EX Amsterdam.
Hjúskaparstaða:
Pappírsbrúðkaup fram undan.
Frægasti ættingi þinn:
Þessa dagana Auðun Helga-
son vitorðsmaður Þorsteins J.
Helsti áhrifavaldur:
Dale Cooper.
Hljóðfærin í lífi þínu:
Í tímaröð: Klarinett, píanó, kassa-
gítar, kontrabassi, rafmagnsbassi.
Í fyrra lífi varstu:
Gamli sorrí Gráni.
Steini og Andri Söngvarar og textahöfundar sálarsveitarinnar Moses Hightower eru sammála um að það sé miklu erfiðara að semja texta en lög. Það sé miklu auðveldara að verða asnalegur í mæltu máli en í tónum.
Andri: „Við erum ekki að tala
um Destiny‘s Child. Rhythm and
blues er náttúrlega upprunalega
skilgreiningin, en nútíma r&b
er komið svolítið langt frá því.
Þetta byrjaði sem eitthvert grúv
hjá okkur og svo ákváðum við að
fara poppveginn. Þetta er það sem
kemur út.“
BÚUM TIL BÖRN
Fyrsta plata Moses Hightower,
Búum til börn, er að koma út á
mánudaginn og í tilefni af því
verða haldnir útgáfutónleikar á
fimmtudaginn í Iðnó, sem hefjast
klukkan níu. Þangað geta lesend-
ur mætt, fengið nýja diskinn á af-
sláttarkjörum og skilgreint tón-
listina sjálfir að vild. En eru þeir
annars mikið í því sjálfir, að búa
til börn?
Andri: „Þessa spurningu fæ ég
mjög oft!“
Steini: „Andri gifti sig síðasta
sumar svo það er eðlilegt að hann
fái þessa spurningu.“
Andri: „Nei, við erum ekki alveg
komnir í þá deild enn þá. En titil-
lag plötunnar kom reyndar fyrst í
útvarpinu níu mánuðum áður en
upptökumaðurinn lagsins eign-
aðist barn, hann Birgir Örn Árna-
son.“
Steini: „En við sjálfir ætlum að
byrja á þessu barni, sem við erum
að gefa út núna. Ætlum að koma
því á legg og sjá svo til …“
FEIKA ÞAÐ EKKI
Plötuna tóku þeir að mestu leyti
upp í gömlu íbúðarhúsi á bænum
Reykjum á Skeiðum síðastlið-
ið sumar og nutu aðstoðar upp-
tökumannsins Magnúsar Øder úr
Benny Crespo‘s Gang. Sá á aragrúa
af hljóðfærum og upptökugræjum
sem voru tekin með í förina.
Andri: „Við fórum með tvo
smekkfulla bíla af hljóðfærum og
upptökugræjum og busluðum í
analog-retro-hljóðheiminum hans
Magnúsar. Hann á allt þetta gamla
stöff. Það var mjög gaman að leika
sér í því.“
Þeir bættu svo við plötuna um
síðustu jól og ráku smiðshöggið
í febrúar þegar Steini heimsótti
✽
b
ak
v
ið
tj
öl
di
n