Fréttablaðið - 02.07.2010, Page 46
34 2. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
„Þetta er bara alveg frábært og
gaman að þeir skyldu sýna mínum
verkum áhuga. Ég er þarna komin
í hóp með mörgum af fyrirmynd-
um mínum í myndlistinni,“ segir
Ragnar Kjartansson myndlistar-
maður.
Ragnar opnaði nýverið sýningu í
Luhring Augustine galleríinu í New
York. Á sýningunni, sem stendur
yfir út júlí, eru málverk Ragnars
sem hann málaði í Feneyjatvíær-
ingnum á síðasta ári og eitt mynd-
bandsverk í tengslum við það. Hið
fræga listasafn MOMA, Museum
Of Modern Arts, í New York festi
nýlega kaup á myndbandsverkinu
og bætist Ragnar þar í fámennan
hóp Íslendinga
sem hafa sýnt
á safninu.
„Jú, jú, ég er
voðalega upp
með mér og
þetta er frekar
stór upphefð
fyrir mig sem
listamann,“
segir Ragnar
og bætir við að
hann sé einn-
ig búinn að fá
heilmörg til-
boð í mynd-
irnar, sem eru
144 talsins, en
hann vill ein-
ungis selja þær
allar saman í
einum pakka. „Ég væri orðin ríkur
maður núna ef ég hefði selt allar
myndirnar stakar. Mér finnst samt
málverkin missa meiningu sínu ef
þau eru skilin að.“
Á meðan Feneyjatvíæringurinn
stóð yfir málaði hann eina mynd
á dag af sömu fyrirsætunni. Bók
með öllum 144 verkum Ragnars
var að koma út á vegum Crymog-
eu og ber nafnið The End.
Galleríið Luhring Augustine, er
með þeim virtari í heiminum og
Ragnar þar með kominn í hóp lista-
manna á borð við Andy Warhol,
Jackson Pollock og Pablo Picasso
sem einnig hanga á veggjum gall-
erísins. Eigendur gallerísins eru
búnir að fylgjast með Ragnari í
nokkur ár. „Þeir höfðu samband við
mig fyrir um einu og hálfu ári og
vildu gerast galleríið mitt í Banda-
ríkjunum. Þeir hafa verið æstir í
að fá verkin mín til Bandaríkjanna
lengi og vildu setja þessa sýningu
upp sem fyrst,“ segir hann.
Ragnar er staddur í Flórens með
móður sinni Guðrúnu Ásmunds-
dóttur leikkonu, en yfirlitssýn-
ing á verkum hans var opnuð í
gær. Á meðal verkanna er frum-
sýning á myndbandserki hans Ég
og móðir mín þar sem mæðginin
leika saman. „Hún hrækir á mig
í þessum þremur myndböndum,“
segir Ragnar og útskýrir að þetta
sé eitt það ógeðfelldasta sem móðir
getur gert við son sinn en áhorf-
endur geta túlkað verkin eins og
þeir vilja. „Mamma er náttúru-
lega ýmsu vön af leiksviðinu svo
hún átti ekki í erfiðleikum með að
hrækja á mig.“ alfrun@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
SUMARFRÍIÐ
Þeir hafa verið
æstir í að fá
verkin mín til
Bandaríkjanna
lengi og vildu
setja þessa
sýningu upp
sem fyrst.
RAGNAR
KJARTANSSON
LISTAMAÐUR
LÁRÉTT
2. Listastefna, 6. líka, 8. ískur, 9. kirna,
11. samtök, 12. súla, 14. hestur, 16.
hljóta, 17. fiskilína, 18. sóða, 20. í röð,
21. lap.
LÓÐRÉTT
1. á endanum, 3. tvíhljóði, 4. veiðar-
færi, 5. siða, 7. tilgátu, 10. pípa, 13.
holufiskur, 15. innyfli, 16. viðmót, 19.
járnstein.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. dada, 6. og, 8. urg, 9. ker,
11. aa, 12. stöng, 14. gráni, 16. fá, 17.
lóð, 18. ata, 20. tu, 21. sull.
LÓÐRÉTT: 1. loks, 3. au, 4. dragnót,
5. aga, 7. getgátu, 10. rör, 13. nál, 15.
iður, 16. fas, 19. al.
„Þetta er nú algjör brandari. Ég hef verið
bitin fjórum sinnum á ferðalögum og allt-
af af könguló. Ég held að ég hætti að ganga
um í opnum skóm,“ segir söngkona hljóm-
sveitarinnar FM Belfast, Lóa Hlín Hjálm-
týsdóttir.
Hljómsveitin FM Belfast þurfti að aflýsa
tónleikum sínum í Belfort í Frakklandi í
gær þar sem Lóa var bitin af könguló í Pól-
landi í vikunni. Lóa fann smá sting sem hún
velti lítið fyrir sér en sá stuttu síðar eitt-
hvað sem leit út eins og lítið bit. Bitið stækk-
aði síðan smátt og smátt og í fyrradag var
fótur hennar mjög bólginn upp að ökkla og
bitið orðið frekar ógeðfellt.
„Fyrir algjöra tilviljun kom hingað vin-
kona okkar sem kláraði þrjú ár í læknis-
fræði. Þegar hún sá fótinn á mér skipaði
hún mér til læknis strax,“ segir Lóa, sem
ætlaði að bíða eftir að bólgan hjaðnaði. Sól-
arhring eftir bitið leit út fyrir að sýking
væri komin í sárið og Lóa var því sett á
sýklalyf. „Ég má ekkert gera og sit því hér
með löppina úttússaða upp í loft. Ég þarf að
strika kantana á bólgunni til að fylgjast með
henni,“ segir hún.
Lóa þurfti að fresta för sinni til Hróars-
keldu um tvo daga, en FM Belfast kemur þar
fram á laugardaginn. Hún sameinast hinum
í hljómsveitinni í dag og kemur fram á hátíð-
inni á morgun. „Ég væri mest til í að finna
staf eða hækju og skreyta ógeðslega flott
fyrir tónleikana á laugardaginn,“ segir Lóa.
„En þar sem ég er föst inni næ ég því senni-
lega ekki. Kannski finn ég glimmerhækju á
Hróarskeldu til að hafa á sviðinu.“ - ls
Lóa bitin af könguló í Frakklandi
ÞURFTU AÐ AFLÝSA TÓNLEIKUM Meðlimir FM Belfast
þurftu að aflýsa tónleikum í vikunni þar sem Lóa var
bitin af könguló.
RAGNAR KJARTANSSON: SEL EKKI VERKIN 144 NEMA SAMAN Í PAKKA
Sýnir verkin frá Feneyjum í
einu virtasta galleríi heims
SÝNIR UM ALLAN HEIM Ragnar Kjartansson myndlistarmaður seldi myndlistaverk sitt
til MOMA og opnaði sýningu í einu af virtasta galleríi heims. FRÉTTABLADID/GVA
„Já, já, jú það var ég,“ segir Bertha
María Waagfjörð, fyrrum fyrir-
sæta og sú sem fyrst íslenskra
kvenna var á forsíðu þýska Play-
boy árið 1992.
Bertha María var fyrir tilvilj-
un stödd í stuttri heimsókn hér
á landi þegar Fréttablaðið náði
af henni tali í gær. Fyrirsætan
Ásdís Rán sagðist í viðtali við
Fréttablaðið fyrr í vikunni vera
fyrst íslenskra kvenna til að kom-
ast á forsíðu karlaritsins. Það
reyndist ekki vera rétt en Bert-
ha var á forsíðu þýska Playboy
fyrir 18 árum.
„Ég var 22 ára gömul og að
vinna sem fyrirsæta í Ameríku,“
segir Bertha en þekktur ljós-
myndari fékk hana til að gera
þessa myndatöku með sér. „Ég
var náttúrlega bara í hátískunni
á þessum tíma. Sat fyrir í Ítalska
Vogue og fleiri álíka blöðum, en
ég treysti honum nógu vel til að
gera þetta flott. Þetta var í fyrsta
sinn sem ég var svona ber fyrir
framan myndavélina og mynda-
takan var frekar „artí“,“ segir
Bertha María sem hefur sagt
skilið við fyrirsætuferilinn enda
þriggja barna móðir og búsett í
Los Angeles.
Í kjölfarið á myndatökunni
fyrir þýska Playboy fékk Bertha
tilboð frá ameríska Playboy, sem
vildu ólmir fá hana á forsíðuna en
hún afþakkaði. „Ég vildi það alls
ekki enda það blað allt öðruvísi
en þessar myndir sem við tókum
í New York.“ Leiðir Berthu Maríu
lágu til Los Angeles þar sem hún
lék meðal annars í einum af vin-
sælustu gamanþáttum síðari
tíma, Seinfeld.
Ásdís Rán leiðrétti misskiln-
inginn í gær, dró til baka fyrri
yfirlýsingu og bað Berthu Maríu
afsökunar. Sagðist hún ekki hafa
vitað um forsíðumyndir hennar
í Playboy og bætti við að Bertha
væri svakalega flott fyrirsæta
og uppáhaldsfyrirsætan hennar
á sínum tíma. - áp
Bertha á forsíðu Playboy á undan Ásdísi
FYRST Í PLAYBOY Bertha María Waag-
fjörð gerði garðinn frægan í fyrirsætu-
heiminum og var á forsíðu þýska
Playboy árið 1992.
Fréttablaðið hefur
fylgst náið með
framvindu söng-
leiksins Buddy Holly
sem verður frum-
sýndur í Austurbæ
í október. Við
höfum þegar
sagt frá því að
Ingó Veðurguð
fari með hlut-
verk Buddy
Holly og fyrr
í vikunni
sögðum við
frá því að
Ólöf Jara
Skagfjörð færi með hlutverk Maríu
Elenu, eiginkonu Buddys. Leik-
stjórinn Gunnar Helgason situr nú
sveittur við að raða niður í hlutverk
ásamt fleiri aðstandendum og nú
er ljóst að útvarps- og leikkonan
Heiða Ólafsdóttir fer með hlut-
verk Vicky, en hún var eiginkona
upptökustjórans sem hljóðritaði
lög Buddys.
Reynsluboltinn Felix
Bergsson hefur
einnig verið ráðinn
í sýninguna, en
hann fer með
hltuverk Jiles Perry
Richardson sem
var þekktastur undir
nafninu The Big
Bopper. Stundin
okkar virðist ætla
að vera gjöful
mjólkurkýr fyrir
leikara í sýn-
ingunni en Jóhann G. Jóhannsson
og Björgvin Franz Gíslason hafa
einnig fengið hlutverk í sýningunni.
Söngvarinn og Hjálmurinn Sigurð-
ur Guðmundsson og Tinna Ingv-
arsdóttir, unnusta hans, eiga von á
fyrsta barni sínu. Tinna hefur búið
erlendis síðustu ár en er á heimleið
þannig að hamingju-
stuðull parsins er
hár þessa dagana.
Siggi hefur
verið áberandi
í tónlistar-
bransanum
undanfarið
– síðast fyrir
söng. Þannig
að það ætti ekki
að vefjast fyrir
honum að syngja
fyrir frumburð-
inn. - afb
FRÉTTIR AF FÓLKI
Ég er að keyra hringinn í
kringum landið með fjölskyld-
unni í tíu daga. Við eigum
náttúrulega fallegasta land í
heimi og því ekkert smá gaman
að keyra um og uppgötva nýjar
náttúruperlur.
Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður.
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Svanhildur Kaaber.
2 Nýjustu Batman-myndinni.
3 Akureyri.