Fréttablaðið - 19.07.2010, Side 8

Fréttablaðið - 19.07.2010, Side 8
8 19. júlí 2010 MÁNUDAGUR Ring er ný farsímaþjónusta á vegum Símans. Fyrir 1.990 kr. áfyllingu á mánuði færðu 1500 mín/SMS á mánuði til að hafa samband við alla innan GSM kerfis Símans og 990 kr. inneign til að hringja í fólk í öðrum kerfum. E N N E M M / S ÍA / N M 4 2 9 2 1 www.facebook.com/ringjarar Ekki vera sökker! 50% tilboð alla daga. Sjáðu á ring.is. Gildistími á þessum frábæru tilboðum er að finna á ring.is 50% afsláttur af miðstærð af pizzu á matseðli. Gildir þegar sótt er. Gildir ekki með öðrum tilboðum. 1 Hvaða fyrrverandi borgar- stjóri sækist eftir bæjarstjóra- stöðu á Akranesi? 2 Hvaða verslun á Laugaveg- inum hélt upp á tíu ára afmæli sitt um helgina? 3 Hvaða íslenska skáldkona hélt upp á áttræðisafmæli sitt í gær? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30 BRETLAND Nokkur olíufélög í Bretlandi voru fyrir helgi sekt- uð um 5,35 milljónir punda, um einn milljarð íslenskra króna, vegna sprengingar sem varð í olíubirgðastöðinni í Buncefield fyrir fimm árum. Sprenging- in var gríðarleg og í kjölfarið braust út eldur, sá mesti í land- inu frá seinni heimsstyrjöldinni. Meðal þeirra félaga sem áttu stöðina voru BP, Shell og Total, en það fyrstnefnda er eigandi olíuborpallsins í Mexíkóflóa sem lekið hefur úr síðan í apríl. Upphæð sektarinnar hefur verið gagnrýnd harkalega og þykir hún skammarlega lág. Mike Penning, þingmaður Íhalds- flokksins á svæðinu, sagði hana vera móðgandi í samtali við Guardian. - kóp Lágar sektir vegna olíuslyss: Sektir vegna slyss í Bretlandi ALBANÍA Að minnsta kosti fjórtán manns létust og tólf slösuðust í rútuslysi í norðurhluta Albaníu í gær. Nokkrir hinna slösuðu eru taldir í lífshættu. Tildrög slyssins voru þau að ökumaðurinn missti stjórn á rút- unni með þeim afleiðingum að hún steyptist fram af bjargi og valt tugi metra ofan í gljúfur. Mikil úrkoma og hvassviðri var á svæðinu þegar slysið varð. Stjórnvöld í Albaníu lýstu yfir þjóðarsorg í gær vegna slyssins. - ls Rútuslys í Albaníu: Fjórtán létust og tólf slösuðust HAÍTÍ Argentínska knattspyrnuhetj- an Lionel Messi heimsótti tjald- búðir heimilislausra á Haítí fyrir helgi. Messi var gerður að velgjörðar- sendiherra UNICEF í mars og var þetta fyrsta vettvangsheimsókn hans í því starfi. Hann heimsótti einnig hjálpar- teymi Sameinuðu þjóðanna frá Arg- entínu og ræddi reynslu fólksins af því að reka spítala í landinu. Þá heimsótti hann skrifstofu UNICEF og ræddi við starfsfólkið þar. Heimsóknin var farin til að vekja athygli á erfiðleikum barna á Haítí. Þar eru enn um 800 þúsund börn án heimilis og hafa lélegan aðgang að hreinlætisaðstöðu, menntun og heilsugæslu. Heimsóknin átti einn- ig að vekja athygli á þeim árangri sem hefur náðst frá því að jarð- skjálftinn reið yfir fyrir rúmu hálfu ári. - þeb Nýr velgjörðarsendiherra barnahjálpar SÞ: Messi heimsótti tjaldbúðir á Haítí Í TJALDBÚÐUNUM Messi heilsaði upp á börn sem búa í Carrefour Aviation tjald- búðunum á Haítí. UNICEF skipuleggur meðal annars íþróttaleiki og sálgæslu fyrir börnin þar. UNICEF/MARKISZ BRETLAND Læknar í Bretlandi ráð- leggja nú fótboltaáhugamönnum sem sóttu Suður-Afríku heim á heimsmeistaramótinu í fótbolta að gangast undir HIV-próf, hafi þeir stundað óvarið kynlíf. Nærri 25 þúsund áhangendur enska landsliðsins eru nýkomnir heim af mótinu en talið er að um einn af hverjum fimm fullorðnum ein- staklingum í Suður-Afríku séu smitaðir af alnæmisveirunni. Heartland-spítalinn í Birming- ham hefur hleypt átaki af stokkun- um í samstarfi við alþjóðasamtök þar sem ferðalangar eru hvattir til að hafa varann á erlendis, taka með sér smokka og sækja heilsu- gæslustöð til rannsókna þegar heim er komið ef einhverrar óvissu gætir. Læknar benda á að meiri- hluti gagnkynhneigðra karlmanna og fjórðungur kvenna sem sýkjast af HIV-veirunni smitist af henni í tengslum við óvarið kynlíf í orlofi erlendis. - jma Breskir læknar hafa áhyggjur af því að menn hafi smitast af HIV í Suður-Afríku: Fótboltaáhugamenn fari í HIV-próf EINN AF HVERJUM FIMM Talið er að einn af hverjum fimm fullorðnum í Suður-Afríku sé sýktur af HIV-veirunni og á sumum stöðum er hlutfallið jafnvel enn hærra. GASA, AP Utanríkismálafulltrúi Evrópusambandsins, Catherine Ashton, hvetur Ísraela til að opna landamærin að Gasasvæðinu algjörlega. Hún heimsótti svæðið í gær og ræddi meðal annars við fólk um það hvort líf þeirra hefði breyst eftir að einangruninni á svæðinu var aflétt að hluta fyrr í mánuðinum. „Afstaða Evrópusambandsins er mjög skýr. Við viljum að fólk geti ferðast um, og við viljum ekki aðeins innflutning til Gasa heldur einnig sjá vörur fluttar frá Gasa,“ sagði hún. Hún skoðaði fyrirtæki á svæðinu og ræddi við fólk þar. Til- kynnt hefur verið að Evrópusam- bandið hyggist veita um 900 fyr- irtækjum á Gasasvæðinu styrk til þess að koma undir sig fótun- um á nýjan leik, en aðeins um 30 prósent verksmiðja á svæðinu eru starfandi nú. Sökum vöruskorts hafa fyrirtæki mörg hver þurft að loka. Aðeins er búist við því að þeim fjölgi um nokkur hundruð nú, þar sem enn má ekki flytja inn ýmisleg efni sem nauðsynleg eru til framleiðslu. Ashton heimsótti meðal annars Megapharm, sem er meðal fyr- irtækjanna sem fá styrk á næst- unni. Fyrirtækið er meðal 203 fyrirtækja sem skipta á milli sín tæplega milljónum evra. Það hefur komið framleiðslu sinni í um 50 prósent af því sem áður var, en getur aðeins framleitt vörur fyrir Gasasvæðið þar sem ekki má flytja neitt út af svæðinu. Ashton fundaði ekki með stjórn- völdum á Gasa þar sem Evr- ópusambandið viðurkennir ekki Hamas-samtökin sem þar stjórna. Hún fundaði hins vegar með ísra- elskum yfirvöldum. thorunn@frettabladid.is Landamærin að Gasa verði opnuð alveg Utanríkismálafulltrúi Evrópusambandsins heim- sótti Gasasvæðið í gær. Hún hvatti Ísraela til að opna landamærin algjörlega. Tilkynnt var um styrki sambandsins til 900 fyrirtækja á svæðinu. Í HEIMSÓKNINNI Ashton skoðaði nokkur fyrirtæki á Gasasvæðinu í heimsókn sinni í gær. Meðal annars fór hún um steypuverksmiðju sem er lokuð vegna einangrunar Ísraelsmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Hamas-samtökin, sem ráða ríkjum á Gasa, hafa bannað konum að reykja vatnspípur á veitingahúsum. Talsmaður þeirra sagði um helgina að óviðeig- andi sé að konur sitji með krosslagðar fætur og reyki á almannafæri. Það sé iðja sem eyðileggi bæði hjónabönd og ímynd Palestínumanna. Bannið tók gildi um helgina og var veitingamönnum greint frá því af öryggissveitum sem gengu á milli veitingahúsa. Margir veitingamannanna töldu fyrst að verið væri að banna bæði konum og körlum að reykja, en stjórnvöld leiðréttu það með tilkynningu. Hamas-samtökin hafa reynt að koma á strangari múslimskum reglum síðan þau tóku völdin á svæðinu árið 2007. Þó íslömsk lög banni konum ekki að reykja er það samkvæmt ströngum hefðum illa séð. Reykingar af þessu tagi eru mjög vinsælar meðal beggja kynja á Gasa. Konum bannað að reykja pípur VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.