Fréttablaðið - 19.07.2010, Side 10
10 19. júlí 2010 MÁNUDAGUR
Fyrirtækið ORF líftækni
stefnir að stórfelldri rækt-
un erfðabreytts byggs sem
nota á til prótínframleiðslu
við Gunnarsholt á Suður-
landi. Talsmenn fyrirtæk-
isins telja mikla möguleika
fólgna í starfseminni en
fyrirætlanir fyrirtækisins
hafa vakið harðvítug við-
brögð frá ýmsum aðilum,
ekki síst bændum í lífrænni
ræktun.
ORF líftækni stefnir að stórfelldri
ræktun á erfðabreyttu byggi við
Gunnarsholt á Suðurlandi eins og
Fréttablaðið fjallaði nýlega um.
Byggið á að rækta með það fyrir
augum að láta það framleiða prótein
sem síðan á að nýta til læknisrann-
sókna, lyfja- og snyrtivörufram-
leiðslu. Forsvarsmenn fyrirtækis-
ins segja mikla möguleika fólgna
í starfseminni og telja ORF geta
orðið stórfyrirtæki á íslenskan
mælikvarða innan skamms tíma.
Fyrirætlanir fyrirtækisins eru hins
vegar síður en svo óumdeildar.
Umhverfisstofnun hefur veitt
ORF leyfi til útiræktunar en nið-
urstaðan vakti hörð viðbrögð frá
ýmsum samtökum og var kærð til
umhverfisráðuneytisins í septemb-
er í fyrra.
„Þarna eru menn að framkvæma
einhverja hluti þar sem þeir vilja
hafa stjórn á öllu en þeir bara geta
ekki vitað afleiðingarnar. Við vilj-
um ekki að þessu verði bara sleppt
lausu því langtímaafleiðingarnar
koma ekki í ljós fyrr en eftir mörg
ár,“ segir Þórður G. Halldórsson,
formaður Verndunar og ræktun-
ar (VOR), sem stendur að baki
kærunni.
Kristín Vala Ragnarsdóttir, for-
seti verkfræði- og náttúruvísinda-
sviðs Háskóla Íslands, hefur varað
við fyrirætlunum ORF og skrifaði
á síðasta ári opið bréf til Umhverf-
isstofnunar og umhverfisráðuneyt-
isins vegna málsins. Í bréfinu segir
hún möguleg áhrif útiræktunarinn-
ar ekki hafa verið könnuð nægi-
lega vel og lýkur því á orðunum:
„Ég tel mig sem náttúrufræðing
bera ábyrgð á þeirri náttúru sem
við skilum til komandi kynslóða og
mæli því gegn ræktun genbreytts
byggs úti í náttúrunni á Gunnars-
holti á meðan umhverfisáhættumat
hefur ekki verið unnið á viðunandi
máta.“
Opið bréf Kristínar vakti hörð
viðbrögð innan háskólasamfélags-
ins. Ólafur S. Andrésson, prófessor
í erfðafræði, skrifaði til að mynda
svarbréf þar sem meðal annars
sagði: „Þar að auki er margt af
gagnrýninni illa grundað. Öll hugs-
anleg varúðarsjónarmið hafa verið
tekin til greina í umfjöllun ráðgjaf-
arnefndarinnar og niðurstaða henn-
ar er hið besta faglega mat sem við
höfum á að byggja.“
Náttúrufræðistofnun gaf á sínum
tíma álit á mögulegri útirækt-
un ORF og taldi litla hættu fel-
ast í ræktuninni. Í kjölfarið veitti
Umhverfisstofnun leyfi fyrir rækt-
uninni eins og áður sagði en tveir
fulltrúar í nefndinni lögðust þó
gegn því. Leyfi Umhverfisstofn-
unar var veitt með níu skilyrðum,
meðal annars um tilkynningaskyldu
og varnir á ræktunarsvæðinu.
Þrátt fyrir skilyrðin og mat Nátt-
úrufræðistofnunar telja margir
rannsóknirnar á þessu ófullnægj-
andi og óttast að verið sé að stefna
verulegum hagsmunum í voða.
Þórður segir engan vera að fetta
fingur út í próteinframleiðsluna
sem slíka en vill ekki að henni verði
sleppt út í náttúruna. „Það eina sem
við erum að fara fram á er að lang-
tímaáhrif þessarar ræktunar verði
könnuð til hlítar áður en við förum
í notkun á þessari tækni,“ segir
Þórður.
Harðvítug andstaða við
fyrirætlunum ORF
BYGGRÆKTUN Síðasta sumar var öll tilraunaræktun nýsköpunarfyrirtækisins ORF í Gunnarsholti eyðilögð.
Kanilsnúðar
Íslenskur gæðabakstur - Tilbúinn í ofninn
FR
YS
TI
VA
RA FRÉTTASKÝRING: Er ræktun á erfðabreyttu byggi skaðleg?
Magnús Þ.
Lúðvíksson
magnusl@frettabladid.is
...ég sá það á Vísi
Notaðu öfluga og ókeypis leit á Vísi til að finna allt sem þú þarft
að vita um lítil og stór brúðkaup, veislurnar, borðbúnaðinn,
kransakökurnar, og veislugestina – eða bara eitthvað allt annað.
Leitaðu að efni úr Fréttablaðinu og af Vísi. Það eina sem þarf
er leitarorð. Vísir er með það.
„Brúðkaup“
Leyfið kært til umhverfisráðuneytisins
Umhverfisstofnun veitti ORF á síðasta ári leyfi til útiræktunar á erfðabreyttu
byggi í tilraunaskyni á árunum 2009 til 2013. Þessi niðurstaða vakti hörð
viðbrögð frá hinum ýmsu samtökum og var kærð til umhverfisráðuneytisins
í september í fyrra. Kæran kom frá Verndun og ræktun (VOR), félagi fram-
leiðenda í lífrænum búskap, en naut stuðnings Dýraverndunarsambands
Íslands, Náttúrulækningafélags Íslands, MATVÍS, Náttúruverndarsamtaka
Suðurlands, Neytendasamtakanna og Slow Food í Reykjavík.
Enn hefur ekki fengist niðurstaða við kærunni frá umhverfisráðuneytinu
en samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu er von á niðurstöðu í ágúst.