Fréttablaðið - 19.07.2010, Side 42

Fréttablaðið - 19.07.2010, Side 42
26 19. júlí 2010 MÁNUDAGUR FÓTBOLTI „Ætli maður sé ekki sátt- ur bara við að ná í stig af ríkjandi Íslandsmeisturum,“ sagði Hauk- ur Páll Sigurðsson, miðjumaður Vals, eftir 1-1 jafntefli gegn FH í Kaplakrikanum í gær. Valsmenn hafa verið daprir í síðustu leikjum og var þetta þeirra besta frammi- staða í nokkuð langan tíma. „Við höfum ekki átt góða leiki að undanförnu og það var ekkert annað í stöðunni en að rífa sig upp og byrja á baráttu og leikgleði. Þegar það kemur þá náum við spil- inu inn. Maður er sáttur með leik- inn miðað við leikina undanfarið.“ Haukur var frábær í leiknum í gær en Valsmenn höfðu yfirhönd- ina á miðsvæðinu stærstan hluta leiksins þar sem hann og gamla kempan Sigurbjörn Hreiðarsson voru í aðalhlutverki. „Það er gott að hafa Bjössa þarna inni. Hann býr yfir mikilli reynslu og kenn- ir manni ýmislegt. Hann stjórnar manni og maður reynir að stjórna honum til baka,“ sagði Haukur létt- ur. Valsmenn voru betri aðilinn í fyrri hálfleiknum og byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti. Svo náðu heimamenn yfirhöndinni, jöfnuðu metin og voru líklegri í lokin til að stela öllum þremur stig- unum. Á heildina litið er jafntefli sanngjörn niðurstaða. FH var mjög ólíkt sjálfu sér lengst af í leiknum í gær og leik- menn virkuðu áhugalausir. Vörn- in var mjög óörugg og Valsmenn hefðu getað refsað heimamönnum oftar en í þetta eina skipti þegar Haukur Páll lék á tvo varnarmenn og skoraði laglegt mark. Það var ekki fyrr en ferskir menn komu inn af bekknum sem maður fór að kannast við Íslandsmeistarana. „Við vorum ekki með neinn takt í fyrri hálfleik, vorum algjörlega á hælunum,“ sagði landsliðsmark- vörðurinn Gunnleifur Gunnleifs- son. „Við náðum hins vegar að klóra aðeins í bakkann í seinni hálfleik. Heilt yfir var þetta bara sanngjörn niðurstaða en kannski ekki ásættanleg.“ Torger Motland hefur mikið verið í umræðunni fyrir slaka frammistöðu í sumar. Miðað við innkomu hans af varamanna- bekknum í gær er þó mun meira í hann spunnið en menn héldu. „Torger fær fullt kredit. Hann hefur átt undir högg að sækja en kom inn með mikinn kraft og dró okkur hina með í það,“ sagði Gunnleifur. Daninn Jacob Neestrup ákvað hins vegar ekki að vera með í leiknum og var skipt af velli snemma í seinni hálfleik. Fim- leikafélagið var alltof lengi í gang í gær en Valsmenn eiga hrós skil- ið fyrir spilamennsku sína, vilja og kraft. Í upphafi seinni hálfleiks fengu Valsmenn nokkur góð tækifæri til að bæta við öðru marki og það hefði farið langt með að klára leik- inn. elvargeir@frettabladid.is FH 1-1 VALUR 0-1 Haukur Páll Sigurðsson (9.) 1-1 Torger Motland (72.) Kaplakrikavöllur, áhorf.: 1.104 Dómari: Magnús Þórisson (6) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 7–8 (5–3) Varin skot Gunnleifur 2 – Kjartan 4 Horn 5–2 Aukaspyrnur fengnar 11–17 Rangstöður 3–2 FH 4–3–3 Gunnleifur Gunnleifsson 6 - Guð- mundur Sævarsson 3 (57., Torger Motland 8), Hafþór Þrastarson 5, Tommy Nielsen 6, Hjörtur Logi Valgarðsson 4 - Björn Daníel Sverrisson 5, Jacob Neestrup 2 (57., Jón Ragnar Jónsson 6), Matthías Vilhjálmsson 7 - Ólafur Páll Snorrason 6, Atli Guðna- son 6, Atli Viðar Björnsson 4. Valur 4–5–1 Kjartan Sturluson 7 - Stefán Eggerts- son 6, Atli Sveinn Þórainsson 6, Martin Pedersen 6, Greg Ross 5 - *Haukur Páll Sigurðsson 8, Sigurbjörn Hreiðarsson 7 (70., Rúnar Már Sigurjóns- son 5), Jón Vilhelm Ákason 6 (73., Ian Jeffs -), Arnar Sveinn Geirsson 6, Baldur Aðalsteinsson 6 (61., Guðmundur Steinn Hafsteinsson 5) - Danni König 5. Vodafonevöllur, áhorf.: ? Haukar KR TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 7–16 (6–9) Varin skot Daði 5 – Lars 3 Horn 5–8 Aukaspyrnur fengnar 12–11 Rangstöður 2–4 KR 4–3–3 Lars Ivar Moldsked 5 Guðm. Gunnarsson 6 Grétar Sigurðarson 5 Skúli Friðgeirsson 4 Jordao Diogo 5 Bjarni Guðjónsson 5 Baldur Sigurðsson 5 Viktor B. Arnarsson 4 (62., Guðjón Baldv. 6) Óskar Örn Hauksson 5 (62., Gunnar Jóns. 5) Kjartan Finnbogason 6 Björgólfur Takefusa 6 *Maður leiksins HAUKAR 4–4–2 Daði Lárusson 7 Pétur Gíslason 5 (72., Pétur Sæmund. -) Daníel Einarsson 5 Guðmundur Mete 5 Gunnar Ásgeirsson 5 Úlfar Pálsson 6 Guðjón Lýðsson 6 Kristján Björnsson 5 Ásgeir Ingólfsson 6 *Arnar Gunnlaugs. 8 (80., Jónas Bjarnas. -) Hilmar Emilsson 7 0-1 Grétar Sigfinnur Sigurðsson (3.) 1-1 Arnar Gunnlaugsson, víti (11.) 2-1 Hilmar Rafn Emilsson (33.) 3-1 Guðjón Pétur Lýðsson (40.) 3-2 Björgólfur Takefusa, víti (79.) 3-3 Guðjón Baldvinsson (82.) 3-3 Valgeir Valgeirsson (6) Fylkisvöllur, áhorf.: 1.534 Fylkir Selfoss TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 15–10 (7–4) Varin skot Fjalar 2 – Jóhann 2 Horn 9–5 Aukaspyrnur fengnar 8–12 Rangstöður 2–1 SELFOSS 4–5–1 Jóhann Sigurðsson 4 Stefán Guðlaugsson 4 Kjartan Sigurðsson 6 Agnar Bragi Magnús. 5 Guðm. Þórarinsson 4 Einar Antonsson 6 (65., Ingór Guðm. 5) Jón Guðbrandsson 5 Jón Böðvarsson 5 Davíð Birgisson 5 (63., Arilíus Martei. 6) Andri Björnsson 6 Sævar Þór Gíslason 4 (63., Ingólfur Þóra. 5) *Maður leiksins FYLKIR 4–3–3 Fjalar Þorgeirsson 5 Andri Jónsson 5 Valur F. Gíslason 5 Þórir Hannesson 5 Tómas Þorsteinsson 6 Kristján Valdimarsson 5 Andrés Jóhannesson 7 (76., Davíð Ásbjörns. -) Albert Ingason 6 (66., Friðrik Þráins. 5) Ásgeir Arnþórsson 7 (77., Andri Herman. -) *Jóhann Þórhalls. 7 Pape Faye 6 1-0 Pape Mamadou Faye (24.) 2-0 Andrés Már Jóhannesson (56.) 3-0 Jóhann Þórhallsson (62.) 4-0 Ásgeir Örn Arnþórsson (72.) 5-0 Jóhann Þórhallsson (74.) 5-1 Arilíus Marteinsson (76.) 5-2 Kjartan Sigurðsson (87.) 5-2 Gunnar Jarl Jónsson (6) FÓTBOLTI KR-ingurinn Gunnar Kristjánsson gæti verið á förum frá uppeldisfélagi sínu en Íslandsmeistarar FH vilja fá hann í sínar raðir. Tækifæri Gunnars hjá KR hafa verið af skornum skammti í sumar og ku hann vera afar ósáttur við endalausa bekkjarsetu í Vesturbænum. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins hafa FH-ingar óskað eftir leyfi frá KR til þess að ræða við leikmanninn. Það leyfi hafði ekki fengist frá KR seinni partinn í gær. - hbg FH að styrkja sig? FH vill fá Gunnar frá KR Í FELUM Í VESTURBÆNUM Gunnar Kristjánsson hefur lítið fengið að spila en fékk þó leik gegn Þrótti um daginn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI „Við töpum tveimur stigum í þessum leik. Ómeðvitað féllum við til baka sem gaf KR-ingum meira svæði með boltann en þeir sköpuðu sér ekki neitt fyrr en þeir fengu hjálp frá dómurunum sem ég afar svekktur með,“ sagði Andri Mart- einsson, þjálfari Hauka, eftir 3-3 jafntefli sinna manna gegn KR. KR-ingar komust yfir með marki frá Grétari Sigfinni Sigurðarsyni strax á þriðju mínútu en það kveikti í Haukum sem spiluðu frábærlega það sem eftir lifði hálfleiks. Fyrst jafnaði Arnar Gunnlaugsson leik- inn úr vítaspyrnu. Hilmar Rafn Emilsson kom Haukum yfir eftir frábæra sókn og Guðjón Pétur Lýðsson bætti þriðja markinu við og allt benti til þess að fyrsti sigur Hauka væri í nánd. KR-ingar náðu að hysja upp um sig brækurnar á síðustu mínútun- um jafna. Haukar naga sig vafa- laust í handarbakið fyrir að inn- byrða ekki sinn fyrsta sigur enda hefur liðinu gengið illa að halda forystu í sumar. „Ef allt hefði verið í lagi þá hefð- um við unnið þennan leik,“ sagði Andri sem þar átti við frammi- stöðu dómara leiksins. Kollegi hans í Vesturbænum, Logi Ólafsson, var svekktur með frammistöðu sinna manna sem náðu aðeins tveimur stigum gegn Haukum í sumar. „Okkur stóð til boða að fara heim með þrjú stig en þess í stað völdum við annan kost. Við miss- um af tveimur stigum vegna þess að menn átta sig ekki á því að við erum að leika gegn góðu fótbolta- liði. Það eina sem er jákvætt í þessu er að við eigum góðan endasprett. Við þurfum að hlaupa og berjast meira og leikmenn Hauka gerðu mun meira af því í þessum leik.“ - jjk Enn og aftur tókst Haukum ekki að klára leik með sigri eftir að hafa komist í vænlega stöðu gegn KR: Nú var komið að KR að stela stigi gegn Haukum MAGNAÐUR Arnar Gunnlaugsson átti stórleik í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Fylkismenn sigruðu Sel- fyssinga sannfærandi í sjö marka leik í Árbænum í gær. Vörn Sel- fyssinga var oft úti á þekju og gengu Fylkismenn á lagið í seinni hálfleik þegar þeir skoruðu 4 mörk á 16 mínútna kafla. „Góður leikur í dag, ég er mjög ánægður með það, við hins vegar slökktum hálfpartinn á okkur eftir að hafa komist í 5-0 og við höfum ekki efni á því. Hins vegar var þetta mjög góður sigur og við erum sáttir við stigin þrjú úr þessum leik,“ sagði Ólafur Þórð- arson, þjálfari Fylkismanna. „Það var mjög gott að ná að skora fyrsta markið snemma í seinni hálfleik, við fórum yfir hvað mætti laga í hálfleik og hvað við ætluðum að gera áfram. Svo slær fyrsta markið Selfyssinga svolítið út af laginu og þá nýttum við tækifærið og keyrðum á þá. Við fáum hins vegar ekkert fyrir þennan leik í næsta leik þannig að við verðum bara að nýta það sem við vitum að við getum í næsta leik og sjá hvort það gefi nóg til að fá stigin þrjú sem verða þar í boði.“ Guðmundur Benediktsson, þjálfari Selfyssinga, var ekki brattur eftir tapið. „Við vissum fyrir mót að allir leikir yrðu erfiðir fyrir okkur og þessi leikur var engin undantekn- ing á því, hins vegar vorum við bara svo hrikalega lélegir á kafla í seinni hálfleik sem gerði út um þennan leik fyrir okkur,“ sagði Guðmundur svekktur. „Það er alltaf vont að fá á sig svona mörg mörk. Við hefðum getað náð góðri forystu hér í byrj- un og fengum dauðafæri til þess sem við nýttum ekki. Undir lokin opnast vörnin meira enda erum við ekki að pakka í vörn þegar við erum undir og Fylkismenn nýttu sér það vel. Menn finna greinilega fyrir erf- iðu gengi að undanförnu og það er ekki von á góðu þegar menn missa hausinn í fótboltaleik. Við þurfum á nýju blóði að halda og við reyn- um að fá nýja menn inn.“ - kpt Fylkismenn vöknuðu eftir langan blund er hið heillum horfna lið Selfoss kom í heimsókn í Árbæinn: Fylkismenn buðu upp á flotta markasúpu BARÁTTA Fylkir hafði betur á flestum stöðum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Motland kom með kraft í lið FH Norðmaðurinn Torger Motland kom með mikinn kraft í leik FH gegn Val í gær og er aðalástæðan fyrir því að FH fékk stig í leiknum. Motland hefur verið mikið gagnrýndur í sumar en hann vaknaði í gær. SÝNDI LOKSINS KLÆRNAR Norðmaðurinn Torger Motland sýndi loksins í gær að hann getur eitthvað í fótbolta. Það dugði FH þó ekki til sigurs. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.