Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.07.2010, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 29.07.2010, Qupperneq 2
2 29. júlí 2010 FIMMTUDAGUR Arnar, er þetta ekki tussufínt? „Nei þetta er tussulfínt.“ Arnar Knútsson kvikmyndargerðarmaður var trommari í hljómsveitinni Tussull. VINNUMARKAÐUR Gangi spár eftir mun atvinnuleysi í ágúst og sept- ember verða minna en í sumar, eða í kringum 7 prósent. Í október eru þó líkur á að fjölga muni á ný á atvinnuleysisskrá. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir reynsl- una sýna að atvinnulausum fækki fram í október. Líkur séu á að reyndin verði einnig sú í ár. Átaks- verkefni fyrir námsmenn og í við- haldi hafi gengið vel og fækkað atvinnulausum. „Það tókst að ráða námsmenn að stærstum hluta, í kringum 94 prósent. Við höfum möguleika á að teygja verkefnið fram á sumarið og veita atvinnu- leitendum þannig svigrúm,“ segir Gissur, en verkefnið gerði ráð fyrir tveggja mánaða vinnu. Þá segir Gissur að iðnaðarmönn- um hafi fækkað mjög á atvinnuleys- isskrá, sem sé raunin á sumrin. Sér- stakt átak í viðhaldsverkefnum hafi enn frekar ýtt undir viðhaldsvinnu. Hann býst við 7 prósenta atvinnu- leysi í ágúst. „Það er náttúrulega hræðilega mikið, en við erum til- tölulega bjartsýn.“ Á fjórða þúsund manns hafa verið án atvinnu í tólf mánuði eða meira. Gissur segir að sérstöku virkniúr- ræði verði ýtt úr vör fyrir þann hóp í næstu viku, ekki ósvipað því sem gert var fyrir ungt fólk í janúar. Árni Páll Árnason félagsmála- ráðherra segir atvinnuleysi minnka yfir sumartímann, en líkur standi til að það verði einhverju minna í vetur en í fyrra. Hins vegar sé ekki búist við að atvinnuleysi minnki umtalsvert yfir vetrartímann fyrr en veturinn 2011 til 2012. Árni Páll segir áhyggjur um alla Evrópu snúa að því að örðugra verði að komast í lánsfé á næstu árum og því verði endurreisn efnahagslífs- ins erfiðari en ella. „Bæði er minna handbært fé á lánamörkuðum og eins hafa bank- ar farið mun varlegar í kjölfar mik- ils taps. Það getur því verið að fyr- irtæki muni eiga í erfiðleikum með að búa til ný störf.“ Hann telur að íslenska banka- kerfið sem verið sé að koma á fót, verði þó vel í stakk búið til lána- starfsemi. „Vonandi tekst okkur að hreinsa skuldsetninguna út og standa eftir með heilbrigðara bankakerfi.“ - kóp Yfir þrjú þúsund án vinnu í meira en ár Á fjórða þúsund manns hafa verið án atvinnu í meira en tólf mánuði. Farið verður í átak fyrir þann hóp í næstu viku. Atvinnuleysi í vetur verður lítillega minna en í fyrra en fer ekki að minnka að ráði fyrr en veturinn 2011-2012. SUMARVINNA Hér má sjá ungmenni tína rusl í landi Garðabæjar einn góðviðrisdaginn í byrjun júní á þessu ári. Stjórnvöld hafa beitt sértækum aðgerðum til að fást við atvinnuleysi meðal ungs fólks. FRÉTTABLAÐIÐ/ VILHELM EFNAHAGSMÁL Þeir viðskiptavinir Íslandsbanka sem tóku verðtryggð húsnæðislán árið 2005 hafa fengið send bréf þess efnis að nú sé komið að vaxtaendurskoðun. Vextir lán- anna voru upphaflega 4,15 prósent en lánasamningar kveða á um rétt bankans til hækkunar vaxtaálags á fimm ára fresti. Með bréfinu fylgdi umsóknareyðublað þar sem lánþeg- ar geta sótt um frest á vaxtaendur- skoðunardegi til þriggja ára. Lánþegi hafði samband við Fréttablaðið vegna þessa og lýsti yfir undrun sinni varðandi umsókn- areyðublaðið. „Ég tók lán upp á níu milljónir sem er nú tæpar tólf. Íslandsbanki vill hækka vextina upp í 5,6 pró- sent,“ segir hann. „Bankinn hefði átt að fresta þessu sjálfkrafa. Mér finnst þetta mjög ósmekklegt miðað við ástandið í dag.“ Sigrún Hjartardóttir, sérfræðing- ur á samskiptasviði Íslandsbanka, segir að fjármögnunarkostnaður bankans sé ekki sá sami og lá til grundvallar þeim vöxtum sem buð- ust þegar lánin voru tekin. „Hins vegar er svigrúm margra lántakenda til að taka á sig hærri vexti einnig takmarkað,“ segir Sig- rún. „Bankinn vildi koma til móts við viðskiptavini sína með því að gefa þeim færi á að fresta endur- skoðuninni.“ - sv Íslandsbanki gefur lánþegum kost á að fresta vaxtaendurskoðun í þrjú ár: Hefðu átt að fresta sjálfkrafa ÍBÚÐALÁN Þeir sem tóku lán árið 2005 eiga kost á frestun á hækkun vaxta til þriggja ára. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL FÓLK Mannskepnan verður í fyrsta sinn til sýnis í sínu náttúrulega umhverfi í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum um næstu helgi. Sýndir verða þrír karlar og ein kona. Sýningin er partur af sumarverkefni fyrir ungt fólk á aldrinum 16 til 18 ára og er stýrt af leikur- unum Ævari Þór Benediktssyni og Hilmi Jenssyni. „Krakkarnir eru búnir að vera í garðinum með alls kyns uppákomur í sumar og við ætlum að klára með þessari sýningu,“ segir Ævar Þór. „Þetta er gert til þess að lífga upp á garðinn og leyfa gestum garðsins að taka þátt í skemmtun- inni.“ Mannskepnurnar verða til sýnis frá klukkan tíu, laugardag og sunnudag. Klukkan eitt verða sýningargripirnir fóðraðir með hamborgurum og geta allir fylgst með því. Vert er að taka fram að stranglega er bannað að fóðra skepnurnar, líkt og önnur dýr í garðinum. Búrinu, sem venjulega er notað fyrir dýr í hremmingum, verður kirfilega læst og segir Ævar að sýningargripirnir kæmust ekki út þótt þeir vildu. „Þau fá bolta, sjónvarp og hugsanlega eina bók,“ segir hann. „Það er mjög mikilvægt að halda þeim í sínu náttúrulega umhverfi.“ - sv SÝNINGARDÝRIN Þeir Jakob, Davíð og Hafsteinn verða meðal annars til sýnis í Húsdýragarðinum um helgina MYND/HILMIR Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn fær kærkomna viðbót um næstu helgi: Mannfólk til sýnis í fyrsta sinn FÓLK Gestir Þjóðhátíðarinnar árlegu í Vestmannaeyjum eru margir hverjir mættir á svæðið og byrjaðir að koma sér fyrir. Heima- menn merktu fyrir tjöldum sínum í gærdag, en sá siður hefur lengi ríkt í dalnum. „Þetta hefur alltaf verið hálfgert kaos,“ segir Óskar P. Friðriksson, umsjónarmaður munavörslunn- ar. „Þeir sem starfa við hátíðina fá fyrstir tækifæri til að velja sér stæði. Það eru bara allir bæjarbúar starfsmenn Þjóðhátíðar, þannig að í ár tjölduðum við öll saman.“ - sv Þjóðhátið í Eyjum er hafin: Hörð keppni um tjaldstæði KEPPT UM STÆÐIN Gestir Þjóðhátíðar hlaupa og merkja sér tjaldstæði FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON Áttu ekki að banna bílskúr Borgaryfirvöld hafa verið gerð aft- urreka með ákvörðun um að synja húseiganda á Langholtsvegi um að byggja tvöfaldan bílskúr í stað eldri bílskúrs. Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála segir borgina hafa vísað í deiliskipulag sem ekki sé til fyrir viðkomandi lóð. SKIPULAGSMÁL VÍSINDI Fornleifafræðingar á Aust- ur-Tímor hafa fundið beinagrind stærstu rottu sem fundist hefur til þessa. Beinagrindin fannst í gíg kulnaðs eldfjalls. Út frá beinagrindinni áætla vís- indamennirnir að rottan hafi vegið um sex kíló. Það er talsvert meira en húsköttur, sem vegur gjarnan á bilinu fjögur til fimm kíló. Forn- leifafræðingarnir telja að gríðar- mikið skógarhögg á Austur-Tímor hafi eytt kjörlendi risarottnanna. Afleiðingarnar urðu þær að þessi risavaxna rottutegund dó út fyrir eitt til tvö þúsund árum. - bj Fundu beinagrind af risarottu: Rotturnar vógu um sex kíló SKIPULAGSMÁL Sveitarstjórn Borg- arfjarðar hefur staðfest ákvörðun skipulagsnefndar og byggðaráðs um að heimila gerð mótókross- brautar í landi Steðja þrátt fyrir að úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála hafi ógilt leyfi fyrir framkvæmdinni sem byggðaráð hafði samþykkt. Nota á brautina á unglingalandsmóti UMFÍ 30. júlí til 1. ágúst. Eigandi jarðarinnar Runna kærði útgáfu leyfisins. Sveitarfé- lagið segir framkvæmdina vera á röskuðu landi og afturkræfa og að leyfið gildi aðeins fyrir lands- mótið. Úrskurðarnefndin sagði að undirbúningi ákvörðunarinnar hefði verið „stórlega áfátt“ og hún því felld úr gildi. - gar Umdeild mótókrossbraut: Gefa leyfi þrátt fyrir ógildingu NOREGUR Nautgripabændur í suð- urhluta Noregs óttast nú að þurfa að slátra mörgum dýrum fyrir veturinn vegna skorts á heyi. Margir bændanna hafa aðeins heyjað um 30 prósent af því sem venjulegt er á árinu. Ástæðan er óvenjulega þurrt veður, en minni úrkoma hefur ekki mælst á svæð- inu í júnímánuði frá því mæling- ar hófust fyrir 150 árum. Bændur annars staðar í land- inu hafa boðið fram neyðaraðstoð, og er vonast til að það bjargi ein- hverjum skepnanna. - þeb Óvenjulegir þurrkar í sumar: Norskir bændur óttast heyskort ORKUMÁL Magma Energy lýsti yfir áhuga á að selja hlut í HS Orku til annarra erlendra fyrir- tækja í tilkynningu til kanadísku kauphallarinnar í maí. Í tilkynningunni er talað um að fá fjárfesta erlendis eða á Íslandi til að kaupa minnihluta í fyrir- tækinu. Með því átti að losa fé til að greiða fyrir 53 prósenta hlut Magma. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma á Íslandi, segir aðeins um lítinn hluta að ræða, og aðeins ef íslenskir fjárfestar hefðu ekki áhuga. Magma sé hlynnt því að fá íslenska fjárfesta til liðs við sig. - þeb Magma Energy við kauphöll: Reiðubúnir að selja erlendum fjárfestum hlut SPURNING DAGSINS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.